Valsblaðið - 01.05.2011, Side 56

Valsblaðið - 01.05.2011, Side 56
54 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Meistaraflokkur karla 2011 Árið 2011 var sveiflukennt hjá meistara- flokki karla, fyrrihluti ársins einkenndist af leikgleði og árangri en seinni hluti tímabilsins olli nokkrum vonbrigðum. Tímabilið hófst síðasta haust með komu Kristjáns Guðmundssonar sem aðalþjálf- ara á Hlíðarenda og hafði hann fyrrver- andi þjálfara meistaraflokks kvenna Frey Alexandersson sér til aðstoðar. Rayko Stanisic sá um markmannsþjálfurn og Friðrik Ellert Jónsson var sjúkraþjálfi sem fyrr og Halldór Eyþórsson og Sævar Gunnleifsson voru liðsstjórar. Þó nokkuð miklar mannabreytingar urðu á liðinu annað árið í röð og fóru margir reynslumiklir leikmenn frá fé- laginu og í staðinn komu ungir og efni- legir leikmenn. Valur var yfirleitt með yngsta liðið í hverri umferð þegar það var skoðað. Frá Val fóru um haustið 2010 þeir Reynir Leósson, Baldur Aðalsteinsson, Ian Jeffs og Kjartan Sturluson lagði hanskana á hilluna. Þeir erlendu leik- menn sem léku með Val sumarið 2010 hurfu einnig á braut, það voru þeir Danni Koenig, Greg Ross, Martin Pedersen og Diarmund O’Carrol. Á árinu 2011 fóru nokkrir leikmenn að láni til annarra fé- laga allt keppnistímabilið eða hluta úr því. Ásgeir Þór Magnússon fór á láni til Hattar, Guðmundur Steinn Hafsteinsson var hjá Víkingi Ólafsvík frá miðjum maí og út sumarið. Þórir Guðjónsson fór að láni til Leiknis og Stefán Jóhann Eggerts- son til HK á miðju sumri. Síðast en ekki síst þá fór Guðjón Pétur Lýðsson á lán til Helsingborgar og varð með þeim sænsk- ur meistari og bikarmeistari. Til Vals komu Andri Fannar Stefáns- son, Guðjón Pétur Lýðsson, Halldór Kristinn Halldórsson, Hörður Sveinsson, Sindri Snær Jensson og svo færeyska þríeykið, Christian Mauritsen, Pól Jó- hannus Justissen og Jónas Þór Næs. Ing- ólfur Sigurðsson kom síðan aftur til Vals á vormánuðum eftir útlegð i Hollandi og Vesturbænum. Um mitt sumar kom bak- vörðurinn efnilegi Brynjar Kristmunds- son til Vals að láni frá Víkingi Ólafsvík. Stelpurnar bikarmeistarar þriðja árið í röð og ósigrandi kvennaflokkar Skýrsla knattspyrnudeildar 2011 Bikarmeistarar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu 2011. Fremsta röð frá vinstri: Hildur Antonsdóttir, Elín Metta Jensen, Katrín Gylfadóttir, Meagan McCray, Þórdís María Aikman, Rakel Logadóttir, Caitlin Miskel og Hólmfríður Magnúsdóttir. Miðröð frá vinstri: Kjartan Orri Sigurðsson, Þórður Jensson aðstoðarþjálfari, Svana Rún Hermannsdóttir, Þorgerður Elva Magnúsdóttir, Telma Ólafsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Björk Gunnarsdóttir, Erla Steina Sverrisdóttir, Gunnar Borgþórsson þjálfari, Ragnheiður A. Jónsdóttir liðsstjóri og Friðjón R. Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar. Aftasta röð frá vinstri: Svava Rós Guðmundsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Embla Grétarsdóttir, Laufey Ólafsdóttir, Mist Edvardsdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir. Valsblaðið 2011 59 Starfið er margt aði síðan á önnur mið um áramótin og Dagur tók sér pásu. Í þeirra stað komu þau Halldór Örn og Lísbet. 6. flokkur kvenna 6. flokkur kvenna var skipaður stelpum fæddum árið 2002 og 2001. Í flokknum voru í kringum 25 stelpur að æfa þrisvar í viku. Stelpurnar fóru mjög reglulega í 7. flokkur karla 7. flokkur karla var skipaður strákum fæddum árið 2003 og 2004. Milli 40 og 50 strákar komu til æfinga í byrjun sept- ember þegar skólarnir byrjuðu. Flokkur- inn æfði þrisvar í viku. Einu sinni í vikur voru svokallaðar fjölgreinaæfingar. Þær voru þannig uppbyggðar að krakkarnir fóru í fótbolta, körfubolta og handbolta allt á sömu æfingunni. Krakkarnir höfðu mjög gott af þessu til að kynnast öðrum boltagreinum en fótbolta. Flokkurinn fór á þó nokkuð mörg mót á árinu og keppti nokkra æfingaleiki. Aðalmótið var Norð- urálsmótið á Akranesi. Þar voru Vals- menn með 4 lið. Strákarnir eyddu þar helgi saman í júní. Gistu saman í skólan- um, fóru á kvöldskemmtun og spiluðu saman fótbolta daginn út og daginn inn. Það komu allir Valsarar sáttir heim af mótinu. D-lið Vals eða A-lið yngra árs gerði sér lítið fyrir og vann mótið í sín- um styrkleikaflokki sem var sannarlega frábært. 7. flokkur karla er skipaður mörgum efnilegum strákum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér í fótbolt- anum. Allir leikmenn flokksins tóku miklum framförum á afstöðu tímabili. Ekki er annað hægt að segja nema að framtíðin sé björt karlamegin hjá Val. Þjálfarar flokksins til að byrja með voru þeir Igor Kostic og Birkir Örn með Dag Sindrason sér við hlið. En Igor leit- grundvallar tækniatriði voru tekin fyrir. Farið var á 2 mót í sumar og höfðu krakkarnir og ekki síður foreldrarnir ótrúlega gaman af því. Allir stóðu sig með stakri prýði og voru Val til mikils sóma. Það má segja að mesti lærdómur- inn komi á mótunum og eru oft miklar framfarir samfara þeim. Þjálfarar flokksins voru Rakel Loga- dóttir, Villimey Friðriksdóttir og Margrét Sif Sigurðardóttir. 7. flokkur kvenna 7. flokkur kvenna hefur breyst úr því að vera lítill hópur stelpna sem þekktist lítið í að vera sterkur og samrýmdur hópur. Allar stelpurnar náðu mjög vel saman þegar líða tók á sumarið og samstaðan skilaði sér í tveimur sigursælum liðum. Fyrsta mótið sem flokkurinn tók þátt í var VÍS mótið og gekk báðum liðum ágætlega þar, stuttu síðar var Símamótið þar sem C liðið lenti í 3. sæti og A liðinu gekk ágætlega. Það var svo á Pæjumótinu á Siglufirði sem A liðið tók sig saman og vann mótið með miklum yfirburðum. Í lok sumars þegar C liðið var búið að fín- pússa samspilið sigruðu þær Bónusmót Fylkis, einnig með miklum yfirburðum. Það var mikið fjör í sumar hjá flokkn- um og áberandi hvað þær sem voru að byrja tóku miklum framförum. Meistarar með þremur flokkum. Þessar 15 ára blómarósir náðu þeim einstaka árangri í sumar að verða meistarar með þremur flokkum og er það ótrúlegt afrek. Þær urðu bikarmeistarar með meistaraflokki kvenna og Íslands- meistarar með 2. og 3. flokki. Frá vinstri: Elín Metta Jensen, Hildur Antons dóttir og Svana Rós Guðmunds- dóttir. 4B B lack Y ellow M agenta C yan 1112276 V alur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.