Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 15
4 Valsblaðið2011
Viðurkenningar
Íþróttamenn Vals frá upphafi
2010
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, handknattleikur
2009
Dóra María Lárusdóttir, knattspyrna
2008
Katrín Jónsdóttir, knattspyrna
2007
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2006
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2005
Bjarni Ólafur Eiríksson, knattspyrna
2004
Berglind Íris Hansdóttir, handknattleikur
2003
Íris Andrésdóttir, knattspyrna
2002
Sig ur björn Hreið ars son, knatt spyrna
2001
Rósa Júl ía Stein þórs dótt ir, knatt spyrna
2000
Krist inn Lár us son, knatt spyrna
1999
Ás gerður Hild ur Ingi bergs dótt ir, knatt spyrna
1998
Guðmund ur Hrafn kels son, hand knatt leik ur
1997
Ragnar Þór Jónsson, körfuknattleikur
1996
Jón Kristjánsson, handknattleikur
1995
Guðrún Sæmundsdóttir, knattspyrna
1994
Dagur Sigurðsson, handknattleikur
1993
Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1992
Valdimar Grímsson, handknattleikur
Íþróttamaður Vals hefur verið valinn frá
árinu 1992. Það er árviss viðburður hjá
Val að útnefna íþróttamann ársins í hófi
að Hlíðarenda á gamlársdag. Íþróttamað-
ur Vals er valinn af formönnum deilda,
formanni félagsins og Halldóri Einars-
syni (Henson) sem er gefandi verðlauna-
gripanna. Samtals hafa 11 knattspyrnu-
menn hlotið titilinn, 6 handknattleiks-
menn og 1 körfuknattleiksmaður. 9
sinnum hefur leikmaður karlaliðs verið
valinn og 9 sinnum leikmaður kvennaliðs
orðið fyrir valinu. Þessi athöfn fór fram í
veislusal Vals að Hlíðarenda að við-
stöddu óvenju miklu fjölmenni enda
markaði þessi viðburður upphafið að af-
mælisdagskrá í tengslum við 100 ára af-
mæli félagsins sem haldið var upp á með
margvíslegum hætti 2011.
Hörður Gunnarsson formaður Vals hélt
ávarp við þetta tækifæri og sagði m.a.:
„Árið 2010 hefur verið Knattspyrnu-
félaginu Val gjöfult utan vallar sem inn-
an eins og vænta má af félagi sem orðið
er Fyrirmyndarfélag innan ÍSÍ. Sá árang-
ur sem hæst bar á árinu hjá meistara-
flokkum félagsins var Íslands- og bikar-
meistaratitill meistaraflokks kvenna í
knattspyrnu og var það annað árið í röð
sem kvennalið Vals vann tvöfalt, og vann
félagið alla þá fimm titla sem í boði voru.
Einnig varð Valur Íslandsmeistari í hand-
knattleik kvenna eftir 27 ára bið og er fé-
lagið nú handhafi fjögurra af þeim 5 titl-
um sem leikið er um. Einnig vann Valur
til þriggja silfurverðlauna og var því í
baráttu um samtals sex stóra titla á árinu.
Íslandsmeistaratitill kvenna í knattspynu
var sá tíundi sem Valur vinnur og fimmta
árið í röð. Bikarmeistaratitillinn var tólfti
titill Vals en Valur hefur orðið bikar-
meistari kvenna oftast allra félaga. Ís-
landsmeistaratitillinn var svo 100. titill-
inn sem Valur hampar í sínum hefð-
bundnu greinum eða oftar en nokkurt fé-
lag á Íslandi.
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
íþróttamaður Vals 2010
Ágætu Valsmenn þá er komið að útnefn-
ingu íþróttamanns Vals árið 2010.
Íþróttamaður Vals 2010 er glæsilegur
fulltrúi félagsins utan vallar sem innan
og einstaklega góð fyrirmynd. Íþrótta-
maður Vals 2010 á að baki 127 A-lands-
leiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í
þeim 514 mörk og er því bæði leikja- og
markahæsti leikmaður Íslands frá upp-
hafi. Íþróttamaður ársins á hvað stærstan
þátt einstakra leikmanna í því að Ísland
lék nú í haust í fyrsta sinn á lokakeppni
EM. Íþróttamaður Vals fór fremstur í
hópi jafningja þegar Valur varð deildar-
meistari og vann síðan þrettánda Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik kvenna
eftir 27 ára bið ásamt tveimur öðrum titl-
um á árinu. Íþróttamaður Vals árið 2010
er Hrafnhildur Ósk Skúladóttir.“
HrafnhildurÓsk
Skúladóttir
leikmaðuríhandknattleikog
fastamaðurílandsliðinuer
íþróttamaðurVals2010
Valsblaðið2011 13
Starfiðermargt
menn að þekkja vel söguna. Þörf er á að
nefndin starfi áfram um ókomna tíð enda
verkefnin nánast óþrjótandi. Minjanefnd-
in lýtur forustu Magnúsar Ólafssonar en
aðrir í nefndinni eru þau Úlfar Másson,
Ólafur Már Sigurðsson, Kristján Ásgeirs-
son, Helgi Benediktsson, Margrét Braga-
Öflugt starf afmælisnefndar
Eins og eðlilegt er markaðist starf félags-
ins á árinu mjög af þeim tímamótum sem
Valur stendur á. Fjölbreytt afmælisdag-
skrá hefur staðið yfir allt afmælisárið og
hafa viðburðir verið mjög fjölsóttir og
fjölbreyttir þar sem eitthvað hefur verið
fyrir alla aldurshópa bæði til skemmtun-
ar og fróðleiks. Ég vil nota tækifærið og
þakka afmælisnefndinni sem var undir
stjórn Reynis Vignis kærlega fyrir ómet-
anlegt framlag þeirra og þá víðsýni sem
nefndin sýndi við ákvörðun efnisþátta.
Auk Reynis voru í nefndinni þau Ragn-
heiður Víkingsdóttir, Halldór Einarsson,
Grímur Sæmundsen og Karl Axelsson.
Frábært starf minjanefndar
Minjanefnd Vals skilaði frábæru starfi á
afmælisárinu sem lauk með uppsetningu
á glæsilegri sögusýningu þar sem saga
félagsins er rakin í máli og myndum og
með framsetningu á merkum gripum sem
fylgt hafa Val og eru hluti af sögu félags-
ins. Félag sem heldur ekki vel utan um
þróun og sögu sína verður aldrei öflugt
félag enda er mikill styrkur fyrir félags-
landsmeistaratitil í handknattleik kvenna
eftir 27 ára bið ásamt tveimur öðrum titl-
um árið 2010.
Valsorðan veitt 8 heiðursmönnum. Hörður Gunnarsson, formaður Vals (t.v.) og Reynir Vignir, formaður afmælisnefndar (t.h.), veittu
heiðursmönnunum Valsorðuna á 100 ára afmælishátíðinni 11. maí: Frá vinstri: Hörður Gunnarsson, Torfi Magnússon, Björn Zoëga,
Jafet S. Ólafsson, Karl Axelsson, Karl Jónsson, Stefán Gunnarsson, Svanur Gestsson og Reynir Vignir. Á myndina vantar Hermann
Gunnarsson en hann fékk Valsorðuna afhenta á herrakvöldi Vals.
Íþróttamaður Vals 2011, Hrafnhildur
Ósk Skúladóttir, ásamt systrum sínum
Dagnýju t.v. og Rebekku t.h. með Ís-
landsmeistarabikarinn 2011 sem Valur
fékk annað árið í röð.
Ungur iðkandi kemur með glæsilega
köku að heiman á hlaðborðið á sam-
eiginlega uppskeruhátíð handboltans og
körfuboltans og vakti hún verðskuldaða
athygli. Borðin svignuðu undan glæsi-
legum veitingum sem foreldrar sáu um.
1A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
1
11
12
27
6
V
al
ur