Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 FRÉTTIR
Frábær gestakennari Laruga Glaser verður hjá okkur
í apríl og maí. Fleiri spennandi kennarar koma í
heimsókn í ár.
Allir kennarar í yoga shala hafa alþjóðleg kennara-
réttindi í yoga og áralanga reynslu sem iðkendur
og kennarar.
13. april ~ Ashtanga vinyasa byrjendanámskeið
Kennarar: Ingibjörg og Laruga
3. maí ~ Vinyasa flæði byrjendanámskeið
Kennari: Gummi
Skráning á yoga@yogashala.is
Opnir tímar fyrir byrjendur og lengra komna.
Hot yoga á morgnana með Lönu og dagurinn verður frábær.
Hatha yoga í hádeginu og þú endurnýjar orkuna þína.
Yoga á vinnustöðum.
Einkatímar.
Stundarskráin er á netinu
www.yogashala.is
Engjateig 5, 2. hæð, S. 553 0203
KOMDU Í YOGA!
Laruga Glaser
~ gestakennari
KATTASMÖLUN OG ENDURMENNTUN
Stjórnmálamenn eiga oft ummæli sem verða fleyg
og þeim sjálfum eða málstað þeirra til fram-
dráttar. En þeir eiga líka til að láta eitthvað
flakka sem á síðar eftir að koma í bakið á
þeim. DV rifjaði upp nokkur fræg ummæli
íslenskra stjórnmálamanna á síðustu árum.
...og ég lofa þér því að
það er í sjónmáli að
hann landi, og hans fólk,
glæsilegri niðurstöðu
fyrir okkur.
Steingrímur J. Sigfússon
varði skipun Svavars Gests-
sonar sem aðalsaminga-
manns Íslands um Icesave.
Ein flokkssystir okkar
orðaði þetta ágætlega
þegar hún sagði að
þetta væri „eins og að
smala köttum“.
Jóhanna Sigurðardóttir
lýsti því hversu erfitt væri að
fá vinstri-græn til að ganga í
takt á þingi.
Maybe I
should have.
Svar Geirs H.
Haarde í breskum
sjónvarpsþætti, um
hvort hann hefði
átt að reyna meira
að ná tali af Gordon
Brown, varð fleygt.
Guð
blessi
Ísland.
Önnur orð Geirs H.
Haarde sem urðu að
titli heimildarmyndar.
...og ég spyr
líka sem
menntamála-
ráðherra: Þarf
þessi maður
ekki á endur-
menntun að
halda?
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, þáverandi mennta-
málaráðherra, brást við
gagnrýni á íslenska banka
og ríkisvaldið.