Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 20
Náttúrufræðingurinn
124
gjóskulög. Almennt má segja að ald-
ursgreiningar Ólafs séu ónákvæmar
en gefi þó vísbendingar um aldur
hlaupanna. Vænlegasta aðferðin
til að meta aldur berghlaupa er
gjóskulagaathugun í jarðvegi ofan á
þeim og undir. Einnig er mögulegt
að beita C-14 aldursgreiningum á
lífrænt efni sem finnst í tengslum við
berghlaupin. Ekki er hlaupið að því
komast að undirlagi berghlaupsurða,
sem yfirleitt eru stórgrýttar og oft
þykkar. Helst er slíks að vænta þar
sem straumvatn hefur rofið sig í
gegnum þær eða grafið hefur verið í
þær vegna framkvæmda.
Aldur berghlaupa hefur ekki
verið kannaður markvisst með hjálp
gjóskulaga enn sem komið er, en
nokkur dæmi eru þó um rannsóknir
sem gefið hafa góða raun, einkum
frá Austurlandi.4,5 Meginforsenda
þess að gjóskulög nýtist er að til
staðar séu svokölluð leiðarlög, sem
eru auðþekkt gjóskulög með mikla
útbreiðslu. Mikilvægustu leiðarlögin
hérlendis má telja ljósu Heklulögin,
H1 (frá 1104), H3 (~3000 ára), H4
(~4300 ára) og H5 (~7000 ára), sem
uppfylla öll skilyrði slíkra laga.6,7 Í
þennan flokk mætti bæta um 10.200
ára gömlu, dökku gjóskulagi sem
kennt er við Saksunarvatn í Fær-
eyjum.8,9 Upptök gjóskunnar eru
í Grímsvötnum og nær útbreiðsla
þess til alls landsins. Mörg önnur
gjóskulög henta sem leiðarlög þó
að útbreiðsla þeirra sé minni en
ofangreindra laga. Rannsóknir sýna
að gjóskulög eru ágætlega varðveitt
í mómýrum á höfuðborgarsvæð-
inu.10,11
Í fjöruborðinu í Hofsvík á Kjalar-
nesi er ofan á urðinni þykkt lag
af mó, svokölluðum fjörumó eða
sjótorfi. Fjörumór hefur orðið til
í mýrum eða deiglendi, líkt og
venjulegur mór, en síðan færst niður
fyrir sjávarmál vegna landsigs
og sjávarstöðubreytinga. Mórinn
kemur í ljós þegar lágsjávað er.
Fjörumór finnst á nokkrum stöðum
við strendur landsins, einkum við
Faxaflóa. Þekktasti staðurinn er
líklega í Seltjörn á Seltjarnarnesi.
Einnig er fjörumór á Álftanesi, í
Hafnarfirði, í Vogum, við Garð-
skaga og á Mýrum. Fjörumór hefur
lítið verið rannsakaður, að undan-
skildum mónum í Seltjörn og við
Garðskaga.12,13,14,15,16
Sjávarhólar
Jarðirnar Sjávarhólar og Skraut-
hólar á Kjalarnesi heita eftir urð-
arhólum við ströndina milli bæj-
anna og bera nöfn sem eiga vel
við landslagið á þessum slóðum
(1. mynd). Esjuhlíðar þar ofan við
nefnast Hólafjall. Hólarnir eru hluti
af berghlaupi sem fallið hefur efst
úr Esjubrúnum og kastast niður á
láglendið, allt í sjó fram í Hofsvík.
Talsvert hefur verið skrifað um
hlaupið.1,2,3,17 Brotsárið myndar
allmikla skál í fjallsbrúnina, sem
þó hefur ekki hina reglulegu hvilft-
arlögun sem einkennir margar berg-
hlaupsskálar. Efsti hluti urðarinnar
og skálin nefnist Gleið. Þar er
2. mynd. Jarðfræðikort af Sjávarhólahlaupinu og umhverfi þess. – Geological map from the SW Esja region. The extent of the Sjávarhólar
rockslide is marked with a dotted line. The submerged peat at Hofsvík stretches along the shore.
81_3-4_loka_271211.indd 124 12/28/11 9:13:53 AM