Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 FRÉTTIR
Stærstu borgir heims eru að renna
saman og munu mynda „risa-svæði“
(e. mega-region) sem gætu teygt sig
yfir hundraða kílómetra svæði í lönd-
um og orðið aðsetur yfir 100 milljóna
manna, samkvæmt viðamikilli nýrri
skýrslu Sameinuðu þjóðanna, State
of World Cities.
„Með meira en helming jarðar-
búa búsettan á borgarsvæðum má
segja að nú sé öld þéttbýlis,“ seg-
ir Ban Ki-moon, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, í inngangi skýrslunn-
ar. Ennfremur segir Ban Ki-moon að
borgir séu holdgervingar nokkurra af
erfiðustu viðfangsefnum samfélags-
ins; mengun, sjúkdómum, atvinnu-
leysi og skorti á viðunandi skjóli.
Hin svonefnda „endalausa borg“
gæti orðið merkilegasta þróunin
og mesta vandamálið með tilliti til
þess hvernig lífi fólk lifir og hagkerfi
vaxa næstu fimmtíu árin samkvæmt
HABITAT, búsetunefnd Sameinuðu
þjóðanna.
Í myndun víða um heim
Hong Kong-Shenhzen-Guangzhou-
héraðið í Kína er það stærsta þess-
arar tegundar í dag, en íbúar þess
svæðis eru um 120 miljónir. Önnur
„risahéruð“ hafa myndast í Japan og
Brasilíu, og eru við að myndast á Ind-
landi, vesturhluta Afríku og víðar.
Í fyrra var brotið blað með tilliti til
búsetu jarðarbúa þegar þessi þróun
olli því að meira en helmingur jarð-
arbúa varð búsettur í borgarsamfé-
lögum. Í skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna segir að borgarvæðing sé nú
orðin óstöðvandi og að sögn fráfar-
andi framkvæmdastjóra HABITAT,
Önnu Tibaijuka, munu yfir sjötíu
prósent jarðarbúa búa í borgum árið
2050. „Þá munu einungis fjórtán
prósent íbúa ríku landanna búa utan
borga, og þrjátíu og þrjú prósent íbúa
fátæku landanna,“ sagði Anna.
Auðmyndun í borgum
Þessi þróun risa-svæða er almennt
litin jákvæðum augum, sagði Edu-
ardo Lopez Moreno, einn höfunda
skýrslunnar, sem segir að nú eigi
auðmyndun sér stað á þessum risa-
svæðum, í stað landa áður fyrr.
Eduardo Lopez Moreno segir
að rannsóknir hafi sýnt að fjörutíu
stærstu risa-svæði jarðar þekja ein-
ungis brot byggilegs yfirborðs plán-
etunnar og séu aðsetur innan við átj-
án prósenta jarðarbúa. En 66 prósent
efnahagslífs og um 85 prósent tækni-
legra og vísindalegra nýjunga eiga
sér stað innan þessara fjörutíu risa-
svæða.
„Tuttugu og fimm stærstu borg-
ir heims eiga heiðurinn af meira
en helmingi auðs jarðar, og fimm
stærstu borgir Indlands og Kína státa
nú af helmingi auðs þeirra landa,“
sagði Moreno.
Borgir minnka einnig
„En það er ekki algilt að borgir
stækki. Þær geta þanist út eða dreg-
ist saman bæði með tilliti til stærðar
og mikilvægis. Ris borga og hnignun
byggist á ýmsum sagnfræðilegum,
efnahagslegum, stjórnmálalegum
og lýðfræðislegum þáttum,“ segir í
skýrslu HABITAT.
Þrátt fyrir að einhverjar borgir
vaxi hraðar en aðrar er mikill mis-
skilningur að aukin borgarvæðing á
heimsvísu þýði að allar borgir séu að
stækka. Vísbendingar sýna að í öll-
um heimshlutum, einkum og sér í
lagi í þróuðum heimshlutum er fjöldi
borga sem eru að minnka að stærð.
Í skýrslunni segir að minnkun
borga tengist fyrst og fremst Banda-
ríkjunum og Evrópu þar sem borg-
um sem minnki hafi fjölgað meira
síðastliðna hálfa öld, en borgum sem
stækkuðu.
Í Bandaríkjunum gengu 39 borgir
í gegnum íbúafækkun, á Bretlandi 49
borgir, í Þýskalandi 48, og á Ítalíu 34
borgir, frá 1990 til 2000.
Þensla úthverfanna
Vöxtur risa-svæða og borga hef-
ur leitt til fordæmalausrar þenslu
og óreglulegrar dreifingar úthverfa,
nýrra fátækrahverfa, ómarkvissrar
þróunar og fjárhagslegs ójafnræðis.
Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna
segir að þensla og óregluleg dreif-
ing borga séu einkenni klofinnar og
óstarfhæfrar borgar og hækki flutn-
ingakostnað, auki eldsneytisnotkun,
krefjist fleiri úrræða og ónýti land
sem nýst gæti til ræktunar.
„Því meira sem ójafnræði eykst
í borgum, þeim mun meiri verð-
ur hættan á að efnahagslegur mun-
ur orsaki samfélagslega og stjórn-
málalega spennu. Líkurnar á ólgu í
óréttlátum borgarsamfélögum eru
miklar. Þær borgir sem dafna best
eru alla jafna þær þar sem dregið er
úr ójafnræði,“ sagði Eduardo Lopez
Moreno.
Á næstu fimmtíu árum virðist þróunin
ætla að verða sú að stærstu borgir heims
breytist í „risa-svæði“ með yfir hundruð
milljón íbúa. Slík þróun hefði veruleg
áhrif á fólksfjölgun og ríkidæmi, segir í
nýrri skýrslu HABITAT, búsetunefndar
Sameinuðu þjóðanna.
ENDALAUSAR BORGIR
n Könnun Sameinuðu þjóðanna á borgum heims leiddi í ljós að mesta ójafnræð-
ið var í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, en vart mælanlegur munur var á ójafnræði
í borginni og öðrum suðurafrískum borgunum East London, Bloemfontein og
Pretoríu.
Borgir í Suður-Ameríku, Asíu og afrískum borgum utan Suður-Afríku státuðu alla-
jafna af meira jafnræði en borgir Suður-Afríku, en aðallega fyrir þá sök að í þeim
ríkti almenn fátækt, þar fyrirfundust mörg fátækrahverfi og fátæklegt hreinlæti.
Í Bandaríkjunum var að finna flest samfélög þar sem ójafnræði ríkti þar sem
New York, Chicago og Washington státuðu af minna jafnræði en staðir eins og
Brazzaville í Vestur-Kongó, Managva í Níkaragva og Davao á Filippseyjum.
JAFNRÆÐI Í BORGUM
Ris borga og hnignun bygg-
ist á ýmsum sagnfræði-
legum, efnahagslegum,
stjórnmálalegum og
lýðfræðilegum þáttum,“
segir í skýrslu HABITAT.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Hong Kong Ásamt Shenhzen-Gu-
angzhou-héraði í Kína er stærsta
„risa-svæði“ jarðar. MYND PHOTOS.COM
Bogota í Bangladess Borgar-
væðingin verður ekki stöðvuð.
MYND BÚSETUNEFND SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Lijian í Kína Óregluleg dreifing og
þensla borga ekki af hinu góða.
MYND BÚSETUNEFND SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA