Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 59
56 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Nokkrir leikmenn hafa gengið til liðs
við Val á haustmánuðum, Hafsteinn
Briem kom frá HK, Hilmar Rafn Emils-
son kom frá Haukum og Atli Heimisson
frá Asker í Noregi. Þá skiptu Valur og
Víkingur Ólafsvík á þeim Brynjari Krist-
mundssyni og Guðmundi Steini Haf-
steinssyni.
Við sumarbyrjun átti Valur einn leik-
mann í U21 landsliðinu, markmanninn
Harald Björnsson. Hann var svo kallaður
í A landsliðið í tvígang í sumar. Fjórir
leikmenn Vals hafa síðan verði kallaðir í
U21 landslðið í haust, þeir Andri Fannar
Stefánsson, Ásgeir Þór Magnússon, Kol-
beinn Kárason og Rúnar Már S. Sigur-
jónsson. Þá hefur Ingólfur Sigurðsson
leikið með U19 í haust. Liðið er ungt og
efnilegt og framtíðin er björt.
Að lokum vill stjórn knattspyrnudeild-
ar þakka öllum þeim sem komu að starf-
inu undangengið ár. Framlag allra þeirra
er ómetanlegt og er í raun það sem gerir
okkur kleift að halda úti tveimur afreksl-
iðum.
Meistaraflokkur kvenna
Árangur kvennaliðs Vals var sem fyrr
mjög góður. Annar tveggja stóru titlanna
vannst en í fyrsta sinn síðan 2005 vannst
Íslandsmeistaratitillinn ekki. Því fer þó
fjarri að tímabilið hafi verið slæmt, ár-
angur liðsins hefði dugað til meistaratit-
ils flest ár en frammistaða Íslandsmeist-
ara Stjörnunnar var slík að við það var
erfitt að keppa. Nýr þjálfari, Gunnar
Borgþórsson, tók við liðinu af Frey Alex-
anderssyni þegar sá síðarnefndi gerðist
aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Einnig kom
sæti en niðurlægjandi tap á móti Stjörn-
unni 5-0 gerði út um þá von, sá sigur hef-
ur verið sæt hefnd Stjörnumanna fyrir
5-1 tap ári fyrr. Þegar kom að lokaleik
mótsins á móti KR voru Vesturbæingar
orðnir Íslands- og bikarmeistarar og eng-
in leið fyrir Val að enda lægra en 5. sæti
en möguleiki var á því fjórða. Svo fór að
leikurinn á móti KR endaði í 0-0 jafntefli
og 5. sætið var Vals. Á jákvæðum nótum
þá var þetta fyrsti leikur Vals og KR á
Vodafonevellinum sem tapast ekki.
Árangur karlaliðs Vals á Íslandsmótinu
2011 var sá besti síðan titillinn vannst árið
2007 sem er mjög jákvæð vísbending því
liðið er ungt og á framtíðina fyrir fyrir sér.
Utan vallar
Undir lok sumars fór stjórn knattspyrnu-
deildar fram á það við leikmenn að samn-
ingar þeirra væru endurskoðaðir vegna
bágrar fjárhagsstöðu félagsins. Það má
með sanni segja að leikmenn hafi sýnt
stöðunni skilning og þannig varð erfitt
verkefni aðeins léttara.
Við lok tímabilsins urðu þáttaskil í
sögu Vals þegar Sigurbjörn Örn Hreið-
arsson ákvað að ganga til liðs við Hauka
og gerast þar spilandi aðstoðarþjálfari.
Síðastliðinn júlí voru 19 ár síðan Sigur-
björn lék sinn fyrsta leik með meistara-
flokki Vals og vonum við öll að Herra
Valur snúi aftur á Hlíðarenda í framtíð-
inni í nýju hlutverki.
Tveir leikmenn kláruðu samning sinn
við Val í haust og ákváðu að leita á ný
mið, það voru þeir Jón Vilhelm Ákason
og Stefán Jóhann Eggertsson. Valur ósk-
ar þeim góðs gengis í framtíðnni.
Valsblaðið 2011 57
Starfið er margt
Garðabæ, Aftureldingu og KR í úrslitum.
Titillinn var sá þrettándi sem er einstakur
árangur í keppni sem haldin hefur verið
28 sinnum.
meistarakeppni KSÍ og hélt þeim titli
fimmta árið í röð.
Íslandsmótið hófst laugardaginn 14.
maí með leik á Hlíðarenda við Grindavík
sem vannst 1-0. Því næst var haldð í
Árbæinn sem hefur reynst Valsstúlkum
erfiður undanfarin ár, þar skildu liðin
jöfn og fyrstu stig sumarsins voru töpuð.
Næsti leikur þar á eftir var heimaleikur á
móti Stjörnunni, einn af úrslitaleikjum
sumarsins. Mikil stemning var á leikn-
um, leikmenn meistaraflokks karla voru
mættir í stúkuna og hvöttu stúlkurnar
ákaft áfram. Leikurinn féll með Val og
endaði með 2-1 sigri okkar stúlkna. Þar
með var Valsliðið komið í efsta sæti og
eftir fylgdu sigrar á móti Þór/KA, Aftur-
eldingu, Breiðablik, Þrótti og KR. Fyrsti
ósigurinn kom svo úti í Eyjum gegn ÍBV
sem var spútniklið fyrri umferðar. Við
það náði Stjarnan toppsætinu sem þær
létu ekki af hendi allt til loka. Valsliðið
fór aftur á sigurbraut með afgerandi sigr-
um á Grindavík og Fylki en annað tap
sumarsins kom í Garðabæ þar sem sam-
an fór óheppni, dómgreindarskortur og
skortur á vilja til að klára leik. Valsliðið
var með verðskuldaða forystu fram á síð-
ustu mínútur leiksins þegar við misstum
mann útaf og leyfðum Störnunni að skora
tvö mörk á lokamínútunum. Jafnteflis-
leikur á Akureyri geirnegldi forystu
Garðbæinga í deildinni. Liðið náði sér
aftur á strik með öruggum sigrum í næstu
leikjum en leikirnir 5 fram að lokaum-
ferðinni unnust allir með markatölunni
19-1. Eyjastúlkur héldu svo áfram að
stríða okkar liði með því að ná 4-4 jafnt-
efli í lokaumferðinni. Annað sætið var
staðreynd í fyrsta sinn frá 2006.
Valitorbikarinn vannst þriðja árið í röð
með sigrum á Breiðablik, Stjörnunni í
nýr sjúkraþjálfari Svala Helgadóttir til
liðs við Val en að öðru leyti var sama
áhöfn að störfum fyrir meistaraflokk
kvenna. Þórður Jensson var aðstoðar-
þjálfari, Ragnheiður Á. Jónsdóttir liðs-
stjóri og Ólafur Pétursson sá um mark-
mannsþjálfun.
Valur varð fyrir nokkurri blóðtöku þeg-
ar tveir burðarásar liðsins fyrirliðinn
Katrín Jónsdóttir og besti leikmaður
tímabilsins 2010 Dóra María Lárusdóttir
yfirgáfu Val og fóru til Svíþjóðar. Skildu
þær eftir sig skörð sem erfitt var að fylla.
Einnig fór markvörðurinn María Björg
Ágústsdóttir til Svíþjóðar í atvinnu-
mennsku. Einungis einn leikmaður gekk
til liðs við félagið úr öðru íslensku liði en
Mist Edvarsdóttir gekk til liðs við Val frá
KR. Tvær bandarískar stúlkur, Meagan
McCray markvörður og Caitlin Miskel
framherji gengu til liðs við Val snemma
árs. Þegar komið var fram í lok júlí fóru
þær Dagný Brynjarsdóttir og Telma
Björk Einarsdóttir til Bandaríkjanna í há-
skólanám og á sama tíma gekk Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir til liðs við Val.
Árangur á mótum
Það var erfitt að fylgja eftir árangri 2010
þegar allir titlar og öll verðlaun sem hægt
var að vinna komu í hlut Vals og leik-
manna liðsins. Árið byrjaði vel þegar
Reykjavíkurmeistaratitillinn vannst
fjórða árið í röð með markatöluna 43-0 í
5 leikjum. Styrkur helstu keppinauta Vals
kom í ljós í Lengjubikarnum þegar
Stjarnan sigraði í riðlakeppninni á
Stjörnuvelli 3-0. Liðin mættust svo aftur
í úrslitum Lengjubikarsins á Stjörnuvelli
þar sem leikar fóru að Stjarnan sigraði
2-1. Valur sigraði svo Þór/KA 3-1 í
Annar flokkur karla í knattspyrnu fyrir leik gegn Þór sumarið 2011. Efri röð frá vinstri: Halldór Örn Þorsteinsson þjálfari,
Daði Már Möller, Kristján Már Ólafs, Guðlaugur Þór Einarsson, Ingólfur Páll Ingólfsson, Breki Bjarnason, Viktor Marteinn
Ingvarsson, Jónmundur Þorsteinsson, Tadas Koncius, Jón Karlsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Marteinn Högni Elíasson,
Guðmar Ingi Finnbogason, Jón Hilmar Karlsson, Dagur Sindrason, Sturla Magnússon, Haukur Ásberg Hilmarsson, Bjarki
Sigurðsson og Jhordan Valencia Sandoval. Mynd ÞÓ.
Strákar í meistaraflokki fagna góðu marki.
4A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
4
1112276 V
alur