Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 128

Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 128
Valsblaðið 2011 115 Starfið er margt enda styrkst jafnt og þétt og í dag er Val- ur eitt öflugasta og glæsilegasta íþrótta- félag landsins. Að lokum vil ég þakka afmælisnefnd félagsins sem undir stórn Reynis Vignis fyrrverandi formanns Vals hefur unnið mjög fórnfúst og metnaðarfullt starf í þau tvö ár sem afmælisnefndin hefur starfað. Einnig vil ég þakka minjanefnd undir stjórn Magnúsar Ólafssonar fyrir þeirra frábæra starf en minjanefndin hjálpar okkur að halda utan um merka sögu félagsins og víst er að ekkert félag stend- ur undir nafni sem ekki varðveitir og heldur vel utan um og sögu sína. Jafn- framt færi ég Valsmönnum kærar þakkir fyrir stuðning þeirra við uppsetningu sögusýningarinnar. Kæru Valsmenn, gleymum því ekki að félagið okkar verður aldrei öflugra en að- koma okkar að starfinu er hverju sinni. Félag eins og Valur er fyrst og fremst rekið af sjálfboðaliðum og við vitum að margar hendur vinna létt verk. Því vil ég hvetja ykkur kæru Valsmenn til áfram- haldandi starfa um leið og ég þakka ykk- ur fyrir að stuðlað að því að gera Val að mesta afreksfélagi Íslands. Til hamingju með daginn starfi Vals. Samtakamáttur félaga í Val hefur allar götur frá stofnun félagsins gert því kleift að halda úti fjölbreyttu starfi. Enda má með sanni segja að Knattspyrnufélagið Valur hafi árum sam- an verið hornsteinn æskulýðs- og tóm- stundastarfs í félagshverfinu sínu. Það er eðlileg skylda íþróttafélags að vinna að fjölbreyttum markmiðum með börnum og unglingum, skapa þeim ákjósanlegan vettvang til að þroska félagsfærni sína en jafnframt því að ástunda heilbrigða keppni í íþróttum með það að markmiði að ná sem bestum árangri. Hlíðarendi er og á að vera staður þar sem kynslóðir mætast, standa saman og vinna að sam- eiginlegum markmiðum. Styrkur Vals byggir á trúmennsku og stuðningi félagsmanna sem á hverjum tíma leggja félaginu lið. Þeir skapa með ötulu starfi sínu það blómlega starf sem við þekkjum hjá Val. Í gegnum árin hefur félagið átt því láni að fagna að fá til starfa sérstakega vandað og gott fólk. Það á jafnt við um forystumenn, leið- beinendur, starfsfólk, sjálfboðaliða að ógleymdum iðkendum og foreldrum þeirra barna og unglinga sem keppt hafa undir merkjum Vals. Það má öllum ljóst vera að umfram allt annað er það öflugt innra starf sem er mælikvarði á styrk félagsins, aðstaðan kemur svo þar á eftir. Ekki má heldur gleyma aðkomu Reykja- víkurborgar og þeim fjölmörgu styrktar- aðilum sem hafa átt sinn þátt í því að skapa þá umgjörð sem við þekkjum á Hlíðarenda. Allir þessir aðilar eiga mikl- ar þakkir skildar. Á þeirri öld sem liðin er frá stofnun Knattspyrnufélagsins Vals hefur þjóðin og heimsbyggðin öll lifað margvíslega umbrotatíma. Það má með sanni segja að allan þennan tíma hafi starfið á Hlíðar- hundrað ár? Hvernig verður þá horft til baka og mat lagt á stöðu félagsins í dag? Þessum spurningum getur enginn svarað enda erfitt að geta sér til um framtíðina. Við sem að félaginu stöndum hverju sinni verðum að sameinast um að félagið hafi skýra stefnu, metnaðarfull markmið og raunhæfar leiðir sem hver og einn Valsmaður getur unnið eftir svo að tak- marki okkar verði náð. Aðeins þannig nær Valur að viðhalda og þróa áfram það góða og árangursríka starf sem einkennt hefur Val í heila öld. Síðustu árin höfum við leynt og ljóst unnið að því að gera hlut beggja kynja sem jafnastan innan félagsins, efla barna- og unglingastarf og aðkomu foreldra að starfinu. Jafnframt höfum við sett okkur metnaðarfull markmið á afrekssviði félagsins. Það er staðreynd að góður ár- angur innan vallar eykur áhuga og ástundun barna í íþróttum og margir ólík- ir þættir í félagsstarfinu syðja hver við annan og mynda þannig sterka liðsheild. Til að gera allt starf félagsins öflugra og markvissara er Valur kominn í hóp fyrirmyndarfélaga innan ÍSÍ og má geta þess að allar deildir félagsins náðu því markmiði. Jafnframt því að leggja áherslu á að styrkja allt innra starf félags- ins hefur á undanförnum árum verið reist hér á Hlíðarenda glæsileg aðstaða til félagsstarfs og íþróttaiðkunar – nú síðast var unnið að viðamiklum endurbótum á gamla íþróttahúsinu. Það er stefna félags- ins að á næstu árum verði gert enn betur í að byggja hér upp og bæta aðstöðuna. Þeir sem þekkja sögu félagsins vita að aðeins fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf frumkvöðlanna getur Valur státað af öfl- ugu félagsstarfi og einstaklega góðri að- stöðu hér á Hlíðarenda – sem hefur frá árinu 1939 verið miðpunkturinn í öllu 126 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Laugardaginn 12. nóvember sl. var hald- in glæsileg ráðstefna um þjálfun barna og unglinga í Vodafone höllinni að Hlíðar- enda. Ráðstefnan var haldin í samstarfi Fálkanna og Vals. Á ráðstefnunni héldu nokkrir af fremstu þjálfurum landsins fyrirlestra um ýmsa mikilvæga þætti í þjálfun barna og unglinga. Lögð var áhersla á að fá Valsara til að halda fyrir- lestra. Þetta er stærsta verkefni sem Fálk- arnir hafa komið að frá stofnun félagsins 2009, sjá nánar á falkar.is. Valsblaðiðið fór þess á leit við nokkra fyrirlesara úr hópi Valsara að birta erindi þeirra og urðu þeir góðfúslega við þeirri beiðni og eru þeim færðar þakkir fyrir. Þjálfun barna og unglinga Glæsileg ráðstefna um þjálfun barna og unglinga í Vodafone höllinni Þann 12. nóvember var haldin ráðstefna um íþróttir barna og unglinga á vegum Fálkanna og Vals. Undirrituð hélt þar er- indi þar sem skoðuð var íþróttaþátttaka barna og unglinga hjá íþróttafélögum, ástæður brottfalls og sjálfsmat, notkun vímuefna og námsárangur út frá íþrótta- þátttöku. Gögnin sem fjallað var um í fyr- irlestrinum og í þessari grein eru fengin úr æskulýðsrannsóknunum Ungt fólk sem Rannsóknir & greining vinnur fyrir mennta- og menningarmálaráðurneytið. Hér er unnið með gögn sem safnað var í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2009. Svörunin var frá tæplega 84% í 10. bekk þar sem hún var lökust upp í rúm- lega 88% í 5. bekk þar sem hún var best. Ég var svo heppin að fá aðgang að gögn- um Rannsókna og greiningar og Margrét Lilja Guðmundsdóttir Valsmamma og starfsmaður Rannsókna & greiningar var svo elskuleg að keyra út úr gagnagrunn- inum þau gögn sem að okkar mati voru spennandi. Íþróttaþátttaka barna og unglinga hjá íþróttafélögum Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að íþróttaiðkun undir stjórn ábyrgra aðila hefur margvísleg jákvæð áhrif á hegðun- armynstur barna og unglinga. Í því ljósi er fróðlegt að skoða hver raunveruleg þátttaka íslenskra barna og unglinga er í íþróttum með íþróttafélagi. Þegar íþróttaþátttaka grunnskólabarna frá 5.–10. bekk er skoðuð (mynd1) kem- ur í ljós að tæplega 40% barna í 5. bekk æfa ekki íþróttir með íþróttafélagi og er sú tala komin upp í 49% þegar börnin eru komin upp í 10. bekk. Íþróttaþátttaka er mest í 7.–8. bekk en þá fer að draga úr þátttökunni og brottfall að aukast. For- varnargildi íþrótta eykst eftir því sem íþróttaþátttakan er meiri og er því mest hjá þeim sem æfa fjórum sinnum í viku eða oftar. Þegar það er haft í huga er vert að skoða mynd 1 en hún sýnir að 32% nemenda í 10. bekk æfa íþróttir fjórum sinnum í viku eða oftar. Íþróttaiðkun og reykingar Fjölmargar íslenskar rannsóknir hafa sýnt að unglingar sem iðka íþróttir og/eða lík- amsrækt eru ólíklegri til þess að reykja og er hlutfall unglinga sem reykja daglega lægst á meðal þeirra sem oftast iðka íþrótt- ir og/eða líkamsrækt á viku. Því oftar sem unglingar stunda íþróttir með íþróttafélagi á viku þeim mun ólíklegri eru þeir til að reykja sbr. mynd 2. Þegar samband áfeng- isneyslu og íþróttaiðkunar er skoðað þá er það einnig neikvætt sem þýðir að því Íþróttaþátttaka, brottfall, víma, sjálfsmat og námsárangur eftir Ragnhildi Skúladóttur yfirmann barna- og unglingasviðs Vals Mynd 1. Hlutfall nemenda í 5.–10. bekk sem æfir íþróttir með íþróttafélagi eftir því hversu oft þau æfa í viku. Mynd 2. Hlutfall nemenda í 9.–10. bekk sem neyta vímuefna eftir því hversu oft þeir stunda íþróttir með íþróttafélagi. 8B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.