Valsblaðið - 01.05.2011, Page 40
38 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Barna- og unglingaráð
var stofnað í Val í
marsmánuði árið
2009 að frumkvæði
undirritaðrar, en eftir
að skipulagsbreytingar
höfðu átt sér stað í
félaginu árið 2007
var ekkert ráð af
þessu tagi starfrækt
Strax í upphafi var lagt til að í ráðinu væru
níu foreldrar barna úr öllum greinum,
þremur úr hverri grein og hefur verið leit-
ast við að í ráðinu séu foreldrar bæði
stelpna og stráka í félaginu. Á þeim tíma
sem liðinn er frá stofnun ráðsins hefur það
nánast verið skipað sömu einstaklingum
sem öll hafa verið virk í foreldrastarfi í
flokkum barnanna sinna, þau eru; Anton
Karl Jakobsson, Auður Þórarinsdóttir, Elf-
ur Sif Sigurðardóttir, Guðni Olgeirsson,
Halldóra Ósk Sveinsdóttir, Jón Gunnar
Bergs, Matthías Matthíasson, Sigurður
Tómas Magnússon og Sigþór Sigurðsson.
Ingvaldur Ingvaldsson kom fljótlega inn í
ráðið í stað Sigurðar Tómasar og þá hefur
Matthías sagt skilið við ráðið.
Ráðið er hugsað sem tengiliður for-
eldraráða flokkanna við yfirmann barna-
og unglingasviðs, er ráðgefandi fyrir
starfið og er upplýst um stöðu mála í fé-
laginu. Ráðið hefur verið ráðgefandi í
málefnum íþróttaskóla, um fjölgreinaæf-
ingar, tengsl barna- og unglingastarfs við
afreksstarfið, félagsstarf og fjáröflunar-
mál svo að eitthvað sé nefnt. Þá aðstoðar
ráðið við ýmsar uppákomur m.a. upp-
skeruhátíðir deildanna, Skólaleika Vals
og þjálfarafundi. Yfirmaður barna- og
unglingasviðs upplýsir foreldra um stöðu
mála í félaginu, tekur reglulega saman
iðkendatölur, boðar til funda og heldur
utan um dagskrána.
Fylgst hefur verið náið með iðkendatöl-
um á hverri önn frá hausti 2007 og hefur
talsverð fjölgun átt sér stað á þeim tíma
sjá mynd 1. Fjöldi iðkenda haustið 2007
var 543, en fjölgunin hefur verið jafnt og
þétt og er nú komin í 720 iðkendur. Í þess-
ari tölu eru ekki iðkendur í íþróttaskólan-
um en þeir eru um 80 á hverri önn.
Þegar fjöldi iðkenda er skoðaður eftir
íþróttagreinum þá er fótboltinn fjölmenn-
astur og eru fleiri í fótbolta en samanlagt
í handbolta og körfubolta. Hlutfallslega
hefur mesta fjölgunin orðið í handbolta
en einnig hefur talsverð fjölgun orðið í
fótbolta. Þá sveiflast fjöldinn í körfunni
nokkuð á milli anna.
Félagið tekur við nýjum iðkendum all-
an ársins hring og getur tekið við tals-
verðum fjölda nýrra iðkenda í viðbót. Þá
má geta þess að iðkendur sem eru í
tveimur greinum fá 10% afslátt af hvorri
grein fyrir sig. Knattspyrnufélagið Valur
býður alla nýja iðkendur sérstaklega vel-
komna.
Ragnhildur Skúladóttir yfirmaður
barna- og unglingasviðs Vals
Barna- og unglingaráð Vals
Barna- og unglingaráð 2011. Frá vinstri: Elfur Sif Sigurðardóttir, Auður Þórarins-
dóttir, Jón Gunnar Bergs, Sigþór Sigurðsson, Ingvaldur Ingvaldsson, Ragnhildur
Skúladóttir og Guðni Olgeirsson. Á myndina vantar Anton Karl Jakobsson og Hall-
dóru Ósk Sveinsdóttur.
Mynd 1. Fjöldi iðkenda á barna- og unglingasviði frá hausti
2007 til hausts 2011.
Mynd 2. Sýnir fjölda iðkenda á barna- og unglingasviði eftir
greinum frá hausti 2007 til hausts 2011.
Valsblaðið 2011 43
Starfið er margt
Dagana 8.–20. ágúst var handboltaskóli
Vals haldinn að Hlíðarenda með mikilli
þátttöku barna og unglinga sem æfðu und-
irstöðuatriði boltans og skemmtu sér vel.
Skólinn var þrískiptur en frá 9.00–12.00
voru krakkar á aldrinum 6–12 ára, 12.30–
14.00 voru 7. og 8. bekkur (5. fl. karla og
kvenna) og 14.30–16.00 9. og 10. bekkur
(4. fl. karla og kvenna). Hóparnir eftir há-
degi voru í 2 vikur og gaman var að sjá að
um 45 krakkar mættu þar.
Hjá yngri hópnum var boðið upp á eina
eða tvær vikur og í fyrri vikunni voru um
40 krakkar og í seinni um 60 krakkar.
Yngri hópurinn var það fjölmennur að
það þurfti að þrískipta enda býður að-
staðan á Hlíðarenda upp á að tekið sé á
móti stórum hópi. Það voru því um 150
krakkar sem sóttu námskeiðin hjá okkur í
ár sem er glæsileg þátttaka. Greinilegt að
krakkarnir eru hrifnir af að byrja hand-
boltann örlítið fyrr eftir frí í júní og júlí.
Reyndir leiðbeinendur sáu um námskeið-
in en þeir Karl Erlingsson, Anton Rún-
arsson og Arnar Daði Arnarsson voru
með yfirumsjón og fengu aðstoð frá Al-
exander Júlíussyni, Atla Má og Bryndísi
Bjarnadóttur.
Óskar Bjarni Óskarsson skráði
Vel heppnaður
handboltaskóli
Vals 2011
Faxafeni 11, Reykjavík, s. 534 0534,
www.partybudin.is partybudin@partybudin.is
Velkomnir
Valsarar!
29. des (16:00 – 22:00)
30. des (14:00 – 22:00)
31. des: Gamlársdag (10:00 – 16:00)
3B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur