Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 FRÉTTIR
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við
húsnæði. Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði.
Hámarkslán eru 20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru
á þessum lánum og almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
vaka Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir
þingkosningarnar 1995. Þegar kom að
prófkjöri R-listans 1998 var hann hins
vegar utan flokka og bauð sig fram í
hólfi Alþýðuflokks og náði þar einu
efsta sæti listans.
Einn þeirra sem ýmsir gamalgrón-
ir kratar bundu miklar vonir við var
Gunnar Gissurarson. Hann gaf kost
á sér en hafði ekki erindi sem erfiði.
Síðar gekk hann til liðs við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Fram og aftur veginn
Grímur Atlason starfaði innan
Vinstri-grænna á fyrstu árum þess
flokks. Seinna skipti hann yfir í Sam-
fylkinguna eftir slakt gengi í prófkjöri
hjá sínum gamla flokki. Enn síðar átti
hann eftir að snúa aftur á fornar slóð-
ir í Vinstri-grænum. Baldvin H. Sig-
urðsson fór í hina áttina. Hann var
áður í Samfylkingunni en skipti síð-
an yfir í VG. Hann náði góðum ár-
angri þar og hefur verið bæjarfulltrúi
á Akureyri síðustu fjögur árin. Hann
féll hins vegar niður í þriðja sæti í for-
vali flokksins fyrir skemmstu og hef-
ur nú verið orðaður við framboð með
hópi óánægðra sjálfstæðismanna
sem hyggjast tefla fram nýjum lista
í vor.
Einn maðurinn enn sem hefur
starfað með báðum vinstriflokkunum
er Árni Þór Sigurðsson, sem nú er á
þingi fyrir Vinstri-græn. Hann kom úr
Alþýðubandalaginu og varð varaþing-
maður Samfylkingar eftir kosningarn-
ar 1999. Skömmu eftir það skipti hann
yfir í Vinstri-græn og varð borgarfull-
trúi í Reykjavík áður en hann færði sig
aftur yfir í landsmálin.
Flokkar á förum
Svo eru auðvitað dæmi um að lengra
sé gengið, að það séu ekki einstakling-
ar sem fari annað heldur heilir flokk-
ar. Allt frá 1990 hafa aðrir flokkar en
Sjálfstæðisflokkur stutt við framboð
Bæjarmálafélags Seltjarnarness und-
ir merkjum Neslista. Síðasta haust
ákvað Samfylkingin að bjóða fram í
eigin nafni en fólk úr öðrum flokkum
gaf kost á sér í prófkjöri Neslistans í
febrúar. Þar hlutu félagar úr Fram-
sóknarflokknum ekki náð fyrir aug-
um kjósenda og seint í mars ákváðu
framsóknarmenn á Seltjarnarnesi að
besta leiðin til að ná sínum málum
fram væri að segja skilið við Neslist-
ann og bjóða fram undir eigin nafni.
Þetta er í fyrsta skipti síðan 1986 sem
flokkurinn býður fram í eigin nafni og
í fyrsta skipti sem Samfylkingin býð-
ur fram í eigin nafni á Seltjarnarnesi,
enda flokkurinn ekki til síðast þegar
aðrir en Sjálfstæðisflokkur og Neslisti
tókust á um völdin á Seltjarnarnesi.
Svo eru auðvit-að dæmi um að
lengra sé gengið, að það
séu ekki einstaklingar
sem fari annað heldur
heilir flokkar.
Þriðji gunnfáninn Ólafur F. Magnússon hefur
fengið fólk til að setja x við D og F og vill nú fá
fólk til að kjósa H. MYND SIGTRYGGUR ARI