Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Blaðsíða 70
KYNLÍFIÐ KOSTAÐI MORÐ Cathleen Quinn og Alan Lee Lama
kynntust í gegnum netið. Alan Lee leitaði að ást og félagsskap en Cathleen
Quinn var að leita að einhverju allt öðru. Plötusnúðurinn Alan Lee átti eftir að
komast að því að ástin getur reynst dýrkeypt og morð var verðið sem hann
þurfti að greiða fyrir ást Cathleen. Cathleen Quinn vildi eiginmann sinn feigan og
plötusnúðurinn Alan átti að sjá til þess að hún fengi vilja sínum framgengt. Beitan
var fé og fullyrðing hennar um að Alan væri maður að hennar skapi. Lesið um Quinn og Lama í
næsta helgarblaði DV.
SUNDURLIMUÐ OG SOÐIN
Kate Webster var til þess að gera klaufalegt glæpakvendi. Á síðari hluta 19. aldar var hún oftar en einu
sinni á bak við lás og slá vegna ýmissa smáglæpa á borð við þjófnaði. Afbrot sín framdi hún bæði í heima-
landi sínu, Írlandi, og á Englandi. Hún framdi eitt morð og endaði ævi sína í gálganum.
Samkvæmt frásögn hennar sjálfr-
ar var Kate Webster hóflaus kona
og þjófótt nánast frá barnæsku.
Hún hlaut fjóra dóma sem hljóð-
uðu upp á fangelsisvist frá tveim-
ur mánuðum til tveggja ára. Kate
fæddist á Írlandi, í Kilean í Wex-
fordsýslu, og kom til Englands á
nítjánda áldursári. Hún komst
fljótlega í kynni við óyndismenn
af verstu sort.
Fljótlega eftir að hafa afplán-
að síðustu fangelsisvist sína
tryggði hún sér þernustöðu hjá
frú Thomas, ekkju sem lifði þægi-
legu lífi í úthverfi Richmond. Frú
Thomas var sögð sérvitur, hafði
lítið samband við nágranna sína
og hafði á sér orð fyrir að vera
geðill.
Það gerði að verkum að frú
Thomas og Kate kom ágæt-
lega saman og engan grunaði að
nokkur úlfúð ríkti á milli þeirra.
Óvenjulegur og óþægilegur
fnykur
Frú Thomas sást síðast á lífi 2.
mars 1879. Þann dag hafði hún
sótt tvær messur í Richmond og
komið heim á milli klukkan sjö
og átta um kvöldið. Á milli átta og
níu sama kvöld heyrðu nágrann-
ar mikinn hávaða líkt og stór,
þungur stóll hefði fallið um koll,
en veltu því ekki frekar fyrir sér.
Árla næsta morgun sást ljós í
eldhúsinu heima hjá frú Thom-
as, og hljóð heyrðust líkt og ver-
ið væri að sjóða eitthvað í kopar-
potti. Óvenjulegur og óþægilegur
fnykur barst um húsið. Enginn
vafi lék á því að Kate var heima
því þrjár manneskjur litu við. Síð-
ar átti eftir að koma í ljós hvað
olli hávaðanum kvöldið áður og
stækjunni sem einkenndi morg-
unloftið. Kate fullyrti að frú
Thomas hefði farið í ferðalag.
Sundurlimuð og soðin
Kate Webster hafði laumast aftan
að frú Thomas þar sem hún sat og
ornaði sér við arininn eftir mess-
ur dagsins. Kate smeygði sjali um
háls hennar, kippti henni aftur
með þeim afleiðingum að þungur
stóllinn datt aftur, og kæfði hana.
Síðan bretti Kate upp erm-
ar og sundurlimaði frú Thomas
með sög og exi. Líkamshlutana
setti Kate í koparpott og sauð þar
til kjötið losnaði af beinunum.
Beinin setti hún síðar á hlóðirn-
ar þar sem þau koluðust hægt og
bítandi.
Kate setti fituna af frú Thom-
as í öskju, og höfuðið, sem hún
hafði ekki soðið, setti hún í svart-
an sekk. Segir sagan að Kate hafi
síðar reynt að selja fituna af frú
Thomas sem „bestu tólg sem völ
var á“.
Þurfti að koma
húsgögnum í verð
Kunningi Kate frá gamalli tíð var
Porter nokkur sem bjó í Hamm-
ersmith, og þangað fór Kate með
höfuðið í sekknum. Kate sagði
Porter að hún hefði gifst frænda
frú Thomas og eftir að frú Thom-
as safnaðist til feðra sinna hefðu
eignir hennar fallið sér í hlut.
Kate bað Porter að aðstoða sig við
að finna kaupanda að húsgögn-
um Thomas og hann samþykkti
að koma henni í kynni við mann
að nafni Church sem hugsanlega
hefði áhuga.
Kate Webster yfirgaf Porter
en snéri til baka skömmu síðar
án svarta sekksins og þegar hún
snéri heim á leið var í fylgd með
henni sextán ára sonur Porters.
Hún og sonur Porters fluttu fitu-
boxið að Richmond-brú, en hún
gætti þess að hann sæi ekki þegar
hún kastaði boxinu í ána. Það var
síðan fiskað upp úr ánni þann 5.
mars og við réttarhöldin staðfesti
sonur Porters að það væri boxið
sem hann hefði borið að brúnni í
félagsskap Kate.
Kate flýr til Írlands
Nú gat Kate einbeitt sér að sölu
húsgagnanna og að lokum sam-
þykkti Church, sem hélt að hann
væri að semja við frú Thomas, að
greiða 68 sterlingspund og flutn-
ingafarartæki var sent til heimilis
Thomas.
En fröken Ives, sem hafði leigt
frú Thomas húsið, blandaði sér
þá í málið og neitaði að láta hús-
gögnin af hendi fyrr en hún hefði
fengið í hendur undirritað sam-
þykki frá Thomas, sem átti að
vera á ferðalagi, enda höfðu þá
ekki enn vaknað grunsemdir um
örlög hennar.
Við andstöðu Ives komu vöfl-
ur á Church og hann rifti samn-
ingnum við Kate. Kate leist ekki
meira en svo á þróun mála að
hún fékk lánað andvirði eins
sterlingspunds hjá eiginkonu
Porters og stakk af til Írlands.
Það eina sem endað hafði í
flutningafarartæki Church voru
gamlir kjólar úr eigu Thomas og
í þeim fundust bréf sem fullviss-
uðu Church um að konan sem
hann hafði samið við var ekki frú
Thomas.
Benti á bæði Porter
og Church
Haft var samband við lögregluna
og við húsleit fundust koluð bein í
öskustónni í eldhúsinu heima hjá
frú Thomas. Síðan upplýsti sonur
Porters um tólgarboxið sem hent
var í Richmondána, sem þá hafði
verið fiskað upp úr ánni.
Þess var skammt að bíða að
rannsóknarlögreglan kæmist á
hæla Kate Webster og hún var
handtekin á Írlandi þann 28.
mars og færð til Richmond. Í kjöl-
far handtökunnar reyndi Kate að
bendla bæði Porter og Church
við morðið á frú Webster. Kate
gerði þau mistök í tilviki Church
að nefna nákvæmlega réttan
morðdag og Church gat auðveld-
lega sannað að hann hefði verið
fjarri heimili frú Thomas.
Eftir að hafa mistekist að
bendla Porter og Church við
morðið, og eftir að dómur yfir
henni hafði verið kveðinn upp,
reyndi hún að bendla þriðja
manninn við morðið, en nafn
hans var aldrei gert opinbert.
Það var ekki fyrr en öll von
var úti að hún játaði á sig glæp-
inn. Hún var hengd 29. júlí 1879 í
Wandsworth-fangelsi.
(Byggt á grein í New York Times,
30 júlí 1879.)
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is
70 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 SAKAMÁL
Kate Webster Festist í eigin
lygavef í kjölfar morðsins.
Gálginn í Wandsworth-fangelsinu
Síðustu skref Kate leiddu að gálganum.
Kate smeygði sjali um háls
hennar, kippti henni
aftur með þeim afleið-
ingum að þungur stóll-
inn datt aftur, og kæfði
hana.