Valsblaðið - 01.05.2011, Page 96
Áfram, hærra!
Bók fyrir æskuna í Val
Út er komin bók sem geymir myndir og minningar frá vegferð Knattspyrnufélagsins
Vals í 100 ár. Bókin heitir Áfram, hærra! og er 700 síður, litprentuð, í stóru
broti. Höfundur bókarinnar er Þorgrímur Þráinsson. Bókin er, eins og vænta má,
um fortíðina í Val, en í henni er líka fjallað um nútíð og framtíð félagsins.
Heiti bókarinnar; Áfram, hærra! vísar til framtíðar Vals og félagsmanna.
Áfram, hærra! er hvatning fyrir hvern nýjan dag. Orðin eru sótt í erindi sem
Friðrik, faðir Vals, flutti Valsmönnum í Hamrahlíð, í Úlfarsfelli, sumarið 1911.
Séra Friðrik beindi sjónum til framtíðar – nestaður sögu og reynslu fortíðar.
Valur er það sem hann hefur verið – samanlagt.
Hver nýr dagur er áskorun um að halda áfram, hærra!
Bókinni má líkja við hóp Valsmanna sem setjast á stein í fjallshlíð og líta
yfir farinn veg. Þeir rifja upp áætlun sína og horfa til hæða. Nýir liðsmenn
bætast í hópinn – aðrir hverfa á braut. Áfram, hærra! geymir fróðleik og
hvatningu fyrir gamla og nýja liðsmenn, en umfram allt fyrir æskuna í Val.
Næstu síður veita hugmyndir um bókina Áfram, hærra! og sýn
Valsmanna á það sem mestu skiptir: Framtíð Vals!
Þorsteinn Haraldsson, form. ritstjórnar Áfram, hærra!
Þorgrímur Þráinsson
Knattspyrnufélagið Valur í 100 ár
ÁFRAM, HÆRRA!
ÁFRAM, HÆRRA!
1911-2011
Þorgrímur Þráinsson
ÁFRAM, HÆRRA! Áfram, hærra! er minningabók um 100 ár í starfi Knattspyrnufélagsins Vals, séð með augum höfund-arins og ritstjórnarinnar sem var honum til fulltingis. Knattspyrnufélagið Valur var stofnað 11. maí 1911. Bókin geymir fjölda mynda og frásagna.Í upphafi segir frá því að strákar í KFUM stofnuðu Val. Séra Friðrik lagði grunn að starfinu í félaginu en Valur komst á flug þegar Friðrik áttaði sig á því að knattspyrna er reglubundinn leikur. Hann fann í knattspyrnuleiknum tækifæri til að kenna og leið-beina og skapa heilsteypta dugandi menn:
Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik-
inn. Kærið ykkur ekki um að vinna með röngu
eða ódrengilegu bragði. Hælist aldrei yfir
þeim sem tapa.
... 100 ár hafa liðið og bókin segir frá þeim.Strákar og stelpur hafa áhuga á leiknum
... og leikurinn er undirbúningur til sigurs í lífinu. Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði!
Áfram, hærra!Láttu æskunnar ár
verða ævinnar salt,
svo að aldregi sljóvgist þín sál.
Hreint og milt skal þitt mál,
líkt og marksækin ör
ávallt miða til gagns …
Fram á lýsandi leið
skal þér litið í trú,
þar sem ljómandi takmark þér skín.
Vertu heilhuga og hrein(n)
þá mun hamingju vor
veita hagsæla þroskun og dug.
Áfram, hærra!
Láttu sigrandi þor
búa í sál þinni og vekja þinn hug.
Áfram, hærra!
Vertu bæði fús og frá(r)
til að framkvæma allt,
sem þú finnur að rétt styður mál.
6B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur