Valsblaðið - 01.05.2011, Page 10
8 Valsblaðið2011
Fjölbreytt dagskrá á afmælisárinu
Nú er árið 2011 senn á enda runnið og
Valsmenn geta horft stoltir til baka á þá
ótrúlega fjölbreyttu og vel skipulögðu
viðburði sem félagið skipulagði og kom í
framkvæmd á afmælisárinu. Þegar horft
er til baka koma upp í hugann margir eft-
irminnilegir viðburðir. Hæst ber þó af-
mælishátíðin sem stóð sleitulaust frá
morgni til kvölds allan afmælisdaginn
11. maí og tókst frábærlega í alla staði.
Það má með sanni segja að mikil orka
félagsmanna og starfsfólks hafi farið í að
halda veglega upp á 100 ára afmælið sem
er mikil viðbót við hið hefbundna starf
sem fram fer í félaginu. Ómetanlegt var
framlag afmælis- og minjanefnda félags-
ins við allan undirbúning og framkvæmd
afmælisársins. Undir lok ársins kom út
veglegt og glæsilegt rit, Áfram hærra,
sem inniheldur merka sögu Vals. Bókin
er rituð af Þorgrími Þráinssyni og honum
til aðstoðar var ritnefnd sem sæti eiga í
þau Þorsteinn Haraldsson formaður,
Starfiðermargt
Valurfagnaði100áraafmælinu
meðmargvíslegumhætti
Skýrsla aðalstjórnar 2011
Hörður Gunnarsson formaður Vals fagnar góðum
tilþrifum í úrslitaleikjum í handbolta ásamt fjölda
stuðningsmanna sem veittu bæði karla- og
kvennaliðinu ómetanlegan stuðning.
Fyrirliðar meistaraflokka á 100 ára
afmæli félagsins en á árinu náðu allir
afreksflokar félagsins þeim árangri að
leika í efstu deild. Frá vinstri: Sturla Ás-
geirsson og Íris Ásta Pétursdóttir fyrir-
liðar í handknattleik, Berglind Karen
Ingvarsdóttir og Sigmar Egilsson fyrir-
liðar í körfuknattleik, Málfríður Erna
Sigurðardóttir og Atli Sveinn
Þórarinsson fyrirliðar í knattspyrnu.
Valsblaðið2011 9
Starfiðermargt
kjörinn varaformaður félagsins. Á vor-
dögum tók Haraldur Daði Ragnarsson
viðskiptafræðingur við starfi fram-
kvæmdastjóra af Hirti Frey Vigfússyni
og óskum við honum velfarnaðar í starfi
fyrir okkur Valsmenn.
Erfið fjárhagsstaða
Fjárhagsstaða félagsins hefur verið frekar
erfið á árinu sem helgast af mörgum þátt-
að fjölgað var fulltrúum í aðalstjórn sem
og í stjórnum deilda. Auk formanns
félagsins voru kjörin í aðalstjórn þau
Arna Grímsdóttir, Börkur Edvardsson,
Hafrún Kristjánsdóttir, Stefán Karlsson
og Sveinn Stefánsson ásamt Friðjóni
Friðjónssyni formanni knattspyrnudeild-
ar, Ómari Ómarssyni formanni hand-
knattleiksdeildar og Grími Atlasyni for-
manni körfuknattleiksdeildar. Á fyrsta
fundi stjórnar var Börkur Edvardsson
Guðni Olgeirsson og Hanna Katrín Frið-
riksson. Einnig var gefinn út hljómdiskur
með 17 Valssöngvum og mynddiskur
með völdum myndbrotum úr glæsilegri
afrekssögu félagsins.
Mikið starf aðalstjórnar
Aðalstjórn félagsins fundaði reglulega á
árinu og voru haldnir 11 formelgir fundir
auk nokkurra óformlegra. Á aðalfundi
félagsins sem haldinn var 7. júní var
kjörin ný stjórn félagsins. Í fyrsta sinn til
margra ára kom til þess að kjósa þurfti á
milli frambjóðenda sem telja má jákvætt
þar sem það er merki þess að fleiri vilji
ljá Val krafta sína en áður. Á aðalfundin-
um var lögum félagsins breytt á þann veg
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2011–2012. Efri röð frá vinstri: Friðjón R. Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar, Stefán
Karlsson, Sveinn Stefánsson, Ómar Ómarsson formaður handknattleiksdeildar og Haraldur Daði Ragnarsson framkvæmdastjóri.
Neðri röð frá vinstri: Hafrún Kristjánsdóttir, Hörður Gunnarsson formaður og Arna Grímsdóttir. Á myndina vantar E. Börk
Edvards son og Steindór Aðalsteinsson formann körfuknattleiksdeildar.
Flott uppskera. Fyrirliðar meistaraflokka
sem unnu stóran titil á afmælisárinu. Frá
vinstri. Sturla Ásgeirsson fyrirliði bikar-
meistara Vals í handbolta, Málfríður
Erna Sigurðardóttir fyrirliði bikar-
meistara Vals í fótbolta og Íris Ásta
Pétursdóttir fyrirliði Íslandsmeistara
Vals í handbolta.
1A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1
1112276 V
alur