Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 13
6 Valsblaðið2011
Eftirfarandi eru brot úr erindi Harðar við
það tækifæri. „Það ár sem við nú brátt
kveðjum hefur öðru fremur einkennst
utan vallar af undirbúningi viðburða sem
verða á vegum félagsins á afmælisárinu.
Fjöldi Valsmanna hefur lagt hönd á plóg
með aðkomu að skipulagningu á þeim
fjölmörgu viðburðum sem í boði verða á
þessum merku tímamótum. Stofnuð var á
árinu minjanefnd sem er að vinna ómet-
anlegt starf í söfnun, skráningu og varð-
veislu þeirra muna sem varða glæsta
sögu Vals. Einnig hefur verið starfandi
ritnefnd sem hefur verið Þorgrími Þráins-
syni til halds og traust við skráningu á
sögu félagsins, að ógleymdri afmælis-
nefndinni sem starfað hefur að undirbún-
ingi afmælisársins á annað ár. Öllum
þessu aðilum ásamt þeim fjölmörgu sem
leitað hefur verið ásjár hjá vil ég þakka
ómetanlegt starf fyrir félagið.“
Fyrsti formlegi liðurinn í dagskrá
afmælisársins
Fyrsta formlega athöfnin sem fram fór
vegna amælisársins var afhjúpun hátíðar-
merkis sem afmælisnefndin hefur látið
gera í tilefni afmælisins.
Jafnframt voru framleidd barmmerki
með sama merki og voru þau gefin félags-
mönnum. Einnig var framleitt dagatal þar
sem merktir voru helstu viðburðir afmæl-
isársins. Reynir Vignir formaður afmælis-
nefndar greindi lauslega frá viðburðum af-
mælisársins og afhjúpaði síðan afmælis-
merkið með félögum sínum úr
afmælisnefndinni og var þetta fyrsti form-
legi liðurinn í dagskrá afmælisársins.
Blómlegt félagsstarf að Hlíðarenda
Hörður formaður hafði þetta að segja um
félagsstarfið. „Það má segja að félags-
starf blómstri á Hlíðarenda um þessar
mundir og allir eiga að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi og víst er að við þurf-
um að öllum vinnufúsum höndum að
halda til að mæta þeim væntingum og
kröfum sem til okkar eru gerðar. Öflug
foreldrafélög eru í mörgum flokkum,
Fálkarnir stuðningsfélag við barna- og
unglingastarf félagsins eiga sérstakar
þakkir skildar fyrir þeirra öfluga starf og
stuðning á árinu, það sama má segja um
þá fjölmörgu einstaklinga sem ávallt eru
boðnir og búnir til að leggja félaginu lið
hvort sem er í kringum umsjón með
heimaleikjum eða hverju öðru sem eftir
er leitað. Fulltrúaráðið starfar með mikl-
um blóma og fundar reglulega, sama má
segja um getraunastarfið sem sjaldan hef-
ur verið öflugra, haldin eru glæsileg
bridge- og skákmót ásamt golfmóti svo
eitthvað sé nefnt fyrir utan það mikla
nefndarstarf sem viðkemur amælisárinu
og áður var getið að ógleymdu því mikla
starfi sem stjórnir deilda og félagsins
leggja af mörkum. Hafið öll sömul bestu
þakkir fyrir, en það er svona heild sem
gerir Val að því öfluga félagi sem Valur
er í dag ásamt því einstaklega góða sam-
starfi sem er á milli deilda félagsins og er
einstakt. Þessu til viðbótar vil ég fá að
þakka Guðna Olgeirssyni fyrir ritstjórn
og öllum þeim sem komu að efnisöflun
og myndatökum á enn einu glæslilega
Valsblaðinu sem nú hefur litið dagsins
ljós, því áttunda sem Guðni ritstýrir, al-
veg ómetanlegt framlag til skráningar á
sögu félagsins og til kynningar og varð-
veislu heimilda um þróttmikið starf.“
Ánægjuleg þróun í yngri flokkum
Um yngri flokka starfið hafði Hörður
þetta að segja: „Sérstaklega er ánægju-
legt að fylgjast með jákvæðri þróun í
starfsemi yngri flokka félagsins. Tölu-
verð fjölgun hefur orðið í hópi iðkenda
frá árinu 2007 er við fluttum í nýja að-
Félagsstarf
Afmælisáriðformlega
hafiðágamlársdag
2010meðafhjúpun
afmælismerkis
Samhliða vali á
íþróttamanni Vals árið
2010 hófst formlega
dagskrá 100 ára
afmælisárs félagsins.
Hörður Gunnarsson
formaður félagins stiklaði
á stóru í starfsemi
félagsins og bæði
hvatti menn til dáða á
afmælisárinu og þakkaði
fjölmörgum fyrir þeirra
störf í þágu félagsins
Valsblaðið2011 11
Starfiðermargt
urs hafa verið aðnjótandi fram til þessa.
Hrafnhildur er glæsilegur fulltrúi Vals
utan vallar sem innan og átti að baki á
þessum tíma 127 A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd og hafði skorað í þeim 514
mörk og er því bæði leikja- og marka-
hæsti leikmaður Íslands frá upphafi. Auk
þessa fór Hrafnhildur fremst í hópi jafn-
ingja þegar Valur vann sinn þrettánda Ís-
Stelpurnar í meistaraflokki fagna ógurlega bikarmeistaratitlinum sumarið 2011 eftir frækinn 2-0 sigur á KR í úrslitaleiknum. Þar
með bætti þessi sigursælasti afreksflokkur félagsins síðasta áratuginn enn einum titli í safnið.
Sigurbjörn Hreiðarsson fékk í lok
tímabilsins sérstaka viðurkenningu fyrir
framlag sitt til félagsins en hann hefur
leikið í 20 keppnistímabil með Val í
meistaraflokki og fylgt liðinu m.a.
þrisvar í 1. deild en ávallt sýnt félaginu
traust og trúnað. Myndin er tekin við það
tækifæri á uppskeruhátíðinni í haust.
Sigurbjörn er langleikjahæsti leikmaður
Vals í meistaraflokki í knattspyrnu í 100
ára sögu félagsins. Friðjón Friðjónsson
formaður knattspyrnudeildar er með
Sigurbirni á myndinni.
1B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur