Valsblaðið - 01.05.2011, Side 76
Valsblaðið 2011 71
3 Friðrik Friðriksson: Keppinautar, Reykjavík
1931, bls. 135–137.
4 Friðrik Friðriksson: Úti og inni, Reykjavík
1912, bls. 23. Feitletrun sett hér til að sýna
innrímið í ljóðahættinum.
5 Bréf Friðriks Friðrikssonar til Páls V. Guð-
mundssonar Kolka, dags. 11/8 1911, bls. 3–4
(Skjöl Friðriks Friðrikssonar nr. 08.24). Páll
varð síðar landskunnur héraðslæknir og leysti
séra Friðrik m.a. af sem framkvæmdastjóri
KFUM í Reykjavík veturinn 1913–1914.
6 Friðrik Friðriksson Úti og inni, Reykjavík
1912, bls. 59–67. Einkunnarorð Vals eru á
bls. 63.
skapur er þar einnig skýr og afdráttarlaus
og knýr okkur, hvert og eitt, til gagnrýn-
innar sjálfsskoðunar sem á vel við í að-
draganda helgra jóla.
Tilvísanir
1 „Lög fyrir Fótboltafjelag Kristilegs ung-
lingafjelags“ frá 28. júní 1900 (Skjöl KFUM
302:20).
2 Ræðuna nefndi séra Friðrik „Fair Play“ og
hún birtist í riti hans Úti og inni árið 1912,
bls. 59–67. Nánar er fjallað um hana í lok
þessarar greinar.
að efla kristindóm vorn og vera guði til
dýrðar. Það er höfuð-markmiðið.
Líkamleg æfing er til lítils nýt, en guð-•
hræðslan er til allra hluta nytsamleg og
hefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið til-
komanda (I. Tím. 4,8).
Framangreind hollráð séra Friðriks Frið-
rikssonar lýsa bæði persónu og hugsjón-
um Friðriks afar vel og eru mjög í takt
við þá meginstefnu sem hann markaði
starfi KFUM og KFUK á sínum tíma, að
efla æsku Íslands til líkama, sálar og
anda. Hinn trúarlegi og siðferðilegi boð-
Sunnudaginn 17. júlí 2011 fóru strákarnir
úr 3. flokki Vals í fótbolta til Svíþjóðar að
keppa á Gothia Cup. Strákarnir áttu fyrsta
leik við Nackdala strax á mánudagsmorg-
uninn. Sá leikur endaði 6-0 fyrir Val. Það
voru þeir Dagur, Viktor , Marteinn og Jón
Hilmar sem skoruðu eitt mark en Haukur
skoraði tvö. Á þriðjudeginum vöknuðu
þeir snemma morguns og gerðu sig til-
búna til að keppa á móti gríðarlega sterku
liði, Liria. Þegar strákarnir voru búnir að
vera hita upp í rúman hálftíma mættu Liria
ekki til leiks. Mótsnefnd Gothia Cup úr-
skurðaði þá Val 3-0 sigur. Seinna sama
dag áttum við leik við Fyllingen, en sá
leikur fór ekki á vel þar sem Fyllingen bar
sigur á hólmi 2-1. Haukur skoraði mark
Valsmanna. Þá áttu valsmenn bara einn
leik eftir í riðlinum sem fór fram á mið-
vikudagsmorgni. Sá leikur fór 0-0 þrátt
fyrir hörkuleik. Strákunum tókst að vinna
riðilinn og komast í 32. liða A úrslit.
Ósanngjarnt tap í 32 liða A úrslitum
Valsstrákarnir áttu leik við Hille IF á
fimmtudeginum í 32 liða úrslitum. Sá
leikur fór ekki vel þar sem Valsmenn töp-
uðu 3-0 þrátt fyrir að hafa verið betra lið-
ið á vellinum. Þeir fengu á sig eitt mark
en héldu áfram að veita andstæðingunum
sínum mikla pressu. Þá var einum leik-
manni Vals að nafni Kára vikið af velli
fyrir litlar sakir og í kjölfarið skoruðu
andstæðingarnir 2 mörk til viðbótar.
Upplýsingafulltrúi liðsins sagði að
sænsku dómararnir væru mjög strangir
og var Kára vikið af velli fyrir að setja
upp „hissa svip“. Kári hafði það hlutverk
að passa þeirra sterkasta mann og skilaði
því hlutverki glæsilega framan af. Þrátt
fyrir tapið er óhætt að segja að árangur
þeirra sé frábær og félaginu til sóma.
Stuð í skemmtigörðum
Þetta var þá þeirra síðasti leikur í ferð-
inni en þrír dagar voru enn eftir. Seinni
partinn á fimmtudeginum var frjáls tími,
sumir fóru í búðir en aðrir héngu bara
upp í skóla. Á föstudeginum fóru strák-
arnir í skemmtigarðinn Liseberg, Þeir
fóru í stærsta fallturn Evrópu og nokkra
rússibana. Einnig freistuðu sumir gæf-
unnar á skotbökkum og í öðrum þrautum
og var buddan orðin ansi létt eftir þessa
ferð. Strákarnir byrjuðu laugardaginn á
að skipta í lið með stelpunum í Tindastól
sem voru í sama skóla og þeir og spila.
Síðan var ferðinni haldið á vísindasafnið
í Gautaborg og fannst flestum það ansi
fróðlegt og skemmtilegt. Seinni part dags
var aðeins kíkt í búðir og leitað að stað
til að borða á. Fundum engan stað svo
við fórum aftur til baka í skólann og rák-
umst þá á ansi góðan Kebabpizzustað.
Seinkun á flugi og gott að koma
heim
Sunnudagurinn var síðasti dagur ferðar-
innar og var því ákveðið að fara í Vatns-
rennibrautagarðinn Skara sommerland.
Þrátt fyrir leiðinlegt veður skemmtu sér
flest allir vel. Næst á dagskrá var að fara
á flugvöllinn. Þegar komið var þangað
fréttu þeir af sex tíma seinkun flugsins.
Strákarnir létu það ekki á sig fá og náðu
að stytta tímann með skemmtilegum
leikjum og spjalli við hin íslensku liðin.
Lentum seint og síðar meir í Keflavík þar
sem foreldrar tóku við börnum sínum eft-
ir frábæra ferð.
Marteinn Högni Elíasson skráði
Skemmtileg ferð 3. flokks karla í
knattspyrnu á Gothia Cup í Svíþjóð
74 Valsblaðið 2011
Englandi. Það fylgja því bæði kostir og
gallar að vera með bestu deild í heimi.
Þýsku leikmennirnir verða miklar stór-
stjörnur án þess að þurfa að hafa neitt
sérstaklega mikið fyrir því. Þeir verða til-
tölulega fljótt vinsælir hjá liðinu og eiga
tiltölulega greiða leið inn í þýska lands-
liðshópinn og margir vart búnir að sanna
sig sem slíkir, en ættu frekar að teljast
efnilegir Þjóðverjar. Það sem íslenskir
leikmenn hafa fram yfir þá þýsku er að
þeir fá gott uppeldi í íslenskum félagslið-
um. Íslensku leikmennirnir alast upp í
miklu meiri nálægð við meistaraflokkinn
og það eru á allan hátt mun styttri leiðir
heldur en gerist hér í Þýskalandi.”
Þegar þú hófst þinn feril sem þjálf-
ari er eitthvað sérstakt sem þú tókst
með þér sem þú kynntist í handboltan-
um hér heima?
„Já ég tek mjög margt frá Þorbirni Jens-
syni, einkum andann sem ríkti á æfingum
hjá honum. Það er ákveðinn léttleiki án
þess að menn séu værukærir og er ætlast
til að menn taki vel á því. En margvíslega
taktík hef ég tekið upp eftir bæði þeim
Boris Bjarna Akbachev, Viggó Sigurðssyni
og flottum þjálfara sem ég var með í Jap-
an. En margt af þessu gerist ósjálfrátt og
síðan leggur maður ýmislegt til sjálfur.”
Mikill munur á yngri flokka starfi á
Íslandi og í Þýskalandi
Hvernig er háttað samspili milli íþrótta-
Þrír íslenskir þjálfarar að þjálfa
topplið í handbolta í Þýskalandi
Það vekur athygli að þrír íslenskir
þjálfarar eru að þjálfa topplið í Bun-
desligunni. Þetta segir okkur að annað-
hvort eru íslenskir þjálfarar afburða-
góðir eða Þjóðverjar eru í nokkurri
lægð. Hvernig upplifir þú stöðuna?
„Ég held að það sé sitt lítið af hvoru.
Þjóðverjarnir hafa setið eftir í taktískri
leiðbeiningu og leiðbeiningu um spil. Þar
erum við með ákveðið forskot. Við vor-
um sérstaklega fljótir að tileinka okkur
vinnuna með tölvuforrit. Þá urðum við
fljótir að vinna með leikgreiningar. En ég
held að það að við séum þrír (innskot:
Alfreð Gíslason þjálfari Kiel og Guð-
mundur Guðmundsson þjálfari Rhein
Neckar Löwen) um þessar mundir sé að
nokkru leyti tilviljun. Aron og Patrekur
voru líka hér í fyrra og síðan er Aðal-
steinn Eyjólfsson hjá Eisenach. Ég held
að Alfreð hafi að nokkru leyti rutt braut-
ina. Árangur íslenska landsliðsins sem
hefur verið á stórmótum í áratugi hefur
vakið gríðarlega athygli og ekki síst
verðlaunasætin á síðustu mótum. Þá hef-
ur farið mjög gott orð af íslenskum leik-
mönnum. Það er því augljóst að eitthvað
erum við að gera rétt.”
En varðandi lægðina á þýska lands-
liðinu, skýtur það ekki skökku við þar
sem deildin er sú sterkasta í heimi?
„Þetta er ekkert ósvipað og fótboltinn í
Dagur Sigurðsson er í hópi
okkar fræknustu manna. Hann
er fæddur árið 1973 og spilaði
í yngri flokkum Vals með þeim
sigursæla árgangi sem varð
Íslandsmeistari ár eftir ár.
Dagur spilaði allan sinn feril á
Íslandi með Val áður en hann
hélt í atvinnumennsku. Eftir að
Dagur hætti að spila sjálfur
hóf hann feril sem þjálfari
og gat sér gott orð sem
landsliðsþjálfari Austurríkis
og ekki síður núna sem þjálfari
Füshe Berlín í Þýskalandi.
Undirritaður hringdi eitt kvöld
um miðjan desember í Dag til
að fá hann til að bera saman
handboltann í Þýskalandi og á
Íslandi. En áður en að því kom
höfðu leikmenn í öðrum og
þriðja flokki lagt til spurningar
sem viðtalið byggir á.
Það eru kostir
og gallar á
báðum stöðum
Eftir Sigurð Ásbjörnsson
Flottir Valsfeðgar á vígsluhátíð íþróttahúss Vals
2007. Goðsögnin, Sigurður Dagsson (t.h.) ásamt
Degi, syni sínum og framkvæmdastjóra Vals, og
sonarsyninum og nafna sínum, Sigurði Dagssyni.
Guttinn lengst til vinstri er sonur Óskars Bjarna
Óskarssonar og heitir Arnór Snær. Allir gegndu
þeir einhverju hlutverki á vígsluhátíðinni.
5B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur