Valsblaðið - 01.05.2011, Page 130

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 130
Valsblaðið 2011 113 Starfið er margt uðu setningu sem Valsmenn hafa haldið á lofti allt frá stofnun félagsins: Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik yðar, látið aldrei kappið bera feg- urðina ofurliða. Knattspyrnan átti að vera helguð Drottni, tæki til að göfga manninn, verkfæri til að gera menn að betri mönnum. Þannig var sr. Friðrik, stöðugt að leið- beina ungu fólki um hvernig væri best að lifa. Þess vegna fannst mörgum þeir standa í þakkarskuld við hann síðar á æv- inni – og er það ekki ástæða þess að þeir hinir sömu létu reisa af honum styttu hér í hjarta borgarinnar, meira að segja á meðan hann var enn á lífi. Það er heiður að fá að starfa í félagi sem sr. Friðriks stofnaði. Það er heiður að fá að keppa fyrir hönd félags sem á rætur sínar hjá honum. Kæru Valsmenn, karlar og konur. Haldið áfram að vinna æsku þessa lands gagn með því að standa fyrir starfi þar sem börn og ungmenni hafa tækifæri til að þroska sig og efla til líkama, sálar og anda og verða göfugri manneskjur. Það er það sem íslensk þjóð kallar á í dag. Fyrir hönd KFUM og KFUK óska ég ykkur innilega til ham- ingju með daginn og bið ykkur blessunar Guðs og velfarnaðar í starfinu um ókomna framtíð. Gyða Karlsdóttir framkvæmda- stjóri KFUM og KFUK á Íslandi. Falleg athöfn fór fram í Lækjargötu í hádeginu á 100 ára afmælisdaginn 11. maí í blíð- skaparveðri. Systkinin Viktor Andri Jónsson og Kristjana Þórdís Jónsdóttir, sem æfa bæði með Val, lögðu blómsveig að styttu æskulýðsleiðtogans séra Friðriks Friðriks- sonar. Með þeim eru Hörður Gunnarsson formaður (t.v.) og Reynir Vignir formaður afmælisnefndar Vals. 128 Valsblaðið 2011 Þjálfun barna og unglinga Saga kvenna knatt­ spyrnunnar í Val eftir Soffíu Ámundadóttur og Margréti Magnúsdóttur Soffía Ámundadóttir þjálfari yngri flokka kvenna hjá Val til margra ára og fyrrver- andi leikmaður í knattspyrnu hjá Val hélt fyrirlestur á þjálfararáðstefnunni um sögu kvennaknattspyrnunnar hjá Val. Hún telur markviss vinnubrögð hjá fé- laginu við þjálfun með uppöldum Vals- þjálfurum, samheldni og frábærum félagsanda lykilinn að velgengni kvenna- knattspyrnunnar hjá félaginu. Árið 1977 var upphaf kvennaknatt- spyrnu í Val. Nokkrar ungar stúlkur og handboltaskvísur tóku sig til og kepptu fyrir hönd Vals í knattspyrnu. Aðeins einu ári síðar varð Valur Íslandsmeistari í kvennaknattspyrnu og hefur sú sterka sigurhefð haldist æ síðan. Árangurinn hefur verið framúrskarandi og eigum við í dag 23 titla í meistaraflokki – Íslands- og bikarmeistara. En þá eru ótaldir allir þeir titlar sem yngri flokkar kvenna hafa unnið í gegnum árin. Á þessu fallega ári 2011 erum við Íslandsmeistarar í 2. 3. 5 og 6. flokki kvenna og bikarmeistarar í meistaraflokki kvenna. Þjálfarar í gegnum tíðina hafa verið miklir Valsarar og stöðugleiki hefur verið mikill. Hér er hægt að nefna langan og flottan lista af framúrskarandi þjálfurum en ég læt þessa duga: Elísabet Gunnars- dóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, Ragn- hildur Skúladóttir, Freyr Alexandersson, Margrét Magnúsdóttir, Rakel Logadóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir, Íris Andrésdóttir, Soffía Ámundadóttir o. fl. Í þessum þjálf- arahópi hefur Valshjartað verið drifkraft- urinn, mikil samheldni hefur ríkt, hjálp- semi og gleði. Leikmenn í kvennaflokkum Vals eru aldir upp við sterkar fyrirmyndir. Það er nauðsynlegt að hafa sterkar fyrirmyndir en snemma setja ungar stúlkur sér mark- mið að komast í landslið og kveikir þetta metnað ungra leikmanna fyrr en ef fyrir- myndirnar væru ekki til staðar. Landsliðssæti Valskvenna á þessu ári 2011 eru: (hér er verið að miða við byrj- unarliðssæti og meðaltal ársins): A landslið – 5 leikmenn, • U 19 – 5 leikmenn og • U 17 – 6 leikmenn. • Þá er ótalið allir þeir leikmenn sem hafa verið í úrtakshópum á árinu og þeir eru margir. Valur hefur verið mikill brautryðjandi hvað útrás leikmanna erlendis varðar. Árið 1984- 86 fóru fyrstu leikmennirnir frá Íslandi í atvinnumennsku og voru það Valsararnir Bryndís Valsdóttir, Kristín Briem og Guðrún Sæmundsdóttir en þær léku allar með Napoli á Ítalíu. Árið 1987 fór fyrsti leikmaðurinn í háskólalið í USA og var það Valsarinn Cora Barker. Margir leikmenn hafa fetað þessa braut sem þess- ir flottu brautryðjendur ruddu. Á síðustu árum hafa u.þ.b. 16 leikmenn haldið í at- vinnumennsku erlendis en Valur á 12 af þessum leikmönnum. Tölfræðilega hlýtur að vera gott að alast upp í Val, þar er stefnan sett hátt og metnaður er mikill. Kvennadeildin er vel skipulög og sam- vinna er mikil. Við erum sem ein lítil fjölskylda þar sem allir þekkjast vel og styrkleiki hvers og eins fær að njóta sín. Skipulag flokkanna er mikið og virkilega vel haldið utan um alla flokka. Þjálfarar vinna saman og setja sér háleit markmið þar sem mikil vinna og gleði liggur að baki. Við vitum hvert við stefnum og metnaður er mikill. Árangur Valskvenna er þó ekki síst að þakka frábærum félagsanda. En þessi mikla stemming, hefð og samheldni hef- ur haldist frá upphafi. Margir Valshópar hittast reglulega til þess að rifja upp gamla tíma, þjappa sér saman eða eiga góða stund saman. Þá er ósjaldan sungið Valsmenn léttir í lund ásamt fleiri góðum Valslögum. Ég er gríðarlega stolt að vera hluti af þessari sögu Vals sem er án vafa stórkostleg. Vera alin upp í þessari áhugaverðu menningu og hafa náð að til- einka mér þær hefðir sem liggja í arf- leifðinni. Ég vona að ég geti áfram fært hana næstu kynslóðum Valskvenna. Valskveðja Sossa (Soffía Ámundadóttir) og Margrét Magnúsdóttir Stoltir þjálfarar 3. flokks kvenna hjá Val, Margrét Magnúsdóttir t.v. og Soffía Ámundadóttir t.h. með Íslandsmeistarabikarinn 2011. Þær eru báðar uppaldir Vals- þjálfarar. 8A B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 8 11 12 27 6 V al ur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.