Valsblaðið - 01.05.2011, Page 93
404
FALL VALS VÆRI FRÁBÆR
FRÉTT
Og hver er svo harðbrjósta að hann
geti hugsað þá hugsun til enda, að
Knattspyrnufélagið Valur, stolt höfuð-
borgarinnar, eigi í vændum að falla
niður í 2. deild? „Það get ég,“ sagði
landskunnur dagskrárgerðarmaður
af sjónvarpinu (Páll Magnússon),
„ég heyri sko ekki betri frétt en þá,
að nú sé Valur dottinn. Ég er búinn
að bíða í ofvæni eftir þessari frétt í
Ríkisútvarpinu og nú sé ég loksins
hilla undir hana.“
„Bull,“ sagði kvefaði rithöf-
undurinn. „Nú er allt í húfi fyrir Val
og þeir verða að bursta Eyjapeyjana
um næstu helgi og það gera þeir.
Valsarar eru nefnilega menn hinna
stóru leikja.“
(Baldur Hermannsson í DV 15. september 1983)
BORGIN FÉLL EKKI
Höfuðborg Íslands féll ekki og því
síður Valur því liðið bar sigurorð af
Vestmannaeyingum 3:0 en staðan
var 0:0 í hálfleik. Ingi Björn skoraði
tvö markanna. Og í næstsíðustu
umferðinni sigraði Valur Víking
2:1. Þegar upp var staðið hafnaði
liðið í 5. sæti í deildinni, eins og árið
áður. Þetta sumar rauf Ingi Björn
Albertsson 100 marka múrinn og
voru margir þeirrar skoðunar að
hann hefði átt sitt besta keppnis-
tímabil, þrátt fyrir slakt gengi Vals.
Kappinn setti markamet í 1. deild
með því að verða fyrstur á Íslandi til
að skora 100 mörk í efstu deild. Ingi
Björn skoraði 14 mörk í deildinni,
hlaut gullskó Adidas sem var veittur
í fyrsta skipti sumarið 1983 og var
kjörinn leikmaður Vals. Eftir þetta
gullár hjá Val gerðist Ingi Björn
spilandi þjálfari FH sem vann sig
upp úr 2. deild sumarið 1983.
GUÐNI BERGS EFNILEGAST-
UR Í 1. DEILD
Sumarið 1984 voru stofnuð samtök
leikmanna í 1. deild og var Grímur
Sæmundsen, fyrirliði Vals, einn
aðalforsprakkinn að stofnun sam-
takanna sem og undirbúningi fyrir
fyrstu lokahátíðina sem var haldin
á veitingahúsinu Broadway 16.
september. Valsmaðurinn Hermann
Gunnarsson var kynnir, Valsmaður-
inn og fjármálaráðherrann, Albert
Guðmundsson, hélt ræðu kvöldsins
og danski knattspyrnumaðurinn
og fyrrverandi Knattspyrnumaður
Evrópu, Allan Simonsen, var
heiðursgestur. Valsmaðurinn Guðni
Bergsson var kjörinn efnilegasti
leikmaður deildarinnar og Skaga-
maðurinn og markvörðurinn Bjarni
Sigurðsson hlaut yfirburðakosningu
sem besti leikmaður deildarinnar.
Nokkrum árum síðar átti Bjarni
eftir að gera garðinn frægan hjá
Brann í Noregi og síðan Val.
FJÖLBREYTT STÖRF FRAM-
UNDAN
Aðalstjórn Vals hafði að mörgu að
hyggja starfsárið 1983 til 1984 en
fyrir stjórnarmennina Pétur Svein-
bjarnarson, Ólaf Gústafsson, Elías
Hergeirsson og Jón H. Karlsson var
hver einasta hindrun spennandi
áskorun. Höfuðframkvæmdir Vals
á verklega sviðinu voru bygging
íþróttahúss og félagsheimilis, flóð-
lýsing malarvallar, stúkubygging við
grasvöllinn og fjölgun valla, viðgerð
félagsheimilis og íbúðarhúss og síð-
ast en ekki síst skipulag Hlíðarenda
eftir að félagið fékk úthlutað við-
bótarlandi á 70 ára afmælinu. Hinn
2. júní 1983 var samþykkt að hefja
byggingu nýrra knattspyrnuvalla á
22 þúsund fermetra svæði.
FYRSTI OPINBERI HEIMA-
LEIKURINN
Á starfsárinu 1983-1984 mörkuðu
tveir atburðir einkum þáttaskil í
sögu Hlíðarenda. Fyrstu opinberu
heimaleikir Vals í knattspyrnu voru
leiknir á Hlíðarenda og lokið var við
að reisa þakgrind nýja íþróttahússins.
Valur var fyrsta reykvíska félagið til
þess að leika 1. deildar
leiki á eigin félagssvæði
og er sú von látin í ljós
að Valsmenn muni um
ókomna framtíð leika
hluta heimaleikja sinna að
Hlíðarenda.
(Úr skýrslu aðalstjórnar í Valsblaðinu 1984)
Bræðslan hjá Boris
Að mæta á æfingu og vera í seinni kantinum var ekki það skemmtileg-asta sem maður lenti í. Þá var Boris á ganginum í gamla íþróttahúsinu, búinn að reykja nokkrar rótsterkar rússneskar sígarettur ofan í allan hvítlaukinn og svo fékk maður að heyra það! Ég var 15 ára og ekki búinn að ná fullri hæð þannig að Boris átti auðveldara með að koma með sitt andlit ofan í mitt og andfýlan sem gusaðist yfir mann ásamt fúkyrðunum sagði manni að betra væri að vera tímanlega næst. Seinna lenti ég nokkrum sinnum í því að sækja Boris á æfingar þar sem ég bjó úti á Seltjarnanesi og hann á Víðimelnum. Ég mætti vel tímanlega og hann skellti sér inn í framsætið. Ég keyrði af stað og hann byrjaði að tala. Í raun hefði ég getað sleppt því að vera með framsæti. Boris vildi alltaf horfast í augu við þá sem hann talaði við þannig að hann sat nánast á lærinu á mér og talaði alla leið inn í Valsheimili.
(Júlíus Jónasson, 2011)
405
Ingi Björn Albertsson varð markahæstur í 1. deild 1983 með 14 mörk og hlaut gullskóinn sem var þá veittur í fyrsta skipti.
Guðni Bergsson var valinn efnilegastur í 1. deild sumarð 1984 en markvörður ÍA, Bjarni Sigurðsson, sá besti. Bjarni skipti síðan yfir í Val 1989 og lék með félaginu þar til hann lagði skóna á hilluna 1993. Knatt-spyrnumaður Evrópu 1977, Daninn Allan Simonsen, afhenti verðlaunin á Broadway. Simonsen lék með Barcelona 1979-1982 og einnig með Velje, Charlton og Borussia Mönchengladback. Hann lék 55 landsleiki.
„Mikilvægasti leikur Vals fyrr og
síðar,“ sagði Stefán Gunnarsson,
fyrirliði Vals, við blaðamann Morgun-
blaðsins fyrir útileikinn gegn Atlético
Madrid í Evrópukeppni meistaraliða í
handbolta hinn 1. mars 1980. Hann
sagði enn fremur að Valur mætti ekki
tapa nema með þriggja marka mun
til að eiga möguleika á að komast í
úrslitaleikinn. Stefán reyndist sann-
spár en björninn var síður en svo
unninn því seinni leikurinn í Laugar-
dalshöllinni myndi skera úr um það
hvort liðið léki til úrslita um Evrópu-
meistaratitilinn. Slíkum áfanga hafði
ekkert íslenskt lið náð, hvorki í hand-
bolta né fótbolta.
Gífurleg spenna var á Íslandi
fyrir þennan mikilvæga leik Vals og
fjallaði Morgunblaðið um leikinn,
sem og leikinn á Spáni, á heilli opnu
4. mars 1980.
Til þess að sigra spánska liðið heima
þurfum við að bæta varnarleikinn
og við getum ekki sigrað þá með
neinum látum, heldur verðum við
að spila rólega og yfirvegað, halda
markatölunni niðri í leiknum og reyna
að vinna þá með fjórum mörkum.
Bestu menn Spánverjanna voru að
mínu mati gegnumbrotsmennirnir. Ég
vona að fólk heima geri sér grein fyrir
því, að fyrir höndum er erfiður leikur.
En með samstilltu átaki áhorfenda
og leikmanna ætti að vera hægt að
velgja spænska liðinu undir uggum og
hugsanlega að ná því stóra takmarki
að komast í úrslitaleikinn í Evrópu-
keppninni í handknattleik.
(Hilmar Björnsson, þjálfari Vals,
í Morgunblaðinu 4. mars 1980)
ÍÞRÓTTAVIÐBURÐUR
ÁRSINS
Í Morgunblaðinu hamraði Hilmar
þjálfari á mikilvægi leiksins fyrir ís-
lenskt íþróttalíf og sagði að um einn
mesta íþróttaviðburð ársins væri
að ræða. Tækist Val að sigra með
þriggja marka mun og Spánverjum
ekki að skora nema 20 mörk eða
minna kæmist Valur í úrslitaleikinn.
Val tókst það sem margir töldu
ómögulegt, að leggja Atlético
Madrid að velli 18:15 í æsispennandi
leik. Dagblöðin notuðu hástemmd
lýsingarorð í umfjöllun sinni enda
gleyma þeir leiknum líklega aldrei
sem voru svo heppnir að vera í
Höllinni þetta kvöld. Blaðamaður
Morgunblaðsins lýsti síðustu mín-
útum leiksins á eftirfarandi hátt:
STEFÁN LYFTI SÉR UPP
En þá komu áhorfendur til skjalanna
enn eina ferðina og með geysiöflug-
um hvatningarhrópum og kröftugum
lúðrablæstri tóku þeir leikmenn
Atlético hreinlega á taugum og þeir
misstu knöttinn úr höndunum á sér.
Valsmenn í sókn og þegar 100 sek.
voru til leiksloka lyfti Stefán fyrirliði
Gunnarsson sér upp og skoraði
gullfallegt mark, 18:14. Þetta var
markið sem allir höfðu beðið eftir og
áhorfendur fögnuðu innilega. En þá
fór kliður um salinn er Uria skoraði
með snöggu hoppskoti þegar 74
sek. voru eftir, 18:15 og sigur Vals,
sem var svo öruggur fyrir nokkrum
sekúndum, hékk nú aftur á bláþræði.
Ekki bætti úr skák þegar sóknin mis-
lukkaðist gersamlega og Spánverj-
arnir fengu knöttinn þegar 58 sek.
voru til leiksloka. Möguleikarnir
„Ég á heiminn“
Valur bar sigurorð af Atlético Madrid í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða
8. mars 1980 í háspennuleik í Laugardalshöllinni. 3.400 manns urðu vitni að frá-
bærri frammistöðu.
Þorbjörn Guðmundsson í kröppum dansi á línunni, aðþrengdur Spánverjum, án þess að Jón H. Karlsson geti
nokkuð lagt til málanna.
372
Fjöldi fólks flykktist inn á völlinn eftir
að Valur hafði lagt Atletico Madrid að
velli í Laugardalshöllinni. Á myndinni
má greina nokkra leikmenn í mann-
fjöldanum; Þorbjörn Jensson, Bjarna
Guðmundsson, Stefán Halldórsson, Jón
H. Karlsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Steindór Gunnarsson hefur
smeygt sér á milli leikmanna
Atletico og setur boltann
örugglega í markið.
373
Áfram, hærra! sýnishorn úr afmælisriti
614
MINN DRAU
MUR AÐ
ÞJÁLFA VAL
... Ég stefni að þ
ví að klára feril
inn hjá
Val og á sama t
íma að undirbú
a mig
undir að verða
þjálfari hjá féla
ginu,
það er draumas
tarfið mitt. Ég á
mér
þann draum að
þjálfa meistara
flokk
hjá Val og mig l
angar einnig að
þjálfa
yngri flokkana
, t.d. 2. og 3. flo
kk og
taka þátt í að b
yggja upp til fra
mtíðar,
kenna unglingu
m fótbolta og by
ggja
upp sterka liðsh
eild.
(Matthías Guð
mundsson, Vals
blaðið 2010)
HINIR ÓSIG
RANDI NJAR
Ð-
VÍKINGAR L
AGÐIR AÐ V
ELLI
Meistaraflokk
ur karla í körf
ubolta
lék þriðja árið
í röð í 1. deild
keppnistímab
ilið 2005-200
6 og
tókst ekki að
tryggja sér sæ
ti í
úrvalsdeildinn
i. Til að auka
gæði
liðsins var sam
ið við tvo erle
nda
leikmenn fyri
r komandi tím
abil;
Matteo Caval
lini frá Ítalíu
og Zach
Ingles frá Ban
daríkjunum.
Bergur Már E
milsson, Birgi
r
Mikaelsson o
g Sævaldur Bj
arnason
þjálfuðu í yng
ri flokkunum
og var
mikill kraftur
í hinum 100
iðk-
endum sem æ
fðu á þeim ve
ttvangi.
Undir stjórn Á
gústar Jensso
nar varð
11. flokkur dr
engja, fæddir
1989,
bikarmeistara
r eftir sigur á
Njarðvík
í úrslitaleik en
Suðurnesjalið
ið hafði
ekki tapað lei
k í þessum ár
gangi í
mörg ár. Valu
r hafnaði í 2.
sæti á
Íslandsmótin
u en varð Rey
kjavíkur-
meistari.
Tólf stelpna k
jarni skipaði
minniboltann
en mjór er m
ikils
vísir. Kristjan
a Björk Magn
úsdóttir
tók við flokkn
um eftir tíma
bilið
og þjálfaði en
n fremur 7. fl
okk
sem var nýskr
áður til leiks.
Ljóst
var að keppni
stímabilið 20
06-2007
myndu allir fl
okkar Vals lei
ka í A-
riðli og mátti
rekja ástæðu
þess til
mikils metnað
ar og hæfra þ
jálfara
sem höfðu lag
t sig fram um
að ná
góðum árang
ri.
Haraldur Vald
imarsson hlau
t
Einarsbikarin
n og deildin ú
tnefndi
Piu Mothua V
alsara ársins.
Áfram Valur
og
fleiri mörk!
Úr eftirmælum
um Kristin Ha
llsson (1926 – 2
007).
Við Valsmenn
drjúpum höfð
i nú þegar ein
n okkar mætu
stu félaga,
Kristinn Halls
son óperusön
gvari, hefur kv
att. Kristinn á
tti ekki langt a
ð
sækja ramma
taug Vals, en
faðir hans Ha
llur Þorleifsso
n kaupmaður
,
var einn af sto
fnendum félag
sins og einnig
einn af stofne
ndum Karla-
kórsins Fóstbr
æðra. Bæði þe
ssi félög voru
stofnuð vegna
hvatningar
hins mæta ma
nns, séra Frið
riks Friðriksso
nar. Kristinn s
ótti vel kapp-
leiki Vals og þ
á oftar en ekk
i með öðrum
öðlungi en þa
ð var Ágúst
Bjarnason, fræ
ndi hans. Sam
an tveir mynd
uðu þeir einn
öflugasta kór
stuðningsman
na á Íslandi o
g hrópið var e
kki flókið: „Áf
ram Valur og
fleiri mörk!“
Þetta hrópuðu
þessir djúprö
dduðu félagar
, klæddir í rau
ðu jakkana
sína hvort sem
mark hafði ve
rið skorað eða
ekki. Gjarnan
mátti sjá þá
spjalla við Sig
fús Halldórsso
n tónskáld á l
eikjum Vals að
Hlíðarenda e
n
Sigfús var einn
ig mikill Valsm
aður. Brosið v
ar breitt á þes
sum kempum
enda upplifðu
þeir sigurtíma
Vals. Saga Va
ls er ríkari veg
na manna ein
s
og Kristins. (Grímur Sæmundse
n, formaður Kn
attspyrnufélags
ins Vals)
Hinn ósigrand
i 4. flokkur (A
-lið) í knattsp
yrnu 2006. Li
ðið var Ísland
smeistari A- o
g
B-liða og hlau
t gullverðlaun
á öllum öðru
m mótum sum
arsins: Aftari
röð frá vinstr
i:
Freyr Alexand
ersson þjálfar
i, Bryndís Bja
rnadóttir, Tel
ma Ólafsdótt
ir, Alexía Ims-
land, Kolbrún
Sara Másdót
tir, Helga Birn
a Jónsdóttir, G
uðrún Elín Jóh
annsdóttir,
Sigurlaug Guð
rún Jóhannsd
óttir, Sæunn S
if Heiðarsdót
tir, Birna Kolb
rún Birgisdót
t-
ir, Heiða Drö
fn Antonsdót
tir og Björn S
igurbjörnsson
aðstoðarþjál
fari. Fremri rö
ð
frá vinstri: Jen
ný Harðardót
tir, Katrín Gyl
fadóttir, Fion
a Gaxholli, Kr
istrún Heiða
Jónsdóttir, Kr
istín Lovísa Lá
rusdóttir, Ger
ður Guðnadó
ttir og Svana
Rún Hermann
s-
dóttir. Liggjan
di: Valgerður
Bjarnadóttir o
g Elín Þóra El
íasdóttir.
Ellefti flokkur
varð bikarme
istari í körfub
olta 2006 eft
ir að hafa lag
t hið ósigrand
i
lið Njarðvíkur
að velli í úrsl
italeik. Aftari
röð frá vinstr
i: Ágúst Þorri
Tryggvason,
Haraldur Vald
imarsson, Hja
lti Friðriksson
, Kjartan Rag
nars, Páll Fan
nar Helgason
og Sævaldur B
jarnason þjálf
ari. Fremri rö
ð frá vinstri: B
aldur Eiríksso
n, Halldór
Margeir Halld
órsson, Arnór
Sigurgeir Þra
starson, Atli B
arðason og B
ia Mothua.
Kristjana Björ
k Magnúsdót
tir þjálfaði stú
lknaflokkinn
í körfubolta 2
006 og 2007
en
eitt helsta ma
rkmiðið var a
ð fjölga iðken
dum. Þessar s
túlkur stundu
ðu íþróttina a
f
miklum áhuga
. Aftari röð fr
á vinstri: Aldí
s Ösp Hafþór
sdóttir, Marg
rét Ósk Einar
s-
dóttir, Karítas
Kjartansdótt
ir, Esther Ndi
yoi Imbula og
Þórunn Marí
a Gizurardótt
ir.
Fremri röð frá
vinstri: Ingib
jörg Kjartansd
óttir, Björg In
gólfsdóttir, E
lsa Rún
Kjartansdótti
r og Thelma K
arlsdóttir.
615
Eftirminnilega
st úr boltanum
?
„Tvöfaldur me
istaratitill 200
6.
Eftir að hafa o
rðið Íslandsm
eistarar
kláruðum við
Breiðablik í ví
taspyrnu-
keppni í líkleg
a skemmtilega
sta
bikarúrslitalei
k sögunnar. F
rábært ár
hjá Val 2007.
Íslandsmeista
rar karla
og kvenna, plú
s Íslandsmeist
aratitill
í handbolta k
arla. Gerist ek
ki mikið
betra. Þetta v
ar gott tímabi
l hjá
okkur. Íslands
meistarar með
46 stig
af 48 möguleg
um og marka
töluna
88:7, nokkuð
flott.“
Fyndnasta atv
ik? „Evrópuke
ppnin
2005, þegar v
ið áttuðum ok
kur á því
að við værum
komnar í 8-li
ða úrslit
fyrst íslenskra
liða og byrjuð
um að
öskra og syng
ja í sigurhring
„Simply
the best“, me
ð Tinu Tuner,
í hálfleik
því staðan var
5:0. Dómarin
n kom
og sendi okku
r skelfilegt aug
naráð
og sagði; „thi
s is not fair pl
ay“.“
(Valsblaðið 200
8)
Guðbjörg Gu
nnarsdóttir fa
gnar einum a
f fjölmörgum
titlum meista
raflokks á un
danförnum ár
um.
Einfaldlega b
estar
Úr viðtali við G
uðbjörgu Gunn
arsdóttur, mark
vörð meistarafl
okks í knattspy
rnu.
586
Mælikvarði á góðan leikmann er
ekki það sem hann gerir á tindinum
heldur hversu vel hann rís eftir fall.
Það er í lagi að klikka tvisvar í röð,
endurmeta þá skotin, hreyfingarnar
og fleira án þess að umturnast því
slíkt kann ekki góðri lukku að stýra.
Maður má ekki láta neitt koma sér úr
jafnvægi.
... Ég þori varla að líta til baka
á þau sjö ár sem ég var í Þýskalandi
því ég er ennþá að klífa. Allir hafa
haft áhrif á mig á sinn hátt, allt frá
Theodóri Guðfinnssyni til Alfreðs
Gíslasonar.
(Ólafur Stefánsson, Valsblaðið 2003)
GRÍMUR TEKUR VIÐ AF
REYNI VIGNIR
Haustið 2002 tók Grímur Sæmund-
sen við af Reyni Vignir sem for-
maður Vals en hann hafði setið á
valdastóli í 8 ár.
Ýmsir stórir titlar sem meistara-
flokkar félagsins unnu á þeim árum
sem ég var formaður koma oft upp
í hugann þegar ég hugsa til baka, en
það var líka svo margt annað jákvætt
í íþróttastarfinu og því er erfitt að
taka einstaka liði út úr.
Félagið átti marga frábæra
þjálfara sem ég fylgdist með og ég ætla
að nefna tvo ólíka. Þorbjörn Jensson
var með mfl. karla í handbolta og við
þekkjum þann árangur sem lið undir
hans stjórn náðu og hversu mörgum
landsliðsmönnum og síðar þjálfurum
hans starf skilaði og þess á milli lagði
hann raflagnirnar í húsinu í sjálf-
boðavinnu. Hann hélt uppi sama
aga hvort sem liðið var að keppa á
Hlíðarenda eða í keppnisferðum
erlendis, sem ég fór í með liðinu.
Ég fylgdist vel með starfi Elísa-
betar Gunnarsdóttur við þjálfun á
yngri flokkum kvenna í knattspyrnu
og sá ótalmarga úrslitaleiki þar sem
hún stýrði liðum sínum til sigurs.
Það var sama hvort leikirnir voru
á Hlíðarenda, í Hafnarfirði eða á
Hvolsvelli, ég bauð fjölskyldunni bara
í bíltúr og alltaf var gleðin ríkjandi á
leiðinni til baka. Starf Elísabetar setti
svo Val síðar á stall, sem yfirburðalið
í knattspyrnu kvenna á Íslandi til
margra ára, og það hefur verið ein af
skrautfjöðrum félagsins um margra
ára skeið.
(Reynir Vignir, fyrrverandi formaður Vals, 20
11)
HVAÐ SKYLDI RÍSA?
Eitt fyrsta verk nýkjörins formanns
var að skipa ráðgjafanefnd sérfróðra
aðila um tæknilega útfærslu upp-
byggingar á Hlíðarenda. Í nefnd-
inni sátu verkfræðingar, arkitektar,
tæknifræðingur og íþróttakennari.
Sigurður Lárus Hólm var skipaður
formaður en aðrir nefndarmenn
voru Torfi Magnússon, Guðmundur
Þorbjörnsson, Hrólfur Jónsson,
Úlfar Másson og Kristján Ásgeirs-
son. Fyrsta verk nefndarinnar var
að gera þarfagreiningu og forsögn á
þeim mannvirkjum sem reisa ætti að
Hlíðarenda og samþættingu þeirra
við núverandi mannvirki.
Baldur Þ. Bjarnason húsvörður
lét af störfum um áramótin 2002-
2003 eftir 14 farsæl ár að Hlíðar-
enda og tók Svanur Getsson við af
honum en hann átti langan feril að
baki sem dómari Vals. Þá var Þórður
Jensson íþróttakennari ráðinn
íþróttafulltrúi félagsins.
Mér finnst hugmyndin um svokall-
aðan byrjendaflokk athyglisverð. Þar
gætu krakkar komið á æfingar þar
sem farið yrði í ýmsa leiki og æfingar
sem tengjast íþróttagreinunum sem
eru í boði hjá Val og gætu valið sér
grein eða greinar eftir því.
(Þórður Jensson íþróttafulltrúi, Valsblaðið 20
03)
SENDIHERRAR VALS
Á afmæli Vals 11. maí 2003 var
málverk af hinni gömlu eðalkempu
Sigurði Ólafssyni afhjúpað, honum
til heiðurs, en sjálfum þótti honum
það óþarfa umstang. Stjórn Vals
ákvað að sæma Guðna Bergsson
gullmerki Vals í ágúst en þá um
vorið lauk hann glæstum ferli
sem atvinnumaður með Bolton.
Aukinheldur var Guðni gerður að
sendiherra félagsins í kynningar- og
útbreiðslustarfi en hann hafði ávallt
sýnt félaginu ræktarsemi og haldið
merki Vals á lofti. Á herrakvöldi
Vals 7. nóvember var Geir Sveinsson
Ólafur Stefánsson handknattleiks-
maður var kjörinn Íþróttamaður ársins
2002 en hann varð markakóngur á
Evrópumótinu í Svíþjóð það ár, skoraði
58 mörk í átta leikjum.
Þórir steig sín fyrstu spor á knatt-
spyrnuvellinum að Hlíðarenda 12
ára gamall. Hann varð þar hluti
af sterkum hópi Valsmanna, sem
undir stjórn Róberts Jónssonar
báru ægishjálm yfir jafnaldra sína
í knattspyrnu á þeim tíma. Úr
þeim hópi komu einstaklingar
sem báru merki Vals hátt síðar,
svo sem landsliðsmennirnir
Hörður Hilmarsson og Ingi Björn
Albertsson.
Þórir vakti strax athygli fyrir
afburða knattleikni og var kominn
í meistaraflokkslið Vals aðeins
17 ára gamall og skömmu síðar í
íslenska landsliðið. Er hann yngsti
leikmaður í sögu Vals til að verða
þess heiðurs aðnjótandi. Þórir
lék með Val í nokkur ár en ákvað
síðan að hverfa aftur á heima-
slóðir í Hafnarfirði og helgaði
hann FH krafta sína eftir það.
(Grímur Sæmundsen, Valsblaðið 2004)
Yngsti landsliðs-
maður í sögu Vals
Úr eftirmælum um Þóri Jónsson (1952-2004)
.
Hann lést í bílslysi.
Þórir Jónsson.
2001-2011
587
einnig skipaður sendiherra Vals en
Guðni var veislustjóri það kvöld.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
var heiðursgestur og ræðumaður
kvöldsins.
Guðni og Geir, fyrrum samherjar
í yngri flokkunum í handbolta,
tóku embættið alvarlega og kynntu
starfsemi Vals í grunnskólum í
nágrenni Hlíðarenda ásamt íþrótta-
fulltrúanum haustið 2003.
Guðni Olgeirsson tók við rit-
stjórn Valsblaðsins 2003 af Þorgrími
Þráinssyni sem hafði ritstýrt blaðinu
í rúman hálfan annan áratug með
örfáum undantekningum. Vals-
blaðið hefur verið eitt af fjöreggjum
Vals frá því það kom fyrst út árið
1939, mikilvæg heimild um sögu
félagsins í máli og myndum.
STEFNUMÓTUN TIL 2011
Árið 2003 hafði Valskórinn verið
starfandi í áratug og taldi um 30
manns. Margir hafa verið meðlimir
frá upphafsárunum.
Í kapellunni kyrjum við,
kát á mánudögum,
enda mikið úrvalið,
af allra handa lögum.
Bassinn dunar botni frá,
blíður tenór seiðir.
Svífur altið sætt á ská,
sópran tóninn leiðir.
Valur þekkir veginn sinn,
vinnur eða tapar,
og aftur er það æfingin,
sem afrekshópinn skapar.
Séra Friðrik syngur með,
í sátt við góða vini.
Styttan út við blómabeð,
blikar, í aftanskini.
(Höfundur: Dýri Guðmundsson kórdrengu
r)
Guðni Bergsson, leikmaður Bolton,
og Ruud Van Nistelrooy, leikmaður
Manchester United, í kapphlaupi í ensku
úrvalsdeildinni árið 2003. Guðni hafði
betur á sprettinum sem og í leiknum.
Hann lauk glæsilegum atvinnumanns-
ferli vorið 2003 og var skipaður
sendiherra Vals 11. maí sama ár. Um
haustið var Geir Sveinsson einnig skip-
aður í sendiherra en í því fólst að sinna
útbreiðslustarfi eftir bestu getu.
424
HEILAGUR MAÐURMeð ljúfmennsku sinni og fallegu tali boðaði hann kristilega framkomu og hegðan, án þess að lærisveinninn gerði sér ljósa grein fyrir því að hann var í kristilegri kennslustund. Á mig hafði hann varanleg áhrif. Verald-legan auð eignaðist hann aldrei.Hann gaf þeim sem voru í þörf, það sem honum áskotnaðist, utan þess sem hann sjálfur þurfti fyrir brýnustu nauðsynjum og af sínum andlega auð gaf hann ríkulega. Séra Friðrik var helgur maður. Engan Íslending þekki ég, sem hefur eignast meira af auði, sem mölur og ryð fá eigi grandað. Vinir mínir. Séra Friðrik var leiðtogi okkar Valsmanna. Hann var leiðtogi æsku þessarar þjóðar. Hann var vinur barnanna. Hann var mann-
vinur. Hann var heilagur maður. Við Valsmenn og þjóðin öll, varðveitum minningu séra Friðriks Friðrikssonar.(Úr ræðu Alberts Guðmundssonar á afmælisdegi Vals árið 1986)KVEÐJA BORGARSTJÓRADavíð Oddsson, borgarstjórinn í Reykjavík, lét ekki sitt eftir liggja á afmælisdegi Vals og sendi Val kveðju í Valsblaðinu.
Félag eins og Valur, hlýtur að eiga bjarta framtíð. Það hefur mörg verk að vinna og til þess verða gerðar miklar kröfur. Glæst fortíð hlýtur að vera hvatning til þeirra sem um þessar mundir standa í eldlínunni af félagsins hálfu.
(Brot úr grein borgarstjóra, Valsblaðið 1986)
Stelpur sitja við sama borð og strákarMikil aukning hefur orðið á iðkendum í kvennaknattspyrnu í Val
undanfarin fjögur ár. Árið 1986 tóku aðeins tveir keppnisflokkar þátt
í Íslandsmóti en sumarið 1990 voru flokkarnir fjórir og sá fimmti
stofnaður síðastliðið haust. Hugarfarsbreyting hefur átt sér stað hjá
stjórnarmönnum í garð kvennaknattspyrnunnar. Yngri flokkar kvenna
sitja nú við sama borð og yngri flokkar karla. Talsverður munur er
þó á umgjörð í kringum meistaraflokk karla og kvenna, enda fellur
meistaraflokkur kvenna undir unglingaráð samkvæmt skilgreiningu
knattspyrnudeildarinnar.Illa hefur gengið að fá fólk til starfa hjá kvennaflokkunum. Starfið
hefur því mest lent á þjálfurum flokkanna.
(Valsblaðið 1990)
Fyrirliðarnir heilsast fyrir viðureign Vals og Juventus í skítakulda á Laugardalsvell-
inum haustið 1986, Þorgrímur Þráinsson og Michel Platini. Juventus sigraði 4:0. Á
þessum tíma var fyrirkomulagið í Evrópukeppninni með þeim hætti að íslensk lið
gátu hæglega dregist gegn sterkustu liðum Evrópu í 1. umferð. Það fyrirkomulag
breyttist skömmu eftir 1990. Þá kom til undankeppni fyrir „litlu“ liðin þannig að
íslensku liðin geta því tæpast spilað stórleiki nema komast í 3. - 4. umferð undan-
keppninnar.
1981-1990
425
FYRSTA TÖLVAN KEYPTHaraldur Sverrisson viðskipta-fræðingur var ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri Vals árið 1986 og félagið keypti sína fyrstu tölvu ásamt nauðsynlegum hugbúnaði. Skrifstofa félagsins var opnuð að Hlíðarenda í nóvember.Hinn 6. maí var malarvöllurinn, fyrsti völlur Vals að Hlíðarenda, endurvígður og tók Úlfar Þórðar-son upphafsspyrnuna í vígslu-leiknum sem var viðureign Vals og Ármanns í 5. flokki pilta. Valur sigraði 11:0. Í júní var búið að tyrfa um 20.000 m² á neðra svæðinu en það var síðan vígt síðla sumars 1988. Jón Dalbú Hróbjartsson gerði það en meistaraflokkur kvenna lék vígsluleikinn. Lokið var við að klæða gafla og þak nýja íþróttahússins 1986 og í desember sama ár var byrjað á tengihúsinu milli nýja og gamla íþróttahúss-
ins. Úlfar Másson hafði hannað viðbótarbyggingu við félagsheimilið (fjósið) sem varð reyndar aldrei að veruleika. Þá var lokið við að byggja bílastæði fyrir um 150 bifreiðar við Flugvallarveg.
BREYTINGAR Á LÖGUM VALS
Á haustmánuðum 1985 skipaði aðal-stjórn Vals þriggja manna nefnd til að endurskoða lög félagsins. Í nefnd-inni voru Bergur Guðnason, Bjarni Bjarnason og Sigurður Lárus Hólm. Störf nefndarinnar beindust einkum í þann farveg hvernig efla mætti Val og þá einkum félagslega.Á aðalfundi 15. apríl 1986 voru lagðar fram tillögur að lagabreytingu, sem í eðli sínu voru all róttækar. Tillögurnar gerðu ráð fyrir því að áhrif aðalstjórnar
yrðu aukin og
að deildir og
deildarstjór-
nir yrðu lagðar niður en í stað kæmu nefndir hverrar íþrótta-greinar sem aðallega var ætlað það hlut-verk að sinna íþrótta- og félagshliðinni í hverri íþróttagrein. Og stuðla þannig að eflingu félagsins í eina heild. Framhaldsaðal-fundur var síðan haldinn 21. ágúst 1986 þar sem sam-þykktar voru mótatkvæðalaust tillögur formanna nefndarinnar um breytingar á lögum félagsins. (Valsblaðið 1986)
SIGURSÆLAR KONURMeistaraflokkur karla í knattspyrnu hafnaði í 2. sæti á Íslandsmótinu 1986, hlaut jafn mörg stig og Fram en var með lakara markahlutfall. Liðið steinlá 3:0 fyrir KR á heima-velli í 17. umferð og þar með var draumurinn úti. Góður útisigur á Akranesi í síðasta leik dugði ekki til því Fram krækti í jafntefli í Frosta-skjólinu.
Valsmönnum ber saman um að ef Pétur Ormslev hefði leikið með meistaraflokki Vals á níunda áratugnum hefði Valur verið næsta ósigrandi. Pétur er fæddur 1958 en sumir hafa haft á orði að árgang-arnir 1957-1959 hjá Val séu þeir sterkustu sem hafa komið upp hjá nokkru liði fyrr og síðar, ekki síst með tilliti til landsleikjafjölda og titla.
Pétur skipti úr Val yfir í Fram í 3.
flokki og ýjað hefur verið að því að honum og Róberti Jónssyni þjálfara
hafi sinnast.
Ég valdi hann ekki í liðið af því hann æfði ekki nógu vel. Pabbi Péturs, Gunnar Ormslev hinn þekkti tón-listarmaður, var danskættaður og sonur hans hefur líklega oft verið í Danmörku. Þegar 3. flokkur fór til Danmerkur 1973 ákvað Pétur að fara ekki með okkur. Hann var í A-liði áður en við fórum út og þegar við komum heim ætlaði ég að láta hann halda sæti sínu í næsta leik en hann mætti illa á æfingar. Þar með datt hann niður í B-liðið og spilaði með því sem eftir lifði sumars. Ef ég klikkaði á því sem þjálfari að refsa þeim besta klikkaði ég á öllu. Það var ekkert stirt á milli okkar þrátt fyrir þetta.En um haustið í „gaggó Aust” var sessunautur Péturs Framari og sá dró hann með sér á æfingu hjá Fram, að ég best veit. Eflaust hafði það eitthvað að segja að hann hafði ekki verið í A-liðinu hjá mér. Mér þótti sárt að sjá á eftir honum því Pétur Ormslev er einn besti alhliða knatt-spyrnumaður sem Ísland hefur átt.
(Róbert Jónsson, 2011)
Keppnistreyja Michel Platini úr viðureign Vals og Juventus í Toronto
1986 en þá skiptust fyrirliðarnir á treyjum.
Platini áritaði hana þegar hann heimsótti Ísland
20 árum síðar og rak upp stór augu þegar hann sá
gömlu treyjuna því hann átti enga sjálfur.
Áfram, hæ ra! F amtíð rsýn
„Meistaraflokkarnir eiga
að vera prýddir íþrótta-
mönnum sem eru aldir
upp í félaginu og hafa
gaman af að æfa og leika
með Val. Ef þeir standa
sig vel bíður tækifærið
við endann.“
JÓN PÉTUR JÓNSSON
„Eðlileg skylda íþróttafélags er að vinna að fjöl-
breyttum markmiðum með börnum og unglingum,
skapa þeim ákjósanlegan vettvang til að þroska
félagsfærni sína en jafnframt því að ástunda heil-
brigða keppni í íþróttum með það að markmiði að ná
sem bestum árangri. Hlíðarendi er og á að vera staður
þar sem kynslóðir mætast, standa saman og vinna að
sameiginlegum markmiðum, jafnframt því að vera
hornsteinn æskulýðs- og tómstundastarfs í félags-
hverfinu sínu. Valur hefur ríkar samfélagslegar
skyldur og sinnir þeim á margvíslegan hátt.“
HÖRÐUR GUNNARSSON
Þótt á móti blási með margvíslegum hætti á
100 ára afmælisárinu er bjart framundan.
Flugdreki tekst ekki á loft í meðbyr heldur
mótvindi. Valur býr yfir gífurlegum mann-
auði og við þurfum öll að hjálpast að við að
hlúa að iðkendum og þeim sem sækja Hlíðar-
enda heim. Unga fólkið er framtíðin og mikil-
vægasta augnablik Vals er dagurinn í dag.
Með því að grípa daginn styrkjum við stoðir
félagsins um ómunatíð.
Séra Friðrik hvatti okkur til að láta
aldrei kappið bera fegurðina ofurliði
og annar merkur Valsmaður sagði svo
snilldarlega: „Valur er ekkert annað
en ég, þú og allir hinir!”
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON
6B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur