Fréttablaðið - 26.11.2015, Síða 44
Barátta og dugnaður dugði ekki til gegn Slóvökum
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði með 17 stigum gegn gríðarsterku liði Slóvakíu í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2017 í Laugar-
dalshöllinni í gær. Fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir leiddi íslenska liðið með 16 stig, sex fráköst og tíu stoðsendingar. fréttablaðið/ernir
Fótbolti „Það er nú ekki leiðin-
legt að fá að prófa þetta hér líka. Ég
varð tvisvar bikarmeistari með FH á
Íslandi og ekki var þetta síðra,“ sagði
Matthías Vilhjálmsson, sóknar-
maður Rosenborg, sem varð um
helgina bikarmeistari með liði sínu
eftir sigur 2-0 sigur á Sarpsborg 08 í
úrslitunum.
Rosenborg varð sömuleiðis Nor-
egsmeistari með talsverðum yfir-
burðum í sumar. Það var 23. meist-
aratitill félagsins en sá fyrsti í fimm
ár og því kærkominn. Matthías gekk
í raðir Rosenborg í lok júlí eftir að
hafa verið á mála hjá Start í þrjú og
hálft ár. Hjá Start var hann í stóru
hlutverki en eins og gefur að skilja
fékk hann mun meiri samkeppni
um stöðu í byrjunarliðinu hjá
Rosenborg.
eigna mér sæti á næsta ári
„Ég fékk að spila nokkuð mikið
fyrstu vikurnar en síðan komu
margir leikmenn til baka úr
meiðslum. Það er lítið hægt að segja
þegar hinn framherjinn er lang-
markahæsti maður deildarinnar,“
segir Matthías. „En það var fínt að
byrja á þessu. Markmiðið hjá mér
er svo að eigna mér sæti í liðinu á
næsta ári.“
Matthías var nýlega verðlaunaður
fyrir mark ársins en það gerði hann í
leik með Start. Alls skoraði hann níu
mörk í norsku úrvalsdeildinni í ár,
þar af tvö með Rosenborg.
Hann segir að hann hafi beðið
nokkuð lengi eftir því að taka næsta
skref á ferlinum eftir dvölina hjá
Start og því hafi verið kærkomið að
fara til Rosenborg. „Þetta er svipað
og þegar ég fór í FH,“ segir hann
en Matthías var sautján ára þegar
hann fór úr BÍ frá Ísafirði og gekk
til liðs við Hafnarfjarðarfélagið, þar
sem hann varð margfaldur Íslands-
meistari. „Hér er mikil samkeppni
um stöður, æfingar eru mun betri
og það eina sem skiptir máli er að
vinna titla.“
Greinilega ekki nógu góður
Matthías er 27 ára og hefur ekki
fengið tækifæri með íslenska
landsliðinu í mótsleik síðan Ólafur
Jóhannesson var landsliðsþjálfari.
Lars Lagerbäck og Heimir Hall-
grímsson hafa valið hann reglu-
lega í vináttulandsleiki og Matthías
á möguleika á að fá kallið þegar
Ísland fer í æfingaferð til Abú Dabí
í janúar og leikur þar tvo vináttu-
landsleiki.
Matthías gengst við því að það
hafi vissulega verið honum von-
brigði að fá ekki fleiri tækifæri með
landsliðinu en hann stefnir engu
að síður ótrauður að því að komast
í EM-hópinn fyrir næsta sumar.
„Fyrst ég er ekki í hópnum þá er
ég greinilega ekki nógu góður og
verð að leggja meira á mig,“ segir
hann. „Það er lítið annað fyrir mig
að gera. Liðið hefur staðið sig frá-
bærlega og Lars og Heimir vita
alveg hvað þeir eru að gera. En það
er langt í mót og það getur margt
gerst á þeim tíma. Þetta er fyrst og
síðast undir sjálfum mér komið.“
Matthías var síðast með Íslandi
í leikjunum gegn Kanada í upphafi
árs sem fóru báðir fram í Flórída.
„Þá skoraði ég og fiskaði víti þannig
að ég tel að ég hafi nýtt mín tækifæri
ágætlega. En þetta snýst líka um svo
margt annað,“ segir Matthías.
eirikur@frettabladid.is
Eina málið að vinna titla
Matthías Vilhjálmsson er búinn að vera í Rosenborg í aðeins nokkra mánuði en er þegar orðinn tvöfaldur
meistari. Ísfirðingurinn stefnir að því að vinna sér fast byrjunarliðssæti og ætlar sér á EM með landsliðinu.
Matthías ætlar sér að festa sig í sessi
hjá rosenborg. fréttablaðið/Getty
Í dag
18.00 Qarabag - tottenham Sport
18.00 basel - fiorentina Sport 3
19.15 Stjarnan - njarðvík Sport 4
20.00 liverpool - bordeaux Sport
20.00 Celtic - ajax Sport 3
19.15 tindastóll - Keflavík Sauðárkr.
19.15 Ír - Höttur Seljaskóli
19.15 Þór Þ. - Haukar Þorlákshöfn
19.00 fram - akureyri Framhús
19.30 Haukar - Grótta Ásvellir
19.30 Valur - Ír Vodafone-höllin
Steph Curry er með flesta
þrista í NBA (78). Damian
Lillard er næstur með 45.
Curry skoraði ekki 78.
þristinn sinn fyrr en 22. des í
fyrra!
Baldur Beck
@nbaisland
Nýjast
Meistaradeildin
A-riðill
Malmö - PSG 0-5
0-1 Adrien Rabiot (3.), Ángel Di María (14.),
0-3 Zlatan Ibrahimovic (50.), 0-4 Di María
(68.), 0-5 Lucas Moura (82.).
Shakhtar - real Madrid 3-4
0-1 Cristiano Ronaldo (18.), 0-2 Luka
Modric (50.), 0-3 Daniel Carvajal (52.), 0-4
Ronaldo (70.), 1-4 Alex Teixeira, víti (77.), 2-4
Dentinho (83.), 3-4 Teixeira (88.).
Stig liðanna: Real Madrid 13, PSG 10,
Shakhtar 3, Malmö 3.
b-riðill
Man Utd - PSV 0-0
CSKa - Wolfsburg 0-2
0-1 Igor Akinfeev, sjálfsmark (67.), 0-2 André
Schürrle (88.).
Stig liðanna: Wolfsburg 9, Man Utd 8, PSV 7,
CSKA Moskva 4.
C-riðill
astana - benfica 2-2
1-0 Patrick Twumasi (19.), 2-0 Marin Anicic
(31.), 2-1 Raúl Jiménez (40.), 2-2 Jiménez
(72.).
atl. Madrid - Galatasary 2-0
1-0 Antoine Griezmann (13.), 2-0 Griezmann
(65.)
Stig liðanna: Atletico Madrid 10, Benfica 10,
Galatasary 4, Astana 3.
D-riðill
Juventus - Man City 1-0
1-0 Mario Mandzukic (18.)
M. Gladbach - Sevilla 4-2
1-0 Lars Stindl (29.), 2-0 Fabian Johnson
(68.), 3-0 Raffael (78.), 3-1 Vitolo (82.), 4-1
Stindl (83.), 4-2 Ever Banega, víti (90+1).
TÓLF Í BANN FyRiR STERASöLu
Alþjóðasamband
líkamsræktarmanna á Íslandi
(iFBB) hefur sett tólf manns í
keppnisbann eftir að þeir urðu
uppvísir að því að selja stera,
og önnur ólögleg efni, undir
eigin nafni í lokuðum hópum
á Facebook. Að sögn Einars
Guðmanns, forsvarsmanns og
yfirdómara iFBB, voru umræddir
aðilir dæmdir í tveggja ára
keppnisbann. Þeir hafa allir
keppt á Íslands- og bikarmótum í
vaxtarrækt þótt enginn þeirra hafi
keppt á síðasta bikarmóti.
Undankeppni EM 2017
Ísland - Slóvakía 72-55
Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir
16/6 fráköst/10 stoðsendingar, Pálína
Gunnlaugsdóttir 14, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 5, Sandra Lind Þrastardóttir
5, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5, Guðbjörg
Sverrisdóttir 3, Berglind Gunnarsdóttir 3,
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 2, Bryndís
Guðmundsdóttir 5.
2 6 . n ó v E M b E r 2 0 1 5 F i M M t U D A G U r32 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Sport
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-F
C
E
0
1
7
2
D
-F
B
A
4
1
7
2
D
-F
A
6
8
1
7
2
D
-F
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K