Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 92
446
ÞORBJÖRN TÓ
K VIÐ MEIST-
ARAFLOKKI
Valur varð Ísland
smeistari í hand
-
bolta annað árið
í röð vorið 1989
.
Að svo búnu tók
Þorbjörn Jens-
son við liðinu og
lagði þar með
keppnisskóna á
hilluna. Í liðinu
var
valinn maður í h
verju rúmi og sjö
fastamenn lands
liðsins. Liðið var
ð
fyrir blóðtöku þ
egar Geir Sveins
son
og Júlíus Jónasso
n gerðust atvinn
u-
menn eftir tímab
ilið. Geir gekk ti
l
liðs við Granolle
rs á Spáni og Júl
íus
hóf að leika með
PSG í Frakkland
i.
Síðan leitaði Sig
urður Valur Svei
ns-
son á önnur mið
.
Þetta keppnistíma
bil er ógleymanleg
t
því við tefldum fra
m sterkasta Vals-
liði sögunnar, að m
ínu mati, ef ekki
sterkasta félagsliði
allra tíma á Ís-
landi. Stórskyttan
Sigurður Sveinsso
n
lék með okkur og E
inar Þorvarðarson
að nýju. Mig minn
ir að 12-13 leik-
menn liðsins hafi á
tt landsleiki að
baki. Við komums
t í fjögurra liða
úrslita í Evrópuke
ppninni gegn Mag
-
deburg og það var
ekkert annað en
dómaraskandall a
ð við skyldum ekk
i
komast í úrslitaleik
inn í annað skiptið
í sögunni. Einar Þ
orvarðarsson
meiddist fyrir þessa
leiki og kallað var
á Óla Ben sem haf
ði ekki leikið hand
-
bolta í átta ár. Eng
u að síður unnum
við fyrri leikinn he
ima 21:16. Við
klikkuðum á fimm
vítum í leiknum
og hefðum átt að v
inna með 12, 14
marka mun. Leiku
rinn ytra varð tóm
vitleysa eftir að við
jöfnuðum 15:15.
Þeir skoruðu síðus
tu 5 mörkin og fór
u
í úrslitaleikinn á þ
ví að hafa skorað
fleiri mörk en við á
útivelli. Það voru
dæmd af okkur mö
rk og einn okkar
fékk rautt. Þetta V
alslið var í hópi 4-6
bestu liða Evrópu.
(Valdimar Grímss
on, 2011)
Jón Hermannsso
n lét af störfum
sem þjálfari mei
staraflokks kven
na
vorið 1989 og tó
k hinn margreyn
di
Veit mamma þí
n að
þú ert ennþá ú
ti?
Sævar Jónsson, fyr
rverandi landsliðsm
aður í knattspyrnu
,
rifjar upp eftirmin
nilegt augnablik.
Leikið var í Vestm
annaeyjum og ei
ns og venjulega v
ar liðið erfitt hei
m
að sækja. Bói Pá
lma var alltaf á s
ínum stað á hóli
einum við einn h
orn-
fánann og reif st
anslaust kjaft og
lét leikmenn hey
ra það sem kom
u
nálægt hornfána
num. Menn vildu
helst ekkert taka
hornin þeim me
gin.
Aldrei þessu van
t var ég að kljást
við leikmann og
uppskar hornsp
yrnu
sem ég ætlaði að
taka sjálfur. Þá
glymur í kalli: „H
eyrðu Sævar, ætl
arðu
ekki að fara að h
ætta þessu bulli?
“ Ég kominn yfir
þrítugt og hann
var
sennilega búinn
að sjá nóg af mé
r. Ég sneri mér vi
ð með það sama
og
sagði svo hátt að
það glumdi í He
rjólfsdal: „Veit m
amma þín að þú
ert
úti ennþá?!!“ Bó
i leit í kringum si
g því fólk veltist
um af hlátri. Þar
na
má segja að skra
ttinn hafi hitt öm
mu sína.“
(Sævar Jónsson, 20
10)
Geir Sveinsson k
astaði sér án efa
milljón sinnum
inn af línunni á l
öngum keppnisf
erli. Þarna svífur
hann inn í teigin
n hjá KR-ingum
í Valsheimilinu k
eppnistímabilið
1988-
1989. Þorsteinn
Guðjónsson og
Jóhannes Stefán
sson, fyrrum Va
lsmaður, horfa á
kappann skora.
1981-1990
447
leikmaður Stjörn
unnar, Margrét
Theodórsdóttir,
við liðinu. Þess
má
til gamans geta a
ð leikmenn göm
lu
Mulningsvélarin
nar léku í 2. deil
d
eftir að hafa bor
ið sigur úr býtum
í
3. deild árið áðu
r.
Landsliðið í han
dknattleik kemu
r til Íslands eftir
að hafa sigrað í
B-heimsmeistar
akeppninni í Fra
kklandi árið 198
9. Forseti Ísland
s,
frú VIgdís Finnb
ogadóttir, heilsa
r Valsmanninum
Einari Þorvarða
rsyni markverði.
Aðrir á myndinn
i eru, frá vinstri:
Jón Hjaltalín
Magnússon, for
maður HSÍ, Hra
fn Margeirsson
og Guðmundur
Guðmundsson s
íðar landsliðsþjá
lfari.
Fjölmargir Valsm
enn voru í lands
liði
Íslands í handkn
attleik sem sigra
ði í
B-heimsmeistara
keppninni í Frak
klandi
1989. Gullmeda
lían er í eigu Jak
obs
Sigurðssonar.
Íslandsmeistarar
Vals í handknat
tleik 1989. Afta
ri röð frá vinstri
: Þórður Sigurðs
son, formaður h
andknattleiksde
ildar, Stefán
Carlsson læknir,
Einar Þorvarða
rson, Gísli Óska
rsson, Theodór
Guðfinnsson, Þo
rbjörn Jensson,
Júlíus Jónasson,
Sigurður
Sveinsson, Jón K
ristjánsson, Árn
i Árnason sjúkra
þjálfari og Jón G
unnar Zoëga, fo
rmaður Vals. Fre
mri röð frá vinst
ri: Pétur
Guðmundsson l
iðsstjóri, Sigurð
ur Sævarsson, Ja
kob Sigurðsson,
Ólafur Benedik
tsson, sem hljóp
í skarðið fyrir E
inar Þorvarðar-
son sem meiddis
t, Geir Sveinsson
fyrirliði, Páll Gu
ðnason, Valdima
r Grímsson og S
tanislav Modrov
ski þjálfari.
404
FALL VALS VÆRI FRÁBÆR
FRÉTT
Og hver er svo harðbrjósta að hann
geti hugsað þá hugsun til enda, að
Knattspyrnufélagið Valur, stolt höfuð-
borgarinnar, eigi í vændum að falla
niður í 2. deild? „Það get ég,“ sagði
landskunnur dagskrárgerðarmaður
af sjónvarpinu (Páll Magnússon),
„ég heyri sko ekki betri frétt en þá,
að nú sé Valur dottinn. Ég er búinn
að bíða í ofvæni eftir þessari frétt í
Ríkisútvarpinu og nú sé ég loksins
hilla undir hana.“
„Bull,“ sagði kvefaði rithöf-
undurinn. „Nú er allt í húfi fyrir Val
og þeir verða að bursta Eyjapeyjana
um næstu helgi og það gera þeir.
Valsarar eru nefnilega menn hinna
stóru leikja.“
(Baldur Hermannsson í DV 15. september 1983)
BORGIN FÉLL EKKI
Höfuðborg Íslands féll ekki og því
síður Valur því liðið bar sigurorð af
Vestmannaeyingum 3:0 en staðan
var 0:0 í hálfleik. Ingi Björn skoraði
tvö markanna. Og í næstsíðustu
umferðinni sigraði Valur Víking
2:1. Þegar upp var staðið hafnaði
liðið í 5. sæti í deildinni, eins og árið
áður. Þetta sumar rauf Ingi Björn
Albertsson 100 marka múrinn og
voru margir þeirrar skoðunar að
hann hefði átt sitt besta keppnis-
tímabil, þrátt fyrir slakt gengi Vals.
Kappinn setti markamet í 1. deild
með því að verða fyrstur á Íslandi til
að skora 100 mörk í efstu deild. Ingi
Björn skoraði 14 mörk í deildinni,
hlaut gullskó Adidas sem var veittur
í fyrsta skipti sumarið 1983 og var
kjörinn leikmaður Vals. Eftir þetta
gullár hjá Val gerðist Ingi Björn
spilandi þjálfari FH sem vann sig
upp úr 2. deild sumarið 1983.
GUÐNI BERGS EFNILEGAST-
UR Í 1. DEILD
Sumarið 1984 voru stofnuð samtök
leikmanna í 1. deild og var Grímur
Sæmundsen, fyrirliði Vals, einn
aðalforsprakkinn að stofnun sam-
takanna sem og undirbúningi fyrir
fyrstu lokahátíðina sem var haldin
á veitingahúsinu Broadway 16.
september. Valsmaðurinn Hermann
Gunnarsson var kynnir, Valsmaður-
inn og fjármálaráðherrann, Albert
Guðmundsson, hélt ræðu kvöldsins
og danski knattspyrnumaðurinn
og fyrrverandi Knattspyrnumaður
Evrópu, Allan Simonsen, var
heiðursgestur. Valsmaðurinn Guðni
Bergsson var kjörinn efnilegasti
leikmaður deildarinnar og Skaga-
maðurinn og markvörðurinn Bjarni
Sigurðsson hlaut yfirburðakosningu
sem besti leikmaður deildarinnar.
Nokkrum árum síðar átti Bjarni
eftir að gera garðinn frægan hjá
Brann í Noregi og síðan Val.
FJÖLBREYTT STÖRF FRAM-
UNDAN
Aðalstjórn Vals hafði að mörgu að
hyggja starfsárið 1983 til 1984 en
fyrir stjórnarmennina Pétur Svein-
bjarnarson, Ólaf Gústafsson, Elías
Hergeirsson og Jón H. Karlsson var
hver einasta hindrun spennandi
áskorun. Höfuðframkvæmdir Vals
á verklega sviðinu voru bygging
íþróttahúss og félagsheimilis, flóð-
lýsing malarvallar, stúkubygging við
grasvöllinn og fjölgun valla, viðgerð
félagsheimilis og íbúðarhúss og síð-
ast en ekki síst skipulag Hlíðarenda
eftir að félagið fékk úthlutað við-
bótarlandi á 70 ára afmælinu. Hinn
2. júní 1983 var samþykkt að hefja
byggingu nýrra knattspyrnuvalla á
22 þúsund fermetra svæði.
FYRSTI OPINBERI HEIMA-
LEIKURINN
Á starfsárinu 1983-1984 mörkuðu
tveir atburðir einkum þáttaskil í
sögu Hlíðarenda. Fyrstu opinberu
heimaleikir Vals í knattspyrnu voru
leiknir á Hlíðarenda og lokið var við
að reisa þakgrind nýja íþróttahússins.
Valur var fyrsta reykvíska félagið til
þess að leika 1. deildar
leiki á eigin félagssvæði
og er sú von látin í ljós
að Valsmenn muni um
ókomna framtíð leika
hluta heimaleikja sinna að
Hlíðarenda.
(Úr skýrslu aðalstjórnar í Valsblaðinu 1984)
Bræðslan hjá Boris
Að mæta á æfingu og vera í seinni kantinum var ekki það skemmtileg-asta sem maður lenti í. Þá var Boris á ganginum í gamla íþróttahúsinu, búinn að reykja nokkrar rótsterkar rússneskar sígarettur ofan í allan hvítlaukinn og svo fékk maður að heyra það! Ég var 15 ára og ekki búinn að ná fullri hæð þannig að Boris átti auðveldara með að koma með sitt andlit ofan í mitt og andfýlan sem gusaðist yfir mann ásamt fúkyrðunum sagði manni að betra væri að vera tímanlega næst. Seinna lenti ég nokkrum sinnum í því að sækja Boris á æfingar þar sem ég bjó úti á Seltjarnanesi og hann á Víðimelnum. Ég mætti vel tímanlega og hann skellti sér inn í framsætið. Ég keyrði af stað og hann byrjaði að tala. Í raun hefði ég getað sleppt því að vera með framsæti. Boris vildi alltaf horfast í augu við þá sem hann talaði við þannig að hann sat nánast á lærinu á mér og talaði alla leið inn í Valsheimili.
(Júlíus Jónasson, 2011)
405
Ingi Björn Albertsson varð markahæstur í 1. deild 1983 með 14 mörk og hlaut gullskóinn sem var þá veittur í fyrsta skipti.
Guðni Bergsson var valinn efnilegastur í 1. deild sumarð 1984 en markvörður ÍA, Bjarni Sigurðsson, sá besti. Bjarni skipti síðan yfir í Val 1989 og lék með félaginu þar til hann lagði skóna á hilluna 1993. Knatt-spyrnumaður Evrópu 1977, Daninn Allan Simonsen, afhenti verðlaunin á Broadway. Simonsen lék með Barcelona 1979-1982 og einnig með Velje, Charlton og Borussia Mönchengladback. Hann lék 55 landsleiki.
Áfram, hærra! sýnishorn úr afmælisriti
586
Mælikvarði á góðan leikmann er
ekki það sem hann gerir á tindinum
heldur hversu vel hann rís eftir fall.
Það er í lagi að klikka tvisvar í röð,
endurmeta þá skotin, hreyfingarnar
og fleira án þess að umturnast því
slíkt kann ekki góðri lukku að stýra.
Maður má ekki láta neitt koma sér úr
jafnvægi.
... Ég þori varla að líta til baka
á þau sjö ár sem ég var í Þýskalandi
því ég er ennþá að klífa. Allir hafa
haft áhrif á mig á sinn hátt, allt frá
Theodóri Guðfinnssyni til Alfreðs
Gíslasonar.
(Ólafur Stefánsson, Valsblaðið 2003)
GRÍMUR TEKUR VIÐ AF
REYNI VIGNIR
Haustið 2002 tók Grímur Sæmund-
sen við af Reyni Vignir sem for-
maður Vals en hann hafði setið á
valdastóli í 8 ár.
Ýmsir stórir titlar sem meistara-
flokkar félagsins unnu á þeim árum
sem ég var formaður koma oft upp
í hugann þegar ég hugsa til baka, en
það var líka svo margt annað jákvætt
í íþróttastarfinu og því er erfitt að
taka einstaka liði út úr.
Félagið átti marga frábæra
þjálfara sem ég fylgdist með og ég ætla
að nefna tvo ólíka. Þorbjörn Jensson
var með mfl. karla í handbolta og við
þekkjum þann árangur sem lið undir
hans stjórn náðu og hversu mörgum
landsliðsmönnum og síðar þjálfurum
hans starf skilaði og þess á milli lagði
hann raflagnirnar í húsinu í sjálf-
boðavinnu. Hann hélt uppi sama
aga hvort sem liðið var að keppa á
Hlíðarenda eða í keppnisferðum
erlendis, sem ég fór í með liðinu.
Ég fylgdist vel með starfi Elísa-
betar Gunnarsdóttur við þjálfun á
yngri flokkum kvenna í knattspyrnu
og sá ótalmarga úrslitaleiki þar sem
hún stýrði liðum sínum til sigurs.
Það var sama hvort leikirnir voru
á Hlíðarenda, í Hafnarfirði eða á
Hvolsvelli, ég bauð fjölskyldunni bara
í bíltúr og alltaf var gleðin ríkjandi á
leiðinni til baka. Starf Elísabetar setti
svo Val síðar á stall, sem yfirburðalið
í knattspyrnu kvenna á Íslandi til
margra ára, og það hefur verið ein af
skrautfjöðrum félagsins um margra
ára skeið.
(Reynir Vignir, fyrrverandi formaður Vals, 20
11)
HVAÐ SKYLDI RÍSA?
Eitt fyrsta verk nýkjörins formanns
var að skipa ráðgjafanefnd sérfróðra
aðila um tæknilega útfærslu upp-
byggingar á Hlíðarenda. Í nefnd-
inni sátu verkfræðingar, arkitektar,
tæknifræðingur og íþróttakennari.
Sigurður Lárus Hólm var skipaður
formaður en aðrir nefndarmenn
voru Torfi Magnússon, Guðmundur
Þorbjörnsson, Hrólfur Jónsson,
Úlfar Másson og Kristján Ásgeirs-
son. Fyrsta verk nefndarinnar var
að gera þarfagreiningu og forsögn á
þeim mannvirkjum sem reisa ætti að
Hlíðarenda og samþættingu þeirra
við núverandi mannvirki.
Baldur Þ. Bjarnason húsvörður
lét af störfum um áramótin 2002-
2003 eftir 14 farsæl ár að Hlíðar-
enda og tók Svanur Getsson við af
honum en hann átti langan feril að
baki sem dómari Vals. Þá var Þórður
Jensson íþróttakennari ráðinn
íþróttafulltrúi félagsins.
Mér finnst hugmyndin um svokall-
aðan byrjendaflokk athyglisverð. Þar
gætu krakkar komið á æfingar þar
sem farið yrði í ýmsa leiki og æfingar
sem tengjast íþróttagreinunum sem
eru í boði hjá Val og gætu valið sér
grein eða greinar eftir því.
(Þórður Jensson íþróttafulltrúi, Valsblaðið 20
03)
SENDIHERRAR VALS
Á afmæli Vals 11. maí 2003 var
málverk af hinni gömlu eðalkempu
Sigurði Ólafssyni afhjúpað, honum
til heiðurs, en sjálfum þótti honum
það óþarfa umstang. Stjórn Vals
ákvað að sæma Guðna Bergsson
gullmerki Vals í ágúst en þá um
vorið lauk hann glæstum ferli
sem atvinnumaður með Bolton.
Aukinheldur var Guðni gerður að
sendiherra félagsins í kynningar- og
útbreiðslustarfi en hann hafði ávallt
sýnt félaginu ræktarsemi og haldið
merki Vals á lofti. Á herrakvöldi
Vals 7. nóvember var Geir Sveinsson
Ólafur Stefánsson handknattleiks-
maður var kjörinn Íþróttamaður ársins
2002 en hann varð markakóngur á
Evrópumótinu í Svíþjóð það ár, skoraði
58 mörk í átta leikjum.
Þórir steig sín fyrstu spor á knatt-
spyrnuvellinum að Hlíðarenda 12
ára gamall. Hann varð þar hluti
af sterkum hópi Valsmanna, sem
undir stjórn Róberts Jónssonar
báru ægishjálm yfir jafnaldra sína
í knattspyrnu á þeim tíma. Úr
þeim hópi komu einstaklingar
sem báru merki Vals hátt síðar,
svo sem landsliðsmennirnir
Hörður Hilmarsson og Ingi Björn
Albertsson.
Þórir vakti strax athygli fyrir
afburða knattleikni og var kominn
í meistaraflokkslið Vals aðeins
17 ára gamall og skömmu síðar í
íslenska landsliðið. Er hann yngsti
leikmaður í sögu Vals til að verða
þess heiðurs aðnjótandi. Þórir
lék með Val í nokkur ár en ákvað
síðan að hverfa aftur á heima-
slóðir í Hafnarfirði og helgaði
hann FH krafta sína eftir það.
(Grímur Sæmundsen, Valsblaðið 2004)
Yngsti landsliðs-
maður í sögu Vals
Úr eftirmælum um Þóri Jónsson (1952-2004)
.
Hann lést í bílslysi.
Þórir Jónsson.
2001-2011
587
einnig skipaður sendiherra Vals en
Guðni var veislustjóri það kvöld.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
var heiðursgestur og ræðumaður
kvöldsins.
Guðni og Geir, fyrrum samherjar
í yngri flokkunum í handbolta,
tóku embættið alvarlega og kynntu
starfsemi Vals í grunnskólum í
nágrenni Hlíðarenda ásamt íþrótta-
fulltrúanum haustið 2003.
Guðni Olgeirsson tók við rit-
stjórn Valsblaðsins 2003 af Þorgrími
Þráinssyni sem hafði ritstýrt blaðinu
í rúman hálfan annan áratug með
örfáum undantekningum. Vals-
blaðið hefur verið eitt af fjöreggjum
Vals frá því það kom fyrst út árið
1939, mikilvæg heimild um sögu
félagsins í máli og myndum.
STEFNUMÓTUN TIL 2011
Árið 2003 hafði Valskórinn verið
starfandi í áratug og taldi um 30
manns. Margir hafa verið meðlimir
frá upphafsárunum.
Í kapellunni kyrjum við,
kát á mánudögum,
enda mikið úrvalið,
af allra handa lögum.
Bassinn dunar botni frá,
blíður tenór seiðir.
Svífur altið sætt á ská,
sópran tóninn leiðir.
Valur þekkir veginn sinn,
vinnur eða tapar,
og aftur er það æfingin,
sem afrekshópinn skapar.
Séra Friðrik syngur með,
í sátt við góða vini.
Styttan út við blómabeð,
blikar, í aftanskini.
(Höfundur: Dýri Guðmundsson kórdrengu
r)
Guðni Bergsson, leikmaður Bolton,
og Ruud Van Nistelrooy, leikmaður
Manchester United, í kapphlaupi í ensku
úrvalsdeildinni árið 2003. Guðni hafði
betur á sprettinum sem og í leiknum.
Hann lauk glæsilegum atvinnumanns-
ferli vorið 2003 og var skipaður
sendiherra Vals 11. maí sama ár. Um
haustið var Geir Sveinsson einnig skip-
aður í sendiherra en í því fólst að sinna
útbreiðslustarfi eftir bestu getu.
460
Valsmenn fagna sigri eftir að hafa lagt KR að velli í „myrkrarleiknum“ fræga, bikarúrslitaleiknum í knatt-spyrnu gegn KR 1990, sem þurfti að framlengja og síðan réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þegar tekið var að rökkva. Frá vinstri: Anthony Karl Gregory, Steinar Dagur Adolfsson, Þórður Birgir Bogason, Þorgrímur Þráinsson fyrirliði, og Sigurjón Kristjánsson sem er á hestbaki á Gunnari Má Mássyni.
461
518
519
Iðkendur hand-
knattleiksdeildar
Vals árið 1996.
Áfram, hær a! Framtíðarsýn
„Menn hafa verið of uppteknir af
nútíðinni. Valur þarf að hugsa út
fyrir rammann. Valur þarf að
þróast þjálfunarlega og hvað
uppeldishlutverkið varðar og ég hef
margoft sagt, í Valsblaðinu og
víðar, að krakkarnir velja sína
keppnisgrein of snemma“
GEIR SVEINSSON
„Hver þáttur starfsins er eins og
mósaiksteinn sem raðast síðan upp
í heildarmynd þegar allir þættir
ganga upp. Þetta þarf „master-
mind“ aðilinn að gera og það er í
hans verkahring að sjá til þess að
mósaikmyndin verði heil og falleg.
Þá getum við farið að sjá frábæran
árangur og skilning á leiknum.
Annað er ekki í boði.“
ÓLAFUR STEFÁNSSON
„Það sem hefur verið að skemma
íþróttina undanfarin ár eru
peningar. Mér skilst ð það séu
fjárhagsvandræð hjá V l núna
og þá verður bara að skera niður.
Valshjartað skiptir máli. Me n
með slíkt hjarta ná árangri fyrir
Val frekar en ð yptir leik-
men .“
ÞORBJÖRN JENSSON
„Ég sé Hlíðarenda fyri
mér í f a tíðinni sem fjöl-
skyldumiðstöð því þar á
að vera þjónu ta í takt v ð
okkar nýja lí smynstur.
Hlíðarendi á geta
þjónað öllum án tillits til
aldurs og flokka.“
PÉTUR SVEINBJARNARSON
„Við viljum ala af okkur Valsara, þjálfara,
dómara, stuðningsmenn, afreksfólk,
stjórnarfólk, sjálfboðaliða en síðast en
ekki síst heilsteypta einstaklinga sem eru
góðir og gildir þjóðfélagsþegnar.“
SOFFÍA ÁMUNDADÓTTIR6B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur