Valsblaðið - 01.05.2011, Side 124

Valsblaðið - 01.05.2011, Side 124
Valsblaðið 2011 119 Starfið er margt 122 Valsblaðið 2011 Nám: Stunda nám á náttúrufræðibraut á afrekssviði í Borgarholtsskóla. Kærasti: Já. Hvað ætlar þú að verða: Ákvað 12 ára að verða byggingaverkfræðingur, ekki spyrja af hverju, veit það ekki almenni- lega sjálf. En ég stend við mín orð. Af hverju Valur: Spennandi áskorun, nýjar áherslur, umgjörð og metnaður til fyrirmyndar og frábærir samherjar. Hjá hvaða liðum hefur þú verið í fót- bolta: Er uppalinn Þróttari. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í fótboltanum: Þau reyndu að skipuleggja ferðalög og allt í kringum fótboltann og veita mér 100% skilning þegar ég hef tekið fótboltann fram yfir allt annað. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni: Allavega ekki pabbi. Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að verða: Hjartaskurðlæknir, en mikið er ég fegin að það nenni því einhver. Af hverju fótbolti: Vinkona mín píndi mig með sér á æfingu, ég nennti ekki að hlaupa svo ég fór bara í markið, hef varla misst af æfingu síðan þá og er henni mjög þakklát í dag. Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Ég lærði Óla prik dansinn hérna forðum, fyrir mig er það eitt og sér stórt afrek þar sem að ég kann ekki að dansa, fleiri hafa afrek í öðrum íþróttagreinum utan fót- boltans ekki verið. Eftirminnilegast úr boltanum: Ætli það hafi ekki verið Pæjumótstitillinn á Siglu- firði í 5. flokki, ógleymanleg stund. Ann- ars verður tímabilið 2009–10 seint topp- að, 5 tiltlar af 5 mögulegum. Hvernig var síðasta tímabil: Vantaði bara þann stóra, þá hefði það verið full- komið. En við urðum Íslandsmeistarar þriðja árið í röð í 2. flokki sem er frá- bært. Hvernig gengur næsta sumar: Maður stefnir á fleiri titla en árið á undan, ef við vinnum vel og æfum af krafti þá ætti ekkert að standa í vegi okkar. Besti stuðningsmaðurinn: Kvartettinn sem mætir á alla leiki. Erfiðustu samherjarnir: Laufey Ólafs, hún tapar ekki á æfingu. Erfiðustu mótherjarnir: Laufey Ólafs þegar hún er í hinu liðinu, óþolandi. Eftirminnilegasti þjálfarinn: Erfitt að gera upp á milli, Freyr Alexandersson og Gunnar Borgþórsson. Stærsta stundin: Að verða bikarmeistari með meistaraflokki í fyrsta skipti var mjög stór stund fyrir mig. Einnig þegar ég varð Íslandsmeistari í fyrsta skiptið með 2. flokki. Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót- bolta hjá Val: Alveg til fyrirmyndar af því sem ég hef séð. Metnaðargjarnir þjálfarar og leikmenn. Hvað lýsir þínum húmor best: Fyndn- asta sem ég veit um er þegar fólk rennur eða jafnvel dettur á rassinn, án þess þó að meiða sig alvarlega, get hlegið enda- laust af mistökum annarra. Mottó: Þegar afrek gærdagsins eru ennþá stór í dag, þá hefur þú ekki gert mikið í dag. Leyndasti draumur: Minn draumur er ekkert leyndarmál. Ég ætla bara alla leið í lífinu, bæði í fótbolta og ýmsu öðru. Við hvaða aðstæður líður þér best: Þegar ég er búin að taka rosalega á því og fara í heitan pott á eftir. Skemmir ekki að koma svo heim í góðan mat. Hvaða setningu notarðu oftast: Nota orðið „gaur“ alveg óspart, nánast í hverri setningu. „Nenniru að rétta mér gaurinn þarna sem er ofan á gaurnum.“ Skemmtilegustu gallarnir: Er alveg af- skaplega kaldhæðin, fólk sem þekkir mig lítið á það til að horfa skringilega á mig þegar það fattar ekki að ég sé að djóka. Fullkomið laugardagskvöld: Dauð- þreytt eftir átök og steinsofna í sófanum. Fyrirmynd þín í fótbolta: Hope Solo besti markvörður heims. Draumur um atvinnumennsku í fót- bolta: Það er draumurinn að komast í at- vinnumennsku og lifa 100% atvinnu- mannalífi. Landsliðsdraumar þínir: Það er draum- ur hvers knattspyrnuiðkanda að komast í byrjunarlið A landsliðsins, ég er svo sannarlega ein af þeim. Besti söngvari: Robbie Williams. Besta hljómsveit: Queen, Bítlarnir. Besta bíómynd: Taken með Liam Nee- son. Besta bók: Er enginn bókaormur, en af þeim sem ég hef lesið myndi það senni- lega vera Grafarþögn eftir Arnald Indr- iðason. Besta lag: Angels – Robbie Williams. Uppáhaldsvefsíðan: Facebook og Fót- bolti.net. Uppáhalds erlendu fótboltafélögin: Barcelona og Liverpool. Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd- ir þú gera: Gera Hlíðarenda enn betri. Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar- enda: Toppaðstaða, besta félagsheimili landsins. Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu árum: Halda áfram og jafnvel auka byggingu meistaraflokks á ungum og uppöldum leikmönnum. Framtíðarfólk Draumurinn að komast í atvinnumennsku Þórdís María Aikman er 18 ára og leikur fótbolta með meistaraflokki og 2. flokki 8B B lack Y ellow M agenta C yan 1112276 V alur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.