Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 107
104 Valsblaðið 2011
Knáir kappar háðu harða hildi á hvítum
reitum og svörtum í glæsilegum salar-
kynnum Valsmanna. Hellt var upp á
könnuna og boðið upp á súkkulaðikex og
fór vel um keppendur. Keppendur höfðu
tíu mínútur til umhugsunar á hverja skák.
Eftir um það bil þriggja stunda setu voru
úrslit kunn og fór verðlaunaafhending
fram með pompi og pragt. Ríkharður
Sveinsson varð hlutskarpastur og hlaut að
launum forláta gullpening og nafnbótina
skákmeistari Vals 2011. Óttar Felix
Hauksson varð í öðru sæti og fór heim
með silfrið. Þriðja sætið og bronspening-
urinn féll í hlut Georgs Páls Skúlasonar.
Var það mál manna að úrslitin hefðu ver-
ið sanngjörn og héldu Valsmenn þessir á
braut að móti loknu sáttir við sinn hlut.
Skákmeistarar Vals undanfarin ár:
2009 Óttar Felix Hauksson
2010 Helgi Brynjarsson
2011 Ríkharður Sveinsson
Afmælisskákmót Vals
Ríkharður Sveinsson er
skákmeistari Vals 2011
Afmælisskákmót Vals 2011 fór fram að
Hlíðarenda miðvikudaginn 30. febrúar
Verðlaunahafar á afmælisskákmóti Vals 2011. Ríkarður Sveinsson sigurvegari er í
miðið, Óttar Felix Hauksson t.h. var í öðru sæti og Georg Páll Skúlason t.v. varð í
þriðja sæti.
Vesturgata 2 | 101 Reykjavík
Sími: 552 3030 eða 840 2566
www.restaurantreykjavik.is
restaurant@restaurantreykjavik.is
Fjölbreyttur matseðill
Valsblaðið 2011 105
Ingunn er búin að æfa fótbolta á fullu
síðan hún var 10 ára, á yngra ári í 5.
flokki. Hún segist hafa byrjað í Val af því
að bróðir hennar var þá að æfa með Val
og félagið væri í hverfinu hennar.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að
hafa fengið Friðriksbikarinn í haust?
„Það var mikill heiður að taka á móti
Friðriksbikarnum og það hafði mikla
þýðingu fyrir mig að fá þessi verðlaun.
Ég var mjög óheppin með meiðsli á síð-
asta tímabili og Friðriksbikarinn er mér
því gríðarleg hvatning til að halda ótrauð
áfram.“
Hvernig gekk ykkur í sumar? „Við átt-
um rosalega gott tímabil í sumar og end-
uðum það með Íslandsmeistaratitli. Við
erum mjög góður hópur og við náum all-
ar vel saman. Liðsheildin hefur komið
okkur langt. Það er mikil samkeppni inn-
an flokksins, enda allar gríðarlega efni-
legar knattspyrnukonur. Svo er náttúru-
lega búið að vera frábært teymi í kring-
um hópinn, foreldrar og þjálfarar sem
leggja mikið upp úr góðum anda í hópn-
um.“
Hvernig er hópurinn núna? „Það er
frekar stutt síðan 2. flokkur byrjaði að
æfa saman og er Rakel Logadóttir að
þjálfa okkur. Hópurinn er þéttur og mjög
góður. Æfingarnar hjá Rakel eru krefj-
andi og skemmtilegar og Rakel er frábær
þjálfari.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Á Dana Cup sumarið 2010
gerði Kjartan Orri aðstoðarþjálfarinn
okkar veðmál við okkur, ef að við ynnum
mótið færi hann í brúnkusprautun fyrir
uppskeruhátíðina. Við unnum síðan Dana
Cup og Orri, sem er rauðhærður og
venjulega næpuhvítur, stóð við sinn hluta
veðmálsins og var útkoman vægast sagt
skrautleg.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Katrín Jónsdóttir hefur allt-
af verið mikil fyrirmynd fyrir mig og
einnig Atli Sveinn Þórarinsson karlameg-
in. Svo held ég mikið upp á Cesc Fabr-
egas leikmann Barcelona.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Íþróttir snúast hrikalega mikið um hug-
arfar. Það að hafa trú á sjálfri sér og vera
ákveðin getur fleytt manni ansi langt.
Svo skemmir ekki fyrir að hafa einhverja
hæfileika. Það er heilmargt sem ég þarf
að vinna í en aðallega er það tæknin sem
ég þarf að bæta.“
Hvers vegna fótbolti? „Ég æfði fimleika
í 5 ár og fór svo í frjálsar í hálft ár. Einn-
ig hef ég æft badminton í hálft ár. Fót-
boltinn er ólíkt öðru sem ég hef æft, hóp-
íþrótt. Það er rosalega gott félagslíf í
kringum boltann sem er mikilvægt þegar
maður eyðir svona miklum tíma í ein-
hverjar tómstundir.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Í föðurættinni eru allir
grjótharðir KR-ingar úr Vesturbænum og
móðurættin býr í Noregi þannig að það
er lítið um Valsara í fjölskyldunni þannig
að ætli ég sé ekki að skrifa söguna í þeim
efnum.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum í sam-
bandi við fótboltann? „Foreldrar mínir
hafa alltaf stutt mig mjög vel og hvetja
mig til þess að huga að heilbrigðu líferni
til að ég geti náð eins langt og ég get.
Systkini mín styðja mig einnig mikið og
eru dugleg að kíkja á leiki hjá mér og
fara út á sparkvöll að æfa. Að mínu mati
er jákvæð hvatning frá fjölskyldu afar
mikilvæg, það hefur allavega hjálpað
mér mikið.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val í fót-
bolta? „Ég tel að markmið yngri flokk-
anna eigi að vera að byggja upp bæði
gott knattspyrnufólk sem er með góð tök
á grunntækni, jafnt sem þroskaða ein-
staklinga sem eru góðar hópsálir og njóta
þess að stunda knattspyrnu. Þessi mark-
mið skipta miklu meira máli en titla-
fjöldi.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Mínir draumar eru að fara í háskólabolt-
ann í Bandaríkjunum og fara svo í at-
vinnumennsku í sterkri deild í Evrópu.
Ég er mjög óviss með hvað ég ætla að
læra, það kemur í ljós síðar. Ef allt geng-
ur að óskum sé ég mig fyrir mér eftir 10
ár í Svíþjóð, t.d. að spila með úrvals-
deildarliði og vinna eitthvað tengt nátt-
úrufræði.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson þann 11. maí árið
1911.“
Framtíðarfólk
Liðsheildin hefur
komið okkur langt
Ingunn Haraldsdóttir er 16 ára og leikur fótbolta
með 2. flokki og er handhafi Friðriksbikarsins 2011
7A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
7
1112276 V
alur