Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 FRÉTTIR
Ég er náttúrlega hin mesta dræsa.
Það eru það allar konur sem hafa
aðrar hugmyndir um samskipti kynj-
anna en gengur og gerist. Þannig að
ég er dræsa jafnvel þótt ég sé ekki
tvítug í netsokkabuxum,“ segir Eva
Hauksdóttir, oftar en ekki kölluð Eva
norn. Hún var að senda frá sér bók-
ina Ekki lita út fyrir – Sjálfshjálpar-
bók handa sjálfri mér og öðrum ýl-
andi dræsum.
Ofvaxin blygðunarkennd
„Ég skrifa það sem ég kalla sýndar-
raunsæi,“ heldur Eva áfram um bók-
ina. „Ég blanda saman dagbók, end-
urminningum, ýmsum pistlum og
skáldskap,“ en Eva segir bókina fjalla
um einsemd mannsins í heimi sem
er fullur af hræsni og ofvaxinni blygð-
unarkennd. „Ég er í raun að gefa
dræsunni rödd og útlit. Það er hóp-
ur kvenna sem býr við mjög mikla
þöggun í vestrænu samfélagi. Kon-
ur sem ögra viðteknum hugmyndum
um samkipti kynjanna, kynferði og
siðferði. Þær konur sem eru kallað-
ar dræsur. Ég er að leyfa hennar rödd
að heyrast og útskýra hvað gengur á í
hausnum á konu sem er í svona mik-
illi andstöðu við samfélag sitt.“
Eva segir erfitt að útskýra í stuttu
máli hver hugmyndafræðin í bókinni
sé. „Fólk þarf í raun að lesa bókina til
þess að fatta hvert ég er að fara. Því
ég kem víða við. Ég kem inn á klám-
og kynlífsiðnaðinn sem á eflaust eftir
að sjokkera marga. Ég tala einnig um
blygðunarkennd og nánd. Mér finnst
til dæmis ekki vera neitt lögmál að
skyndikynni þurfi að vera merki um
slæma sjálfsvirðingu. Ég skrifa tölu-
vert um hvað er að gerast í hausnum
á fólki þegar það stundar skyndi-
kynni eða á bólfélaga sem það ætlar
ekki að giftast eða eignast börn með.“
Skíthælar með typpi eða píku
Eva tekur einnig fyrir það sem hún
kallar mótsagnir um mannslíkam-
ann í nútímasamfélagi. „Í raunaf-
stöðu samfélagsins til líkamans og
tísku. Þessa kröfu sem við búum við
um fullkomið útlit á sama tíma og
okkur er bannað að vera ánægð með
sjálf okkur. Við eigum að vera rosa-
lega lítillát en á sama tíma að vera
mjög upptekin af því hvað sé full-
komið útlit.“
Eva hefur líka sitt hvað um fem-
ínisma að segja sem henn finnst í
dag fókusera of mikið á vissa hluti.
„Mér finnst femínismi eins og hann
er í dag snúast óhóflega mikið um að
koma konum í valdastöður. Ég get
ekki séð að við séum neitt betur sett
að hafa skíthæla með píku frekar en
skíthæla með typpi til að stjórna okk-
ur. Mér finnst að femínismi ætti frek-
ar að fara snúast meira um það sem
konur eru að hugsa, hvað við viljum
og hvernig við upplifum okkur til-
finningalega en ekki að þetta snúist
bara um stjórnunarstöður og völd.“
Gagnvirkar bókmenntir
Í bók Evu er einnig að finna hin ýmsu
skriflegu verkefni sem hún leggur
fyrir lesendur sína. „Mér finnst gam-
an ef bækur eru gagnvirkar, að les-
andinn geti tekið þátt í textanum.
Ég hvet fólk til að skrifa í bókina og
bæta sínu við hana. Það á ekki að líta
á bækur sem eitthvað ósnertanlegt
þar sem lesandinn má ekki bæta við
sínum hugsunum eða pælingum ef
hann vill.
Annars eru þessi verkefni bara
hjálpartæki í því að fá fólk til þess að
hugsa um þessa hluti sjálft og út frá
sér. Það er bara mjög fínt ef fólk vill
líka bara skrifa aðra bók. Þessi verk-
efni eru ekkert heilög og það má líka
alveg skrifa ný verkefni.
Margir textar sem er að finna í bók
Evu eru hugleiðingar hennar und-
anfarin ár sem höfðu meðal ann-
ars birst á bloggsíðu hennar en hug-
myndin að því að skrifa bókina og
að gefa dræsunni rödd og útlit eins
og hún hafði nefnt kviknaði fyrir ári
þegar hún var að vinna með Ingólfi
Júlíussyni ljósmyndara. „Þá datt okk-
ur í hug að gefa dræsunni útlit líka,“
en Ingólfur tekur þær ljósmyndir af
Evu sem er að finna í bókinni.
Undirstrikar nekt textans
Það er töluvert af nektarmyndum
að finna af Evu í bókinni þar sem
hún sýnir líkama sinn óhrædd eins
og hann er í raun og veru. „Ég vildi
með myndunum undirstrika þessa
brengluðu sýn sem er á líkamann.
Nú er ég á fimmtugsaldri og við
vorum alveg sammála um það ég
og Ingólfur að fara ekki að fegra
mig. Photoshoppa ekki lærapoka
eða annað í burtu heldur bara að
leyfa þessum hlutum að vera það
sem þeir eru.“
Eva segir nektarmyndirnar líka
undirstrika nekt textans í bók-
inni. „Ég er mjög óvægin í textan-
um. í minn garð og samfélagsins.
Hún undirstrikar þetta líka eins og
ég segi líka að við þurfum ekki að
skammast okkar fyrir líkamann
þótt við séum ekki tuttugu og fimm
ára lengur.“
Ekki hrædd við fátækt
Eva var áberandi í heimildarmynd-
inni Guð blessi Ísland. Þar var fylgst
með lífi hennar á meðan á bús-
áhaldabyltingunni stóð en í mynd-
inni var Eva að undirbúa brott-
fluttning frá Íslandi. Hún býr núna í
Danmörku þar sem hún hefur verið
frá því að hún flutti út.
„Mér líður alveg ágætlega úti.
Ég bý í litlu þorpi þar sem er nú
ekki mikið að gerast en það hent-
ar mér ágætlega. Ég þrífst hvar sem
er.“ Eva undirstrikar þó að hún hafi
ekki flutt frá Íslandi út af efnahags-
aðstæðum. „Ég flúði ekki Ísland út
af kreppunni eins og er altalað. Ég
vil bara ekki eiga viðskipti við þau
stórfyrirtæki og þá banka sem hér
eru. Ég vil ekki eiga viðskipti við
þessa skíthæla og það er ekki hægt
að komast hjá því ef maður býr hér.
Ég lít á þetta sem pólitíska yfirlýs-
ingu af minni hálfu en ekki það að
ég sé eitthvað hrædd við fátækt.“
Aðspurð hvort hún muni snúa
aftur heim þegar skíthælarnir séu
farnir segir hún: „Ég sé ekki fyr-
ir mér að það sé að fara gerast í
bráð. Til þess þarf alvörubyltingu.
Ekki bara nýja stjórn heldur al-
vörubreytingar á stjórnkerfinu. Ég
er með ákveðnar hugmyndir um
hvernig sé hægt að framkvæma það
og ég ætla að tala um það á Aust-
urvelli klukkan þrjú á laugardag-
inn þegar Alþingi götunnar kemur
saman.“
Eva Hauksdóttir sendi nýlega frá sér bókina Ekki lita út fyrir þar sem
hún gefur dræsunni í nútímasamfélagi rödd og andlit. Hún fer djúpt í þær
ranghugmyndir sem hún segir plaga samfélagið en í bókinni er að finna
endurminningar, skáldskap, pistla og pælingar svo eitthvað sé nefnt.
GEFUR
DRÆSUNNI
RÖDD OG
ÚTLIT Ég get ekki séð að við séum neitt betur sett að hafa skíthæla með píku frekar en skíthæla með typpi til að stjórna okkur.
Eva Hauksdóttir Bókin fjallar um
einsemd mannsins í heimi sem
er fullur af hræsni og ofvaxinni
blygðunarkennd. MYND INGÓ
Eins og hún er klædd
Eva kemur til dyranna eins
og hún er klædd, eða þá
ekki klædd. MYND INGÓ
ÁSGEIR JÓNSSON
blaðamaður skrifar: asgeir@dv.is