Valsblaðið - 01.05.2011, Page 8

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 8
6 Valsblaðið2011 Eftirfarandi eru brot úr erindi Harðar við það tækifæri. „Það ár sem við nú brátt kveðjum hefur öðru fremur einkennst utan vallar af undirbúningi viðburða sem verða á vegum félagsins á afmælisárinu. Fjöldi Valsmanna hefur lagt hönd á plóg með aðkomu að skipulagningu á þeim fjölmörgu viðburðum sem í boði verða á þessum merku tímamótum. Stofnuð var á árinu minjanefnd sem er að vinna ómet- anlegt starf í söfnun, skráningu og varð- veislu þeirra muna sem varða glæsta sögu Vals. Einnig hefur verið starfandi ritnefnd sem hefur verið Þorgrími Þráins- syni til halds og traust við skráningu á sögu félagsins, að ógleymdri afmælis- nefndinni sem starfað hefur að undirbún- ingi afmælisársins á annað ár. Öllum þessu aðilum ásamt þeim fjölmörgu sem leitað hefur verið ásjár hjá vil ég þakka ómetanlegt starf fyrir félagið.“ Fyrsti formlegi liðurinn í dagskrá afmælisársins Fyrsta formlega athöfnin sem fram fór vegna amælisársins var afhjúpun hátíðar- merkis sem afmælisnefndin hefur látið gera í tilefni afmælisins. Jafnframt voru framleidd barmmerki með sama merki og voru þau gefin félags- mönnum. Einnig var framleitt dagatal þar sem merktir voru helstu viðburðir afmæl- isársins. Reynir Vignir formaður afmælis- nefndar greindi lauslega frá viðburðum af- mælisársins og afhjúpaði síðan afmælis- merkið með félögum sínum úr afmælisnefndinni og var þetta fyrsti form- legi liðurinn í dagskrá afmælisársins. Blómlegt félagsstarf að Hlíðarenda Hörður formaður hafði þetta að segja um félagsstarfið. „Það má segja að félags- starf blómstri á Hlíðarenda um þessar mundir og allir eiga að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi og víst er að við þurf- um að öllum vinnufúsum höndum að halda til að mæta þeim væntingum og kröfum sem til okkar eru gerðar. Öflug foreldrafélög eru í mörgum flokkum, Fálkarnir stuðningsfélag við barna- og unglingastarf félagsins eiga sérstakar þakkir skildar fyrir þeirra öfluga starf og stuðning á árinu, það sama má segja um þá fjölmörgu einstaklinga sem ávallt eru boðnir og búnir til að leggja félaginu lið hvort sem er í kringum umsjón með heimaleikjum eða hverju öðru sem eftir er leitað. Fulltrúaráðið starfar með mikl- um blóma og fundar reglulega, sama má segja um getraunastarfið sem sjaldan hef- ur verið öflugra, haldin eru glæsileg bridge- og skákmót ásamt golfmóti svo eitthvað sé nefnt fyrir utan það mikla nefndarstarf sem viðkemur amælisárinu og áður var getið að ógleymdu því mikla starfi sem stjórnir deilda og félagsins leggja af mörkum. Hafið öll sömul bestu þakkir fyrir, en það er svona heild sem gerir Val að því öfluga félagi sem Valur er í dag ásamt því einstaklega góða sam- starfi sem er á milli deilda félagsins og er einstakt. Þessu til viðbótar vil ég fá að þakka Guðna Olgeirssyni fyrir ritstjórn og öllum þeim sem komu að efnisöflun og myndatökum á enn einu glæslilega Valsblaðinu sem nú hefur litið dagsins ljós, því áttunda sem Guðni ritstýrir, al- veg ómetanlegt framlag til skráningar á sögu félagsins og til kynningar og varð- veislu heimilda um þróttmikið starf.“ Ánægjuleg þróun í yngri flokkum Um yngri flokka starfið hafði Hörður þetta að segja: „Sérstaklega er ánægju- legt að fylgjast með jákvæðri þróun í starfsemi yngri flokka félagsins. Tölu- verð fjölgun hefur orðið í hópi iðkenda frá árinu 2007 er við fluttum í nýja að- Félagsstarf Afmælisáriðformlega hafiðágamlársdag 2010meðafhjúpun afmælismerkis Samhliða vali á íþróttamanni Vals árið 2010 hófst formlega dagskrá 100 ára afmælisárs félagsins. Hörður Gunnarsson formaður félagins stiklaði á stóru í starfsemi félagsins og bæði hvatti menn til dáða á afmælisárinu og þakkaði fjölmörgum fyrir þeirra störf í þágu félagsins Hátíðarmerki afhjúpað. Fyrsta formlega athöfnin sem fram fór vegna amælisársins var á gamlársdag 2010 þegar hátíðarmerki sem afmælisnefnd félagsins lét gera í tilefni afmælisins var afhjúpað. Á myndinni sjást Grímur Sæmundsen og Ragnheiður Víkingsdóttir sem sæti áttu í afmælisnefndinni afhjúpa merkið og Reynir Vignir formaður afmælisnefndar fylgist með. Valsblaðið2011 11 Starfiðermargt urs hafa verið aðnjótandi fram til þessa. Hrafnhildur er glæsilegur fulltrúi Vals utan vallar sem innan og átti að baki á þessum tíma 127 A-landsleiki fyrir Ís- lands hönd og hafði skorað í þeim 514 mörk og er því bæði leikja- og marka- hæsti leikmaður Íslands frá upphafi. Auk þessa fór Hrafnhildur fremst í hópi jafn- ingja þegar Valur vann sinn þrettánda Ís- Stelpurnar í meistaraflokki fagna ógurlega bikarmeistaratitlinum sumarið 2011 eftir frækinn 2-0 sigur á KR í úrslitaleiknum. Þar með bætti þessi sigursælasti afreksflokkur félagsins síðasta áratuginn enn einum titli í safnið. Sigurbjörn Hreiðarsson fékk í lok tímabilsins sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagsins en hann hefur leikið í 20 keppnistímabil með Val í meistaraflokki og fylgt liðinu m.a. þrisvar í 1. deild en ávallt sýnt félaginu traust og trúnað. Myndin er tekin við það tækifæri á uppskeruhátíðinni í haust. Sigurbjörn er langleikjahæsti leikmaður Vals í meistaraflokki í knattspyrnu í 100 ára sögu félagsins. Friðjón Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar er með Sigurbirni á myndinni. 1B B lack Y ellow M agenta C yan 1112276 V alur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.