Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2010, Page 47
... The
Lovely
Bones
Draumkennt
yfirbragð í
ágætri mynd.
... leikritinu
Gauragangi
Guðjón Davíð
Karlsson á
stjörnuleik í
fínu verki.
... bókinni Það sem
ég sá og hvernig ég
laug
Einlæg,
hreinskilin,
áhugaverð,
spennandi og
... Kóngavegi
Vesturport sem aldrei
klikkar, klikkar.
FÓKUS 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 47
MIÐVIKUDAGUR
n Hvanndalsbræður á Græna
hattinum
Hinir einu sönnu Hvanndalsbræður
starta páskahelginni með tónleikum á
Græna hattinum á miðvikudagskvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og er
forsalan í Eymundsson.
n Sálin á 800 Bar
Páskafríið á Selfossi byrjar á 800 Bar
en þá mætir vinsælasta ballhljómsveit
okkar íslendinga, Sálin hans Jóns
míns, og skemmtir mönnum. Húsið
opnað klukkan 23. Þetta verður klárlega
stærsta ball allra Sunnlendinga þessa
páskana.
n Klaas á NASA
Einn af uppáhalds plötusnúðum
Íslendinga, Klaas er á leiðinni til landsins
á ný vegna fjölda áskorana. Klaas
kemur fram á NASA í kvöld og er forsala
aðgöngumiða í verslunum Jack and
Jones Kringlunni laugardaginn 20. mars
Fram koma Klaas, Sindri BM, DJ Óli geir
og Haffi Haff, Joey D og Frigore.
n Duplex #6 á Sódómu
Sjötta Duplex-kvöld Sódómu verður
haldið í kvöld og munu hljómsveitirnar
Ensími, Stafrænn Hákon, Ourlives, Úlpa
og Ojba Rasta koma fram. Það kostar
1þ000 krónur inn. Ekki ætti að láta þetta
frábæra tækifæri fram hjá neinum fara.
SKÍRDAGUR
n Blúshátíð á Hilton
Super Chikan and the Fighting Cocks
koma beina leið frá Mississippi og eru
líkleg til að gera allt vitlaust. Þeir sem
hafa upplifað tónleika þeirra eiga ekki
orð af hrifningu. Hann er einstakur og
litríkur tónlistarmaður og tónleikar hans
eru mögnuð upplifun. Miðasala við
inngang og hefjast tónleikarnir klukkan
20.
FÖSTUDAGURINN LANGI
n Sálin á Spot
Þá er loksins komið að því að Sálin ætlar
að halda ball á Spot. Ein almerkasta
poppsveit Íslandssögunnar fyrr og
síðar gerir allt vitlaust um páskana.
Húsið opnað klukkan 24 og kostar 2.500
krónur inn.
PÁSKADAGUR
n Ingó og Veðurguðirnir á Spot
Eftir páskaeggjaát ætla Ingó og
veðurguðirnir að láta fólk dansa af sér
súkkulaðið með tónleikum á skemmti-
staðnum Spot í Kópavogi. Húsið opnað
klukkan 24 og kostar 1.800 krónur inn.
Hvað er að
GERAST?
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra hefur undirritað, fyr-
ir hönd ríkisstjórnarinnar, samn-
ing við rektor Háskóla Sameinuðu
þjóðanna, Konrad Osterwalder, um
stofnun um Landgræðsluskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna á Ís-
landi, en aðild að þeim samningi
eiga einnig Landbúnaðarháskóli Ís-
lands og Landgræðsla Íslands.
Stefán Lárus Stefánsson, sendi-
herra Íslands í Japan, afhenti nú í
mars samninginn fyrir hönd utan-
ríkisráðherra við hátíðlega athöfn
sem fram fór í aðalstöðvum Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna í Tókýó.
Þess má geta að innan Samein-
uðu þjóðanna hefur rektor háskól-
ans stöðu varaframkvæmdastjóra
og heyrir því beint undir Ban-ki
Moon, aðalframkvæmdastjóra SÞ.
Við athöfnina sagði Osterwald-
er rektor: „Hjá Háskóla Samein-
uðu þjóðanna er mikil ánægja með
að gert hafi verið samkomulag um
stofnun Landgræðsluskóla Háskóla
Sameinuðu þjóðanna á Íslandi við
ríkisstjórn Íslands, Landgræðslu Ís-
lands og Landbúnaðarháskóla Ís-
lands.
Aðalmarkmið Landgræðslu-
skólans á Íslandi eru sérstaklega
mikilvæg fyrir þróunarríki víðs veg-
ar um heim. Í skólanum verða tek-
in fyrir knýjandi úrlausnarefni sem
ríki í öllum heimsálfum þurfa að
kljást við svo sem sjálfbæra nýtingu
lands og landgræðslu.
Stofnun Landgræðsluskólans
er í raun þriðja stoðin í samstarfi
Háskóla Sameinuðu þjóðanna og
Íslands og mun verða sérstaklega
góð viðbót við langt og farsælt
samstarf sem staðið hefur áratug-
um saman um rekstur Jarðhita-
skólans og Sjávarútvegsskólans á
Íslandi.
Stjórn Háskóla Sameinuðu
þjóðanna er sérstaklega þakklát
fyrir hinn sterka og einarða stuðn-
ing af Íslands hálfu sem gert hefur
kleift að reka þessa skóla sem í raun
gefa helstu stefnumálum HSÞ auk-
ið virði, en þau eru að nýta vísind-
in til að leita lausna á vandamálum
sem þjaka fjölmörg ríki heims og
teljast til helstu viðfangsefna Sam-
einuðu þjóðanna.“ benni@dv.is
... The
Blind
Side
Mynd sem
lætur þér
líða vel. ... Legion
Satanískt vond mynd.
Þátttaka Íslands mikils metin hjá Háskóla Sameinuðu þjóðanna:
Sjálfbær nýting lands og landgræðslu
Stuð við undirskrift Stefán
sendiherra til vinstri og Oster-
walder rektor við athöfnina.
strákarnir semji lögin saman en komi
ekki hver úr sínu horni með fullmót-
að lag. „Við erum allir mjög skapandi
í hugsun og það er ekki eins og það sé
einn okkar sem komi alltaf með til-
lögur. Það er allt prófað og við viljum
sjá hvað við getum gert við hvert lag.
Lag er því í raun aldrei tilbúið fyrr en
við erum búnir að spila það í nokkurn
tíma. Flest lögin okkar taka miklum
stakkaskiptum á æfingunum.“
Skipulag er mikilvægt
Eins og áður hefur komið fram er
Dikta ekkert venjulegt band. All-
ir hljómsveitarmeðlimirnir eru vel
menntaðir eða í námi og þurfa að
skipuleggja tímann sinn vel til að láta
hlutina ganga upp. Haukur útskrif-
aðist sem læknir árið 2008 og starf-
ar á slysadeild Landspítalans. Hann
segir að þrátt fyrir miklar annir gangi
þetta vel. „Ég hef verið í hljómsveit-
inni samhliða læknanáminu svo ég
er vanur að vera að gera margt í einu.
Álagið í hljómsveitinni núna er orðið
talsvert meira en áður og það er svo-
lítið erfitt að vera í fullri vinnu og rúm-
lega það. Svo á maður fjölskyldu líka.
Vandamálið hefur bara verið að redda
vöktum. Ég átti til dæmis að vera á
næturvakt síðustu helgi og að vera
spila báða dagana. Ég náði að skipta
vöktunum. Skipulag er nokkuð sem
er mikilvægt núna,“ segir Haukur og
bætir við að það sem sitji á hakanum
sé svefn. „Og stórfjölskyldan.“
Hinir meðlimir Diktu eru einn-
ig á kafi í öðru samliða hljómsveit-
inni. Trommuleikarinn, Jón Þór Sig-
urðsson, er flugmaður og er að sögn
Hauks að klára atvinnuflugmann-
inn þessa dagana. Gítarleikarinn Jón
Bjarni Pétursson og bassaleikarinn
Skúli Gestsson eru kennaranemar.
Semur undir álagi
„Það er ekkert óalgengt að maður sé
beðinn um að spila í vinnugleðskap,“
segir Haukur þegar hann er spurð-
ur hvort hann sé aldrei beðinn um
að spila fyrir vinnufélaga sína. „Ég
afþakka pent. Svo er oft gott svar við
svona spurningum að spyrja viðkom-
andi á móti hvort hann geti ekki gert
eitthvað fyrir mig í staðinn. Til dæmis
ef hann vinnur í bókhaldi, spurt hann
þá á móti hvort hann geti ekki komið
og gert bókhaldið mitt. Þetta var gott
ráð frá ónefndum tónlistarmanni,“
segir Haukur léttur.
Tónlistin tengist þó vinnu Hauks á
öðrum forsendum. Á krefjandi tímum
þykir honum gott að geta notað hana
til að losna undan daglegu amstrinu.
„Þegar það er mikið að gera nota ég
hana ennþá meira. Sem dæmi samdi
ég aldrei jafnmikið af lögum eins og
þegar ég var í prófum í læknanám-
inu.“
Tóm gleði fram undan
Fram undan hjá hljómsveitarmeð-
limum er áframhaldandi spila-
mennska og gleði. Um páskana ætla
þeir að vera á Aldrei fór ég suður og
helgina eftir það á Græna hattinum á
Akureyri svo það geta fleiri en borgar-
búar notið tónlistar þeirra. Til gamans
má svo einnig nefna að Myspace-síða
þeirra státar af 37 þúsund aðdáend-
um víðs vegar úr heiminum sem sýnir
hversu þekktir þeir eru.
asdisbjorg@dv.is
SYNGJANDI
LÆKNIR FJÖLHÆFUR FORSPRAKKI DIKTUHaukur Heiðar Hauksson, söngvari, gítarleik-ari, píanóleikari og læknir.