Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 49
34 Valsblaðið 2011
ið í yngri flokkunum hjá Val í körfu-
bolta? „Það er mikilvægt að hugsa vel
um unga og efnilega leikmenn.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Ég hef nú ekkert mikla framtíðardrauma
í körfubolta. Í lífinu er það bara að lifa
skemmtilegu lífi. Eftir 10 ár held ég að
ég verði ekkert í kafi í körfubolta bara í
meistaraflokki Vals og að lifa skemmti-
legu lífi.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera til
að efla körfuboltann hjá Val? „Fá fleiri
góða íslenska leikmenn í liðið. Meistara-
flokk karla gengur ekkert mjög vel og
eru í neðsta sæti en kvennaliðinu gengur
betur og eru um miðja deild.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson, 11. maí 1911.“
Víðir hefur æft körfubolta frá því að
hann var 10 ára og hann valdi Val aðal-
lega af því að það var hverfisliðið hans.
Honum fannst mjög gaman að vera val-
inn leikmaður yngri flokka á uppskeruhá-
tíðinni í vor og segist ekki hafa búist við
að fá fyrra viðurkenningu, „en þegar
Lýður sagði nafnið mitt varð ég mjög
ánægður og þetta þýðir að ég hef verið
að æfa mikið og leggja mig fram í því
sem ég er að gera,“ segir Víðir.
Hvernig gekk ykkur síðastliðinn vet-
ur? „Okkur gekk ágætlega síðasta vetur.
Unnum C riðil og komumst í 8 liða úrslit
í bikarnum, töpuðum bara með 2 stig-
um.“
Hvers vegna heldur þú að unglingar
hætti að æfa íþróttir? „Ég held að flest-
ir unglingar hætti að æfa vegna þess að
það verður svo mikið að gera í skólanum
og félagslífið verður miklu meira og þeir
vilji ekki missa út úr.“
Hvernig er hópurinn núna í vetur?
„Hópurinn í ár er mikið breyttur frá því í
fyrra, það eru búnir að bætast margir nýir
leikmenn í hópinn. Það er kominn meiri
breidd í hópinn og okkur gengur ágætlega.
Unnum B riðil í fyrstu tilraun. Þjálfararnir
eru skemmtilegir.“
Skemmtileg atvik úr boltanum. „Ég
man eftir einu atriði sem gerðist í fyrra
en þá vorum við að spila á Akureyri og
ég náði að skora frá miðju í leik.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í körfu-
boltanum? „Ég á engar sérstakar fyrir-
myndir en uppáhalds körfuboltaleikmað-
urinn minn er Carmelo Anthony.“
Hvað þarf til að ná langt í körfubolta
eða íþróttum almennt? „Það er að mæta
á allar æfingar og leggja sig fram í öllu
sem maður gerir. Ég þarf helst að vera
meira ákveðinn þegar ég spila. Ég er oft-
ast alltof rólegur inn á vellinum.“
Hvers vegna körfubolti? „Ég valdi
körfubolta af því að mér fannst hann
skemmtilegastur af öllum íþróttagreinun-
um. Ég hef æft fótbolta, handbolta og
fimleika.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá fjölskyldunni? „Stuðningur
foreldra er mjög mikilvægur. Ég hef
fengið mjög góðan stuðning frá foreldr-
um mínum, þau styðja mig í öllu sem ég
geri og mæta á marga leiki.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
Ungur Valsari
Mikilvægt að hugsa
vel um unga og
efnilega leikmenn
Víðir Tómasson er 16 ára og leikur körfubolta
með 11. flokki og drengjaflokki
Hallveig og Ragnheiður
æfa með U18 í körfu
Valur.is hefur á undanförnum dögum birt fréttir af landsliðsfólkinu okkar í körfu-
bolta. Nú hafa hefur Jón Halldór Eðvaldsson tilkynnt æfingahóp U18 ára lands-
liðs kvenna og í hópnum eru tvær Valsstelpur þær Ragnheiður Benónísdóttir og
Hallveig Jónsdóttir. Sjá má allan hópinn á http://kki.is/frettir.asp?ad-
gerd=ein&id=7230. Hér fyrir neðan eru nöfn þeirra sem hafa verið tilnefnd upp
á síðkastið.
A-landslið kvenna: Hallveig, Kristrún, María Ben, Guðbjörg
u-16 kvenna: Margrét og Elsa
u-16 karla: Hlynur Logi
u-18 kvenna: Hallveig og Ragnheiður
Af www.valur.is
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1–3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
Leitaðu ráða hjá okkur. Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum deildum. Við veitum faglega
og vandaða ráðgjöf og finnum réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir. Við seljum eingöngu
þrautreyndar hágæðavörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
12
8
86
DEVOLD
FYRIR ÍÞRÓTTAFÓLK
9.490 KR.9.490 KR.
9.490 KR. 8.990 KR.
DEVOLD ACTIVE BOLUR
DEVOLD EXPEDITION
BOLUR
DEVOLD EXPEDITION
BUXUR DEVOLD ACTIVE BUXUR
KK og KVK, einnig
til án renniláss
KK og KVK, margir litir
KK og KVK, margir litir KK og KVK
Devold ullarnærfatnaðurinn hentar íþróttafólki sérstaklega vel við úti
æfingar í kulda og bleytu. Devold heldur á þér hita þótt hann blotni
og andar vel þegar líkaminn hitnar.
3B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur