Valsblaðið - 01.05.2011, Page 43
40 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
„Samtakamáttur félaga í Val hefur allar
götur frá stofnun félagsins gert því kleift
að halda úti fjölbreyttu starfi. Grunngildi
félagsins hafa þjappað félagsmönnum
saman og skapað þá samkennd sem ein-
kennt hefur Val frá upphafi. Við höfum
alltaf haft á að skipa framsýnum stjórnar-
mönnum og sjálfboðaliðum sem í gegn-
um tíðina hafa verið tilbúnir að leggja á
sig ómælda vinnu fyrir félagið,“ segir
Hörður Gunnarsson formaður Knatt-
spyrnufélagsins Vals.
Allt frá í barnæsku hefur Hörður verið
Valsmaður. Hann er reyndar fæddur og
uppalinn austur á Fáskrúðsfirði og var
sem strákur í Ungmennafélaginu Leikni
sem lék í hvítum og rauðum búningum.
„Rautt og hvítt hafa alltaf verið mínir litir
í íþróttum. Valur átti þegar ég var strákur
góða leikmenn og fyrirmyndir sem föng-
uðu hugann. Sigurður Dagsson, Hermann
Gunnarsson og fleiri í knattspyrnu og síð-
an Ólafur H. Jónsson, Ólafur Benedikts-
son og allir þeir í handboltanum. Ég fylgd-
ist með þeim í gegnum útvarpslýsingar og
síðan í blöðum,“ segir Hörður.
„Eitt fyrsta veðmálið sem ég vann var
þegar ég spáði fyrir um leik Vals og Ben-
fica 1968 en þótti þó ekki spámannlega
vaxinn – ekki fyrr en flautað hafði verið
til leiksloka! Ég sá Val fyrst leika í bikar-
keppni þegar þeir komu austur á land og
unnu Þrótt Neskaupsstað 15:0 að mig
minnir. Var fæstum skemmt ef ég er frá-
talinn enda hélt ég einn með Val í þess-
um leik.“
Hörður lagði sem ungur maður stund á
körfuknattleik og æfði með Val í ein þrjú
ár eftir að hann kom til Reykjavíkur í
nám. Í framhaldinu lá leiðin í félagsmál-
in; fyrst var á vettvangi körfuknattleiks-
deildar en síðan tók Hörður sæti í aðal-
stjórn Vals hvar hann starfaði með tveim-
ur formönnum, Reyni Vigni og Grím
Sæmundsen. Var svo kjörinn formaður
félagsins fyrir tveimur árum og í það
heila spanna stjórnarstörf Harðar fyrir
Val tæpan aldarfjórðung.
Hlíðarendi á að vera hornsteinn
æskulýðs- og tómstundastarfs
í félagshverfinu sínu
Viðtal við Hörð Gunnarsson formann Vals í Morgunblaðinu
í tilefni af 100 ára afmæli félagsins
Valsblaðið 2011 41
Starfið er margt
rekstri. Eðlileg skylda íþróttafélags er að
vinna að fjölbreyttum markmiðum með
börnum og unglingum, skapa þeim ákjós-
anlegan vettvang til að þroska félagsfærni
sína en jafnframt því að ástunda heil-
brigða keppni í íþróttum með það að
markmiði að ná sem bestum árangri. Hlíð-
arendi er og á að vera staður þar sem kyn-
slóðir mætast, standa saman og vinna að
sameiginlegum markmiðum, jafnframt því
að vera hornsteinn æskulýðs- og tóm-
stundastarfs í félagshverfinu sínu. Valur
hefur ríkar samfélagslegar skyldur og
sinnir þeim á margvíslegan hátt.“
Sjálfboðaliðastarf er hryggjarstykkið í
starfi sérhvers íþróttafélags. Hörður
bendir þar á að margir leggi starfi Vals
lið, bæði úr röðum foreldra og almennir
félagsmenn – sem hverjir leggi af mörk-
um hundruð klukkustunda á ári hverju til
hagsbóta fyrir nærumhverfi sitt og sam-
félagið í heild. Þessu fólki verði framlag-
ið aldrei nægjanlega þakkað.
„Það er lögð mikil áhersla á að auka
menntun og færni þjálfara, gera starfið
allt faglegra og auka við uppeldislega
þætti í íþróttastarfinu. Við höfum sérstak-
lega lagt okkur eftir því að tryggja jafnan
hlut kynjanna, bæði þegar kemur að
fjölda æfinga, æfingatímum, menntun
þjálfara og við reynum að virkja jafnt
karla sem konur til ábyrgðarstarfa. For-
varnir og áhersla á heilbrigðan lífsstíl
iðkenda er alltaf að verða viðameiri í
starfi okkar. Það er ábyrgðarhluti að sjá
um íþróttalegt uppeldi barna og unglinga
svo vanda þarf til verka.“
Í dag eru eru hátt á þriðja þúsund
skráðir félagar í Val, en ekki greiðir allur
sá fjöldi félagsgjöld að jafnaði. Iðkend-
um yngri flokka hefur stöðugt fjölgað en
Þeir sem þekkja sögu Vals vita að fyrir
starf frumkvöðla getur Valur státað af
einstaklega góðri aðstöðu á Hlíðarenda –
sem hefur frá árinu 1939 verið miðpunkt-
urinn í öllu starfi Vals. Þá markaði það
tímamót í starfsemi Vals þegar félagið
gerði samning við Reykjavíkurborg árið
2002 hvar gengið var frá framtíðarskipu-
lagi íþróttasvæðisins á Hlíðarenda og fé-
lagið ásamt borginni seldi hluta lands-
svæðis síns til fjármögnunar á nýjum
íþróttamannvirkjum sem og til upp-
greiðslu skulda.
„Þessi samningur og salan á landinu
markaði straumhvörf í starfi Vals. Við,
ólíkt flestum öðrum íþróttafélögum, eig-
um félagssvæði okkar og höfum að
stórum hluta staðið straum af kostnaði
við uppbyggingu íþróttamannvirkja og
félagsaðstöðu á svæðinu,“ útskýrir Hörð-
ur sem segir starfsemi Vals rekna með
líku lagi og fyrirtæki – enda þó afreks-
svið félagsins og svo barna- og unglinga-
svið séu aðskilin.
Meistaraflokkar félagsins eru í raun
reknir eins og fyrirtæki en þar eru tekjur
og gjöld hæst. Auglýsingatekjur, styrkir
og innkoma á leiki eru helstu tekjuliðir
meistaraflokka. Það er því miður enn út-
breiddur misskilningur að færðar séu
tekjur frá yngri flokkum til reksturs
meistaraflokka.
„Æfingagjöld sem greidd eru í barna og
unglingaflokka standa engan veginn undir
kostnaði. Það kostar 80 til 90 þúsund á ári
að hafa barn í íþróttum, það er kostnaður
íþróttafélagsins við laun þjálfara, húsnæði
og fleira Æfingagjöld sem foreldrar greiða
ná að standa undir um helming þess,
styrkur kemur á móti að nokkru en af-
ganginn þarf félagið að fjármagna úr eigin
á því svæði sem félagið hefur helgað sér
eru þrír grunnskóla, það er Austurbæjar-
skóli, Hlíðaskóli og Háteigsskóli ásamt
Ísaksskóla. Einnig stendur aðstaðan á
Hlíðarenda t.d. leikskólum í hverfinu til
boða og stunda um 800 krakkar reglu-
bundnar æfingar hjá félaginu.
Mikið hefur verið byggt upp á Vals-
svæðinu síðustu árin; svo sem glæsilegur
knattspyrnuvöllur og Vodafone-höllin
sem er eitt af stæstu íþróttahúsum lands-
ins. Þar verður þó ekki látið staðar numið
enda hafa Valsmenn nú sett stefnuna á
byggingu knatthúss. Miðað við ástandið í
þjóðfélaginu getur það, að sögn Harðar,
virst fjarlægur draumur og næstu misseri
verða því notuð til undirbúnings auk
heldur sem kannað verður hvort húsið
verður byggt í samvinnu við aðra aðila
eða félög.
„Þó svo að við séum ekki elsta íþrótta-
félag landsins er það óumdeilt að Valur er
sigursælasta félag landsins í þeim hefð-
bundnu boltagreinum sem félagið keppir
í,“ segir Hörður. „Síðustu ár hafa verið
óslitin sigurganga hjá félaginu og við höf-
um árlega hampað 25–30% af þeim titl-
um sem félagið keppir um og samtals 102
Íslands- og bikarmeistaratitlum frá upp-
hafi, en sá fyrsti kom í hús 1930 eða 19
árum eftir stofnun Vals. Það sem af er af-
mælisári hefur félagið hampað sjö titlum
og það er einstök hvatning fyrir alla þá
fjölmörgu sem taka þátt í daglegu starfi í
Val. Á afmælisárinu getur Valur státað af
því að allir meistaraflokkar félagsins,
bæði karlar og konur, keppa í efstu deild-
um. Ég er bjartsýnn á gengi liða okkar í
næstunni enda við hæfi að vænta slíks á
tímamótum í starfi félagsins.“
Valsmenn léttir í lund.
Líf og fjör á Hlíðarenda
3A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
3
1112276 V
alur