Valsblaðið - 01.05.2011, Page 57

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 57
Valsblaðið 2011 55 Starfið er margt Víkingar, Keflavík og Þór voru sigruð og svo tvö jafntefli annars vegar á móti KR og Stjörnunni hins vegar. Þegar hér var komið við sögu var mótið hálfnað og Valur var í 2. sæti, einu stigi á eftir topp- liði KR og framundan var heimsókn í Kaplakrika. Sú heimsókn markaði byrjun á rýru tímabili fyrir Val þar sem 5 stig fengust úr 6 leikjum. Tap á móti FH í leik þar sem Valur var með 2-1 forskot í hálf- leik og manni fleiri síðustu 35 mínúturn- ar, olli miklum vonbrigðum. Þar á eftir fóru jafntefli heima á móti Grindavík, sigur á Fylki, tap fyrir Fram jafntefli á móti Breiðablik og ósigur heima á móti Keflavík. Valur var komið niður í 4. sæti og möguleikinn á Evrópukeppni að renna úr greipum okkar. Sigrar á móti Víkingi og Þór héldu lífi í voninni um Evrópu- og sólin gægðist fram upp úr hádegi og allt var til reiðu til að hefja leik. Tæplega 1800 manns mættu á leikinn sem Valur sigraði 1-0 með marki úr vítaspyrnu frá Guðjóni Pétri Lýðsssyni. Önnur umferð fór fram sunnudaginn 8. maí, daginn eftir aldarafmælishátíð félagsins. Það voru samt hressir Valsarar sem mættu til Grindavíkur þar sem Valur sigraði 2-0. Þriðja umferð fór fram á aldarafmælis- degi 11. maí og komu þá Vestmannaey- ingar í heimsókn, vallarmet var slegið þegar 2350 manns mætti á völlinn og sáu Val bíða lægri hlut 1-0 þar sem Eyja- menn skorðuu á lokamínútinni. Annar ósigur sumarsins leit svo ljós í árbænum í fjórðu umferð. Þar á eftir komu þrír sigrar, fyrst var það Fram og svo Víking- ur Ólafsvík í Valitor-bikarnum og þá Ís- landsmeistarar Breiðabliks. Eyjamenn komu aftur í heimsókn í 16 liða úrslitum bikarsins og komust í 3-0 á fyrstu 30 mín, þá bitu Valsmenn í skjaldarrendur og minnkuðu muninn í 1 mark en komust ekki lengra og þá var úti um bikardraum- inn það árið. Eftir ósigurinn gegn ÍBV í bikarnum kom nokkuðu góður sprettur þar sem Árangur á mótum Það má með sanni segja að árið byrjaði vel hjá Val. Í janúar og febrúar var leikið í Reykajvíkurmótinu og sigraði Valur mótið í úrslitaleik við KR eftir sigra á Leikni, Þrótti, Fylki og jafntefli á móti Fram. Þar með var fyrsti Reykjavíkur- meistaratitill Vals í 7 ár kominn á Hlíðar- enda. Sömu sögu er að segja af Lengju- bikarnum, en þar sigraði Valur sinn riðill með sigrum á móti Leikni, Víkingi Reykjavík og Ólafsvík, ÍBV, Fjölni og HK. Einn leikur tapaðist í riðli, á móti Fram. Í undanúrslitum keppninnar sigr- aði Valur FH og svo Fylki í úrslitum 3-1. Þar með var annar bikar ársins kominn í hús. Góð stemning var í hópnum og ekki hægt að segja annað en að menn hafi ver- ið bjartsýnir á betri árangur á Íslandsmóti en næstu árum á undan. Eitt hundraðasta Íslandsmótið hófst fyrr en venjulega vegna árangurs U21 landsliðsins. Mánudaginn 2. maí var flautað til leiks þar sem FH kom á Hlíð- arenda. Vorið var kalt og daginn fyrir leik var 12 cm jafnfallinn snjór á Vodafone- vellinum. En það gerði þíðu um nóttina Reykjavíkurmeistarar meistaraflokks karla í knattspyrnu 2011. Fremsta röð frá vinstri. Andri Fannar Stefánsson, Brynjar Kristmundsson, Haraldur Björnsson, Ásgeir Þór Magnússon, Sindri Snær Jensson, Arnar Sveinn Geirsson og Jónas Þór Næs. Miðröð frá vinstri: Kjartan Orri Sigurðsson, Sævar Gunnleifsson liðsstjóri, Halldór Eyþórsson sjúkraþjálfari, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, Hörður Sveinsson, Halldór K. Halldórsson, Haukur Páll Sigurðsson, Rúnar Már S. Sigurjónsson, Christian R. Mauritsen, Matthías Guðmundsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Rajko Stanisic, Freyr Alexandesson aðstoðarþjálfari, Kristján Guðmundsson þjálfari og Friðjón R. Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar. Efsta röð frá vinstri. Friðrik Ellert Jónsson, Magnús Örn Þórsson, Kolbeinn Kárason, Þórir Guðjónsson, Ingólfur Sigurðsson, Jón Vilhelm Ákason og Pól Jóhannus Justinussen. 58 Valsblaðið 2011 Starfið er margt flokkurinn þeim einstæða árangri að landa Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið í röð, frábær árangur þar og flestar í hópnum hafa aldur til að halda áfram í 2. flokki. Hjá strákunum gekk ekki eins vel á tímabilinu, þeir léku í A deild Íslands- mótsins en í lok tímabilsins féll flokkur- inn í B deild þar sem hann leikur á næsta ári. Geysifjölmenn uppskeruhátíð yngri flokka 2011 og viðurkenningar Í lok september var haldin uppskeruhátíð yngri flokka fótboltans í veislusölum félagsins. Þar var mikið fjölmenni og var það mál manna að aldrei hefði eins mik- ill fjöldi mætt á uppskeruhátíð í félaginu. Allir iðkendur í yngstu flokkunum fengu verðlaunapening fyrir sína þátttöku, en svo voru veitt einstaklingsverðlaun í 3.– 5. flokki, verðlaun fyrir bestu ástundun, mestu framfarir og leikmaður flokksins. Að auki voru tveir einstaklingar í 3. flokki verðlaunaðir og fengu Friðriksbik- arinn sem gefinn er í minningu séra Frið- riks Friðrikssonar og afhentur þeim ein- staklingum í 3. fl. karla og kvenna sem hafa sýnt mikla leiðtogahæfileika og eru öðrum góðar fyrirmyndir. Þessa viður- kenningu hlutu þau Jón Hilmar Karlsson og Ingunn Haraldsdóttir. Þá var Lollabik- arinn afhentur en það er farandbikar sem gefinn var af Lolla í Val (Ellerti Sölva- syni) árið 1988. Bikarinn er veittur þeim leikmanni í yngri flokkum Vals sem þyk- ir skara fram úr í leikni með boltann. Þennan bikar hlaut Berglind Rós Ágústs- dóttir. Þá var sú nýbreytni á uppskeruhá- tíðinni að veita þeim markmanni í yngri flokkunum sem sýnt hefur mestar fram- farir verðlaun og í þetta sinn var það Jón Freyr Eyþórsson sem hlaut verðlaunin. Mikill fjöldi foreldra barna úr 3. flokki karla og kvenna og fulltrúar frá barna- og unglingaráði kom að undirbúningi og frá- gangi hátíðarinnar og er vert að þakka þeim sérstaklega fyrir þátt. 8. flokkur karla og kvenna 8. flokkur samanstendur af drengjum og stúlkum sem æfðu saman tvisvar í viku yfir allt árið. Talsvert fleiri drengir voru við æfingar en stúlkur en stúlkunum fjölgaði þó þegar líða tók á sumarið. Um það bil 25–30 krakkar mættu á æfingar og var oft mikið fjör. Áherslan var lögð á leiki með og án bolta sem og grunnreglur minniknattspyrnu. Einnig var lögð áhersla á að venjast boltanum og einstök Um stjórn Nokkrar breytingar urðu á stjórn knatt- spyrnudeildar á liðnu ári, á aðalfundi í maí var Friðjón R. Friðjónsson kjörinn formaður knattspyrnudeildar og með honum í stjórn Stefán Sveinn Gunnars- son, Árni Jónsson, Árni Gunnar Ragnars- son, Jón Gunnar Bergs, Kristbjörg Inga- dóttir og Sigurður Sæberg Þorsteinsson. Fjögur síðasttöldu voru ný í stjórn knatt- spyrnudeildar. Stjórnin skipti þannig með sér verkum að Stefán Gunnarsson var varaformaður og formaður fjármálaráðs, Sigurður Sæberg formaður meistara- flokksráðs karla, Kristbjörg formaður meistaraflokksráðs kvenna, Jón Gunnar formaður unglingaráðs og Árni Gunnar formaður heimaleikjaráðs. Jón Gunnar lét af stjórnarstörfum í haust og tók þá Margrét Einarsdóttir við formennsku í unglingaráði. Fyrstu skrefin á annarri öldinni í sögu félagsins eru mikilvæg og það er stefna stjórnar knattspyrnudeildar að hlúa að uppbyggingu félagsins, styrkja unglinga- starfið með öflugri þjálfun og stefna til sigurs í meistaraflokkum. Afreksíþróttir starfa í erfiðu umhverfi þar sem erfitt er að leita fjárstuðnings vegna efnahags- ástandsins og opinberir aðilar skera inn að beini, allan stuðning til íþrótta hvort sem er uppeldisstarfs almennings- eða af- reksíþrótta. Það umhverfi kallar á sam- stöðu og samvinnu allra Valsmanna til að sigrast á erfiðleikum. Framundan er nýtt ár, nýtt tímabil sem ber með sér nýjar áskoranir og nýja sigra. Áfram Valur! Flottur hópur á uppskeruhátið 2. fl. karla og kvenna í knattspyrnu Sameiginleg uppskeruhátíð var haldin föstudagskvöldið 30. sept. sl. í Lolla- stúku. Hátíðin hófst á því að allir fengu grillaða hamborgara. Að því loknu veittu þjálfarar flokksins, Jón Karlsson og Rak- el Logadóttir, nokkrum iðkendum viður- kenningar. Hjá strákunum var Guðmndur Már Þórsson valinn efnilegastur en Svana Rún Hermannsdóttir hjá stelpunum. Við- urkenningu fyrir mestu framfarir fengu Kristján Már Ólafs og Þórhildur Einars- dóttir. Besti leikmaður 2. fl. karla var valinn Breki Bjarnason og hjá 2. fl. kvenna var Þórdís María Aikman valin best. 2. fl. kvenna var með breiðan hóp efni- legra leikmanna á tímabilinu og náði Valsliðið tók þátt í meistarakeppni Evr- ópu þriðja árið í röð og dróst á móti skosku meisturunum Glasgow City FC. í 32 liða úrslitum. Fyrri leikurinn í Skot- landi fór 1-1 svo Valsstúlkur voru í góðri stöðu til að komast áfram í keppninni. Svo fór þó að skoska liðið batt enda á þátttöku Vals í meistaradeild Evrópu um sinn með 3-0 sigri á Hlíðarenda. Ljóst er að ákveðin kynslóðaskipti eru framundan í Valsliðinu, ungar og efnileg- ar stúlkur sem hafa unnið góða sigra í yngri flokkunum banka nú á dyrnar og er full ástæða til að horfa bjartsýnum aug- um til framtíðar. Enn eitt árið kom efni- legasti leikmaður Íslandsmótsins úr röð- um Vals og er síst ofsagt að þessum ungu Valsstúlkum er fyllilega treystandi til að stíga þau skref sem nauðsynleg eru. Vals- liðið kemur til leiks næsta sumar sterkt og stefnir sem fyrr á titla. 4B B lack Y ellow M agenta C yan 1112276 V alur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.