Valsblaðið - 01.05.2011, Side 65

Valsblaðið - 01.05.2011, Side 65
50 Valsblaðið 2011 Gunnar hefur æft handbolta síðan hann man eftir sér en byrjaði að æfa með Val 11 ára gamall. Hann segist hafa valið Val af því þar voru langbestu þjálfararnir og besta aðstaðan og hann segist hafa verið viss um að þar gæti hann orðið betri handboltamaður. Ertu í fleiri íþróttagreinum hjá Val? „Nei, er ekki í fleiri íþróttgreinum hjá Val en hef verið að æfa frjálsar íþróttir og fótbolta hjá Breiðablik á sumrin til að halda mér í góðu formi og efla fjöl- hæfni.“ Hvers vegna heldur þú að unglingar hætti að æfa íþróttir? „Strákarnir sem hafa æft með mér í gegnum tíðina og hætt, hætta af því þeir missa einfaldlega áhugann og nenna þessu ekki lengur og fara því að einbeita sér að skólanum.“ Hvernig eru hóparnir þínir núna í vet- ur? „Í vetur er ég að æfa með þremur flokkum og okkur hefur gengið býsna vel í þeim öllum. 3. flokkurinn minn hefur unnið alla sína leiki nema einn og er hóp- urinn samansafn af mjög góðum og skemmtilegum strákum. Heimir, Óskar Bjarni og Maksim eru þjálfararnir mínir og eru að mínu mati með þeim bestu þjálfurum á landinu og gæti ég ekki beð- ið um betri þjálfun.“ Segðu frá skemmtilegum atvikum úr boltanum. „Það skemmtilegasta sem ég upplifað úr boltanum var klárlega fyrsti landsleikurinn minn, þegar ég stóð með liðsfélögunum mínum að hlusta á ís- lenska þjóðsönginn.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand- boltanum? „Arnór Gunnarsson, Sturla Ásgeirsson, Stefan Kretzschmar og Mart- in Stranovsky.“ Hvað þarf til að ná langt í íþróttum? „Það þarf mjög gott hugarfar, góðan sjálfsaga og skuldbindingu, vera reiðu- búinn að fórna, gefa sig 100% fram á öll- um æfingum og leikjum og skara fram úr.“ Hvers vegna handbolti? „Ég held að aðal ástæðan af hverju ég valdi handbolt- ann var af því ég elskaði hann og allt það sem hann snerist um.“ Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl- skyldunni? „Því miður erum við bara tveir sem sagt ég og Arnór frændi en allir hinir í fjölskyldunni eru Þórsarar. Arnór spilaði hér í Val fyrir tveimur árum og varð með Val bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari auk þessa var hann valinn oft og mörgum sinnum besti hægri horna- maður deildarinnar.“ Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú fengið frá foreldrum þínum í sam- bandi við handboltann? „Í mínum aug- um á ég bestu fjölskyldu í heimi og hefði ekki getað beðið um betri stuðning frá foreldrum mínum og allri fjölskyldunni minni, t.d. má nefna allan þann kostnað sem mamma hefur lagt í mig í sambandi við handboltann, öll æfingagjöldin, keppnisferðirnar og bensínkostnaðurinn sem hún hefur eytt í mig og verð ég henni ævinlega þakklátur fyrir. Stuðning- ur foreldra er gríðarlega mikilvægur fyrir þá sem vilja ná langt en án fjölskyldunn- ar minnar hefði ég aldrei náð að vera sá handboltamaður og ég er í dag.“ Hvernig finnst þér að eigi að efla starf- ið í yngri flokkunum hjá Val í hand- bolta? „Mér finnst yngri flokka starfið hjá handboltanum í Val til fyrirmyndar og það eina sem mætti kannski breyta er hugarfarið hjá strákunum þegar þeir mæta á æfingar, þeir eiga að njóta þess að vera þjálfaðir af þjálfurum eins og t.d. Óskari Bjarna sem er aðstoðarþjálfari landsliðsins og er þessi þjálfun svo gríð- arlega sjaldgæf og verða þeir að njóta hennar og læra af henni. Þjálfararnir mættu kannski fara í skólana og kynna handboltadeildina hjá Val og einnig mætti hvetja leikmenn meistaraflokks hjá Val til að mæta á æfingar hjá yngri flokk- unum og kenna litlu krökkunum.“ Hverjir eru þínir framtíðardraumar? Hvar sérðu fyrir þér að þú verðir eftir 10 ár? „Vonandi verði ég búinn með menntaskólann og byrjaður á háskóla- námi og ef allt gengur vel verð ég von- andi atvinnumaður spilandi í þýsku Bundes ligunni.“ Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra Friðrik, 11. maí árið 1911.“ Ungir Valsarar Það mætti kannski breyta hugarfari hjá strákunum þegar þeir mæta á æfingar Gunnar Malmquist Þórsson er 16 ára og leikur handbolta með 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki Valsblaðið 2011 63 Starfið er margt Friðriksbikar Friðriksbikarinn í ár hlutu þau Ingunn Haraldsdóttir og Jón Hilmar Karlsson leikmenn 3. fl. kvenna og karla. Lollabikar Lollabikarinn í ár hlýtur Berglind Rós Ágústsdóttir, en hún varð Íslandsmeistari með 2. og 3. flokki og leikmaður í U17 ára landsliði Íslands. Markmaður yngri flokka Í vetur og sumar hafa markmenn æft vikulega á auka markmannsæfingum undir handleiðslu Ólafs Péturssonar markmannsþjálfara. Mæting hefur verið mjög góð og flestir markmannanna tekið miklum framförum. Æfingahópnum var skipt í tvo hópa þar sem annars vegar 6. og 5. flokkur karla og kvenna æfðu sam- an og hins vegar 4. og 3. flokkur sem æfðu líka saman. Á markmannsæfingum er farið yfir grunnatriði markvörslu: grip, staðsetningar, fótavinnu, skutlur, spörk o. fl. með það að meginmarkmiði að mark- menn kunni að bregðast rétt við þegar þeir eru að spila hvort sem er á æfingum eða í leikjum. Sá markmaður sem fær verðlaun fyrir mestar framfarir hefur í mörg ár verið mjög duglegur að mæta á æfingar sama hvernig hefur viðrað, verið mjög áhugasamur og tekið leiðbeining- um mjög vel. Hann er því vel að þessum verðlaunum kominn. Þessi markmaður er Jón Freyr Eyþórsson. 3. flokkur karla 3. flokkur karla átti í erfiðleikum framan af sumri. Strákarnir tóku miklum fram- förum og eftir að fyrsti sigurinn var í höfn kom sjálfstraustið og enduðu strák- arnir í 5. sæti í C riðli með 10 stig. Strák- arnir fóru á Gothia-cup í Svíþjóð og var það virkilega góð ferð bæði knattspyrnu- lega og félagslega. Sigur í riðlinum tryggði strákunum sæti í A-úrslitum mótsins, virkilega frábær árangur á þessu móti. Strákarnir voru virkir í félagsstarfi Vals og stóðu þeir ásamt stúlkunum í 3. flokki vaktina í sjoppunni á heimaleikj- um meistaraflokks karla ásamt því að sinna dómgæslustörfum fyrir félagið. En strákarnir héldu líka góðum félagslegum tengslum við 3. flokk kvenna og enduðu þeir tímabilið á því að spila leik við þær á Vodafone vellinum þar sem Fálkarnir voru með frábæra umgjörð. Það eru ljóst að 3. flokkur hefur að geyma nokkra efnilega leikmenn sem munu án efa spila með meistaraflokki Vals á komandi árum. Þjálfaraskipti urðu í flokknum í júní þegar Donni þjálfari flokksins tók við meistaraflokki Tindastóls. Þjálfarar flokksins voru Þór Hinriks- son og Elvar Már Svansson. Besta ástundun: Marteinn Högni Elías- son Mestu framfarir: Sturla Magnússon Leikmaður flokksins: Haukur Ásberg Hilmarsson Þessi góðverk opnuðu augu og hjörtu leikmanna þær urðu víðsýnni og þakklát- ar fyrir það sem þær eiga. 24 laugardaga í vetur stóð flokkurinn fyrir Íþróttaskóla Vals þar sem margir ungir iðkendur hefja göngu sína sem Valsarar. Leikmenn voru stundvísir, vinnusamir og Val til sóma í þessari grasrótarvinnu fyrir félagið. Um 70 börn mættu á námskeiðin og komust færri að en vildu. Á heimaleikjum meist- araflokks karla í Vals stóð flokkurinn sjoppuvaktina og gerði það með mikilli prýði. Flokkurinn fór í þriggja mánaðar nammibindindi yfir keppnistímabilið júní – sept. en leikmenn héldu það út mislengi eða allt frá 6 klst. – 3 mánuði. En 3 leikmenn sýndu mikinn sjálfsaga og unnu keppnina. Hljóta þær vegleg verð- laun – en þetta voru Ingunn, María og Katla. Foreldrar flokksins voru almennt mjög duglegir að koma að starfi flokks- ins en án foreldrasamstarfs er ekki hægt að leysa öll þau verkefni sem heilt tíma- bil bíður upp á. Þjálfarar vilja þó sérstak- lega þakka tveimur foreldrum, Höllu og Báru, fyrir óeigingjarna vinnu fyrir flokkinn. Þjálfarar flokksins voru Soffía Ámunda- dóttir og Margrét Magnúsdóttir. Besta ástundun: Kara Magnúsdóttir Mestu framfarir: María Soffía Júlíus- dóttir Leikmaður flokksins: Berglind Rós Ágústsdóttir Íslandsmeistarar og Reykjavíkurmeistarar 3. flokks kvenna í knattsyrnu 2011. Efri röð frá vinstri: Margrét Magnúsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir, Birta Sif Kristmannsdóttir, Katla Rún Arnórsdóttir, Eva Þóra Hartmannsdóttir, Hildur Antonsdóttir, Ásta Rún Agnarsdóttir, Elín Metta Jensen, Kara Magnúsdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Ása Bríet Ingólfsdóttir og Soffía Ámundadóttir. Neðri röð frá vinstri: Selma Dögg Björgvinsdóttir, Rúna Oddsdóttir, Vaka Njálsdóttir, Lísbet Sigurðardóttir, Berglind Rós Ágústsdóttir, Soffía Rún Gunnarsdóttir, Embla Ásgeirsdóttir, María Soffía Júlíusdóttir og Vigdís Birna Þor- steinsdóttir. Fremst á myndinni er Selma Dís Scheving með bikarinn. 4B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.