Valsblaðið - 01.05.2011, Page 67
Valsblaðið 2011 65
Leikmenn 2. fl. karla og kvenna. Breki Bjarnason og Þórdís
María Aikman.
2. flokkur. Besta ástundun. Kristján Már Ólafs og Þórhildur
Svava Einarsdóttir.
Viðurkenningar meistaraflokki kvenna: Laufey Ólafsdóttir,
Hildur Antonsdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir.
2. flokkur karla. Efnilegastur.
Guðmundur Már Þórsson.
2. flokkur kvenna. Efnilegust.
Svana Rún Hermannsdóttir.
Besti leikmaður meistara flokks
karla: Atli Sveinn Þórarinsson.
Efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla: Rúnar Már Sigur-
jónsson og Friðjón Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar.
Freyr Alexandersson aðstoðar-
þjálfari m.fl. karla, Kristján
Guðmundsson þjálfari, Sigur-
björn Hreiðarsson sem var
heiðraður fyrir framlag sitt til
félagsins og Friðjón Frið-
jónsson formaður knatt-
spyrnudeildar.
ViðurkenningarUppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011
80 Valsblaðið 2011
Ég fór 6 ára gamall niður á Valsvöll 1956
og kom heim 1964. Friðjón Friðjónsson
skrifaði mig inn í félagið í maí 1957. Ég
fékk kvittun fyrir félagsaðild hjá Friðjóni
og setti hana í rassvasann. Ég skildi þessa
kvittun aldrei við mig. Um síðir varð það
slys að hún fylgdi buxunum í þvottavél-
ina og ég hafði ekki eftir annað en klessta
tuggu.
Við strákarnir vorum öllum stundum í
fótbolta. Ég man að Nonni Sigurjóns, á
Miklubraut 60, sagði: „Ég vildi óska þess
að ég fengi alltaf að vera 10 ára.“ Stund-
um hugsa ég um óskina hans Nonna. Það
er nefnilega víst að hjá öllum 10 ára fót-
boltastrákum eru allir dagar dýrðardagar
á Hlíðarenda.
Með móður minni fór ég í bæinn að
kaupa Valspeysu. Ég man eftir búðinni
en nefni hana ekki hér af tillitssemi við
verslunareigandann. Afgreiðslustúlkan
sagðist nefnilega því miður ekki eiga
Valspeysu í minni stærð en að til væri
KR-peysa sem passaði. Afgreiðslustúlk-
una sá ég í kvikmyndahúsi 20 árum síðar
og mundi strax eftir henni.
Hlíðarendi var mitt annað heimili.
Þangað bar ég Morgunblaðið til heimilis-
fólksins, Valda og Helgu, og 13 ára vann
ég við að raka, slá og snyrta á Hlíðar-
enda. Þá skein sól alla daga. Þegar leið á
hversdaginn mættu Andreas, Sigurður
Ólafs, Siggi Marels og Úlfar og fleiri
sem ég man án þess að geta gefið nöfn.
Þessir menn unnu sjálfboðastörf fyrir
Val, eftir vinnu og fram á kvöld. Sigurð-
ur Marelsson var unglingaleiðtogi Vals.
Siggi Mar var fóstri okkar og batt um sár,
og hann skammaðist ef þess þurfti. Hann
var jafnsnjall og sjálfur sr. Friðrik að ná
saman drengjahópi. Smáauglýsing undir
„Félagslíf“ í Mbl. vorið 1958, var ein-
hvern veginn svona:
3. flokkur Vals.
Munið fundinn á Hlíðarenda
í kvöld kl. 8. Bingó (vegleg
verðlaun), spurningaþáttur
og kvikmyndasýning.
Möguleg hópmyndataka.
Unglingaleiðtogi.
Þorsteinn Haraldsson
segir frá
Þorsteinn Haraldsson 10 ára í Vatnaskógi.
5A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
5
11
12
27
6
V
al
ur