Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 117

Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 117
Valsblaðið 2011 115 Starfið er margt enda styrkst jafnt og þétt og í dag er Val- ur eitt öflugasta og glæsilegasta íþrótta- félag landsins. Að lokum vil ég þakka afmælisnefnd félagsins sem undir stórn Reynis Vignis fyrrverandi formanns Vals hefur unnið mjög fórnfúst og metnaðarfullt starf í þau tvö ár sem afmælisnefndin hefur starfað. Einnig vil ég þakka minjanefnd undir stjórn Magnúsar Ólafssonar fyrir þeirra frábæra starf en minjanefndin hjálpar okkur að halda utan um merka sögu félagsins og víst er að ekkert félag stend- ur undir nafni sem ekki varðveitir og heldur vel utan um og sögu sína. Jafn- framt færi ég Valsmönnum kærar þakkir fyrir stuðning þeirra við uppsetningu sögusýningarinnar. Kæru Valsmenn, gleymum því ekki að félagið okkar verður aldrei öflugra en að- koma okkar að starfinu er hverju sinni. Félag eins og Valur er fyrst og fremst rekið af sjálfboðaliðum og við vitum að margar hendur vinna létt verk. Því vil ég hvetja ykkur kæru Valsmenn til áfram- haldandi starfa um leið og ég þakka ykk- ur fyrir að stuðlað að því að gera Val að mesta afreksfélagi Íslands. Til hamingju með daginn starfi Vals. Samtakamáttur félaga í Val hefur allar götur frá stofnun félagsins gert því kleift að halda úti fjölbreyttu starfi. Enda má með sanni segja að Knattspyrnufélagið Valur hafi árum sam- an verið hornsteinn æskulýðs- og tóm- stundastarfs í félagshverfinu sínu. Það er eðlileg skylda íþróttafélags að vinna að fjölbreyttum markmiðum með börnum og unglingum, skapa þeim ákjósanlegan vettvang til að þroska félagsfærni sína en jafnframt því að ástunda heilbrigða keppni í íþróttum með það að markmiði að ná sem bestum árangri. Hlíðarendi er og á að vera staður þar sem kynslóðir mætast, standa saman og vinna að sam- eiginlegum markmiðum. Styrkur Vals byggir á trúmennsku og stuðningi félagsmanna sem á hverjum tíma leggja félaginu lið. Þeir skapa með ötulu starfi sínu það blómlega starf sem við þekkjum hjá Val. Í gegnum árin hefur félagið átt því láni að fagna að fá til starfa sérstakega vandað og gott fólk. Það á jafnt við um forystumenn, leið- beinendur, starfsfólk, sjálfboðaliða að ógleymdum iðkendum og foreldrum þeirra barna og unglinga sem keppt hafa undir merkjum Vals. Það má öllum ljóst vera að umfram allt annað er það öflugt innra starf sem er mælikvarði á styrk félagsins, aðstaðan kemur svo þar á eftir. Ekki má heldur gleyma aðkomu Reykja- víkurborgar og þeim fjölmörgu styrktar- aðilum sem hafa átt sinn þátt í því að skapa þá umgjörð sem við þekkjum á Hlíðarenda. Allir þessir aðilar eiga mikl- ar þakkir skildar. Á þeirri öld sem liðin er frá stofnun Knattspyrnufélagsins Vals hefur þjóðin og heimsbyggðin öll lifað margvíslega umbrotatíma. Það má með sanni segja að allan þennan tíma hafi starfið á Hlíðar- hundrað ár? Hvernig verður þá horft til baka og mat lagt á stöðu félagsins í dag? Þessum spurningum getur enginn svarað enda erfitt að geta sér til um framtíðina. Við sem að félaginu stöndum hverju sinni verðum að sameinast um að félagið hafi skýra stefnu, metnaðarfull markmið og raunhæfar leiðir sem hver og einn Valsmaður getur unnið eftir svo að tak- marki okkar verði náð. Aðeins þannig nær Valur að viðhalda og þróa áfram það góða og árangursríka starf sem einkennt hefur Val í heila öld. Síðustu árin höfum við leynt og ljóst unnið að því að gera hlut beggja kynja sem jafnastan innan félagsins, efla barna- og unglingastarf og aðkomu foreldra að starfinu. Jafnframt höfum við sett okkur metnaðarfull markmið á afrekssviði félagsins. Það er staðreynd að góður ár- angur innan vallar eykur áhuga og ástundun barna í íþróttum og margir ólík- ir þættir í félagsstarfinu syðja hver við annan og mynda þannig sterka liðsheild. Til að gera allt starf félagsins öflugra og markvissara er Valur kominn í hóp fyrirmyndarfélaga innan ÍSÍ og má geta þess að allar deildir félagsins náðu því markmiði. Jafnframt því að leggja áherslu á að styrkja allt innra starf félags- ins hefur á undanförnum árum verið reist hér á Hlíðarenda glæsileg aðstaða til félagsstarfs og íþróttaiðkunar – nú síðast var unnið að viðamiklum endurbótum á gamla íþróttahúsinu. Það er stefna félags- ins að á næstu árum verði gert enn betur í að byggja hér upp og bæta aðstöðuna. Þeir sem þekkja sögu félagsins vita að aðeins fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf frumkvöðlanna getur Valur státað af öfl- ugu félagsstarfi og einstaklega góðri að- stöðu hér á Hlíðarenda – sem hefur frá árinu 1939 verið miðpunkturinn í öllu Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp á hátíðardagskránni á afmælisdaginn og þakkaði m.a. félaginu fyrir mikilsvert framlag til íþróttastarfs í landinu og brýndi Valsmenn til frekari dáða, ekki síst í uppbyggingarstarfinu í yngri flokkum og félagsstarfi. Við þetta tækifæri færðu Vals- menn forsetaembættinu að gjöf inn- rammaða mynd af æskulýðsleiðtoganum sr. Friðriki Friðrikssyni sem forseti Ís- lands þakkaði fyrir og sagðist myndu hengja upp í góðum stað á Bessastöðum. 126 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Laugardaginn 12. nóvember sl. var hald- in glæsileg ráðstefna um þjálfun barna og unglinga í Vodafone höllinni að Hlíðar- enda. Ráðstefnan var haldin í samstarfi Fálkanna og Vals. Á ráðstefnunni héldu nokkrir af fremstu þjálfurum landsins fyrirlestra um ýmsa mikilvæga þætti í þjálfun barna og unglinga. Lögð var áhersla á að fá Valsara til að halda fyrir- lestra. Þetta er stærsta verkefni sem Fálk- arnir hafa komið að frá stofnun félagsins 2009, sjá nánar á falkar.is. Valsblaðiðið fór þess á leit við nokkra fyrirlesara úr hópi Valsara að birta erindi þeirra og urðu þeir góðfúslega við þeirri beiðni og eru þeim færðar þakkir fyrir. Þjálfun barna og unglinga Glæsileg ráðstefna um þjálfun barna og unglinga í Vodafone höllinni Þann 12. nóvember var haldin ráðstefna um íþróttir barna og unglinga á vegum Fálkanna og Vals. Undirrituð hélt þar er- indi þar sem skoðuð var íþróttaþátttaka barna og unglinga hjá íþróttafélögum, ástæður brottfalls og sjálfsmat, notkun vímuefna og námsárangur út frá íþrótta- þátttöku. Gögnin sem fjallað var um í fyr- irlestrinum og í þessari grein eru fengin úr æskulýðsrannsóknunum Ungt fólk sem Rannsóknir & greining vinnur fyrir mennta- og menningarmálaráðurneytið. Hér er unnið með gögn sem safnað var í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2009. Svörunin var frá tæplega 84% í 10. bekk þar sem hún var lökust upp í rúm- lega 88% í 5. bekk þar sem hún var best. Ég var svo heppin að fá aðgang að gögn- um Rannsókna og greiningar og Margrét Lilja Guðmundsdóttir Valsmamma og starfsmaður Rannsókna & greiningar var svo elskuleg að keyra út úr gagnagrunn- inum þau gögn sem að okkar mati voru spennandi. Íþróttaþátttaka barna og unglinga hjá íþróttafélögum Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að íþróttaiðkun undir stjórn ábyrgra aðila hefur margvísleg jákvæð áhrif á hegðun- armynstur barna og unglinga. Í því ljósi er fróðlegt að skoða hver raunveruleg þátttaka íslenskra barna og unglinga er í íþróttum með íþróttafélagi. Þegar íþróttaþátttaka grunnskólabarna frá 5.–10. bekk er skoðuð (mynd1) kem- ur í ljós að tæplega 40% barna í 5. bekk æfa ekki íþróttir með íþróttafélagi og er sú tala komin upp í 49% þegar börnin eru komin upp í 10. bekk. Íþróttaþátttaka er mest í 7.–8. bekk en þá fer að draga úr þátttökunni og brottfall að aukast. For- varnargildi íþrótta eykst eftir því sem íþróttaþátttakan er meiri og er því mest hjá þeim sem æfa fjórum sinnum í viku eða oftar. Þegar það er haft í huga er vert að skoða mynd 1 en hún sýnir að 32% nemenda í 10. bekk æfa íþróttir fjórum sinnum í viku eða oftar. Íþróttaiðkun og reykingar Fjölmargar íslenskar rannsóknir hafa sýnt að unglingar sem iðka íþróttir og/eða lík- amsrækt eru ólíklegri til þess að reykja og er hlutfall unglinga sem reykja daglega lægst á meðal þeirra sem oftast iðka íþrótt- ir og/eða líkamsrækt á viku. Því oftar sem unglingar stunda íþróttir með íþróttafélagi á viku þeim mun ólíklegri eru þeir til að reykja sbr. mynd 2. Þegar samband áfeng- isneyslu og íþróttaiðkunar er skoðað þá er það einnig neikvætt sem þýðir að því Íþróttaþátttaka, brottfall, víma, sjálfsmat og námsárangur eftir Ragnhildi Skúladóttur yfirmann barna- og unglingasviðs Vals Mynd 1. Hlutfall nemenda í 5.–10. bekk sem æfir íþróttir með íþróttafélagi eftir því hversu oft þau æfa í viku. Mynd 2. Hlutfall nemenda í 9.–10. bekk sem neyta vímuefna eftir því hversu oft þeir stunda íþróttir með íþróttafélagi. 8B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.