Valsblaðið - 01.05.2011, Page 23

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 23
Valsblaðið 2011 21 Starfið er margt þjónustunnar og hef verið í stjórn Sam- taka atvinnulífsins fyrir hönd SAF í nokkur ár og nú síðustu tvö árin verið varaformaður stjórnar SA. Vægi SA hef- ur vaxið mikið sérstaklega eftir banka- hrunið. Það eru mjög krefjandi verkefni á þeim vettvangi og erfið úrlausnar. Ég er þeirrar skoðunar að efnahagskreppan sem við búum við nú sé heimatilbúin og stjórnvöld séu því miður ekki að standa sig í stykkinu við að leiða okkur út úr þeim ógöngum. En í störfum á þessum vettvangi nýt ég félagslegrar reynslu úr starfi mínu fyrir Val. Það kemur manni alltaf að góðum notum að hafa verið virkur í íþrótta- og félagsstarfi – ég tala nú ekki um hjá jafnfrábæru félagi og Knattspyrnufélag- inu Val.” verið að Hlíðarenda, er rétta tækið í þetta verkefni. Við þurfum samt að vera þolin- móð næstu árin til að sjá eðlilega endur- nýjun á Valsmönnum í afreksliðum félagsins en ég er sannfærður um að þeir tímar koma. Hluti af þessari framtíðarsýn er íbúðabyggð á byggingareitum Vals- manna hf á Hlíðarendareit og það verður að sjálfsögðu Valssvæði.” Í forystu fyrir Samtök atvinnulífsins Eftir að þú hættir uppbyggingu að Hlíð- arenda sem formaður Vals fyrir tveimur árum er þá íslenskt samfélag næst á dag- skrá? „Það er svo að ég dróst inn í félagstarf í atvinnulífinu í gegnum Samtök ferða- Sú hugmynd að taka yfir íþróttastarf- semi í miklu fjölmennari eystri byggðum borgarinnar er efnislega alveg jafn gild í dag eins og hún var þegar við Valsmenn vorum að vinna að henni fyrir rúmum tíu árum síðan. Í þessu efni má benda á að Knatt- spyrnufélagið Fram er nú með starfsemi á tveimur stöðum – í Safamýri og í Graf- arholti – og hafa Framarar þar nýtt sér þær grunnhugmyndir sem við settum fram um flutning Vals í Grafarvog. En við getum verið sáttir við stöðuna, eins og hún er nú á 100 ára afmæli Vals. Félagið á nú að Hlíðarenda skuldlaust glæsilegustu íþróttamannvirki landsins, sem eru grunnur frekari félagslegra land- vinninga.” Barna- og unglingastarfið mikilvægast Hver telur þú mikilvægustu verkefni Vals nú þegar félagið horfir til næstu aldar í starfsemi sinni? „Mikilvægast er að tryggja félagslega endurnýjun í Val. Við þurfum að laða að félaginu börn og unglinga sem geta þroskast sem afreksmenn í þeim greinum sem stundaðar eru innan Vals en einnig verðum við að breikka stuðningsmanna- grunninn og fá hæfa einstaklinga til félagslegrar forystu. Það er ljóst að við eigum töluvert í land til að ná þeim iðkendafjölda, sem við teljum ásættanlegan, ef við berum okkur saman við önnur félög í borginni t.d. KR og Fjölni eða í nágrannasveitar- félögum t.d. Breiðablik og FH. Hin frá- bæra íþróttaaðstaða, sem sköpuð hefur Grímur þótti harður í horn að taka, lék sem miðvörður og var fyrirliði öll árin í yngri flokkunum. Í meistaraflokki lék hann stöðu vinstri bakvarðar og var fyrirliði Vals frá 1981–1985. Grímur endaði feril sinn með því að fagna Íslandsmeistaratitli árið 1985. Grímur með afastrákinn og nafna sinn Grím Goða, sem að sjálfsögðu hefur verið skráður í Val. 28 Valsblaðið 2011 Starfið er margt 4. flokkur karla Þjálfari: Maksim Akbachev Hópurinn var fámennur í vetur en með hjálp frá strákunum úr 5. flokki gekk vel að manna æfingarnar. Engu að síður lentu strákarnir í 5. sæti í annarri deild og spiluðu á tíma eins og meistarar. Þetta eru flottir strákar sem geta með mikilli vinnu orðið flottir handboltamenn. Mestu framfarir: Guðmundur Steinn Kjeld Besta ástundun: Björn Tómasson Leikmaður flokksins: Guðmundur Þórir Hjaltason 4. flokkur kvenna Þjálfarar: Karl Guðni Erlingsson og Jó- hannes Lange 4. fl. kvenna samanstendur af 13 stelp- um sem eru mjög öflugar sem hópur bæði innan og utan vallar. Árangur flokksins í vetur var mjög góður, en liðið spilaði í 1. deild þar sem keppnin um þrjú efstu sætin var mjög hörð framan af vetri en vegna nokkurra ástæðna varð það okkar hlutskipti að enda í þriðja sæti í deildarkeppninni þar sem liðið spilaði 21 leik, unnu 12, gerðu 3 jafntefli og töp- uðu 6. Liðið fór svo í úrslitakeppni og komst í undanúrslit en töpuðu fyrir sterku liði Selfyssinga sem síðar urðu Íslands- meistarar. Flokkurinn tók einnig þátt í Eimskipsbikarkeppninni og þar komst liðið einnig í undanúrslit en þurftu að sætta sig við tap eftir framlengdan leik við ÍBV á útivelli. Það er ljóst að þessar stelpur eiga framtíðina fyrir sér ef þær sinna íþróttinni vel og ef þær gera það þá er líklegt að þær eigi eftir að skila sér alla leið upp í meistaraflokk félagsins. 2A B lack Y ellow M agenta C yan 2 1112276 V alur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.