Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 148
146 Valsblaðið 2011
Darri hefur æft handbolta í tæp 4 ár og
hefur alltaf átt heima í Hlíðunum og seg-
ir að ekkert annað lið hafi því komið til
greina þegar hann byrjaði að æfa íþróttir.
Æfir þú aðrar íþróttagreinar? „Ég er á
fullu í fótboltanum og hef verið síðan ég
var 5 ára, að sjálfsögðu hjá Val. Einu sinni
tók ég hálfan vetur í frjálsum, en það var
of mikið að vera í þremur greinum. Ég
legg meiri áherslu á handboltann á vet-
urna og fótboltann á sumrin. Æfingaálag-
ið er samt svipað þó að æfingarnar séu
gerólíkar. Ég er líka markmaður í hand-
bolta en útispilari í fótbolta. Það er stefnt
á keppnisferð erlendis í báðum í greinun-
um í sumar svo það verður mikið um að
vera við fjáröflun og þess háttar bæði í
handboltanum og fótboltanum.“
Hvers vegna heldur þú að unglingar
hætti að æfa íþróttir? „Ég held að flest-
ir hætti vegna þess að þeir missa áhugan
og finnst þeir ekki hafa tíma fyrir allar
þessar æfingar. Þeir sem eru mikið í
íþróttum missa af ýmsu – alltaf spurning
um að velja og hafna.“
Hvernig er hópurinn núna í vetur? „Í
handboltanum eru Maksim og Gunnar
Ernir að þjálfa okkur og þeir eru frábær-
ir. Næstum allir í liðinu eru á yngra ári
og því eigum við á brattann að sækja, lið-
ið er þó að eflast, og búið að vinna
nokkra leiki. Markmið okkar er að kom-
ast í úrslitakeppnina í vor. Við erum tveir
sem höfum æft með U-16 landsliðsæf-
ingahópnum. Það er mikil áskorun að
æfa með þeim líka.“
Skemmtileg atvik úr boltanum?
„Skemmilegustu mótin í yngri flokkunum
eru nú örugglega túrneringarnar sem eru
úti á landi. Ég man vel eftir skemmtileg-
um ferðum til Húsavíkur og Vestmanna-
eyja. Þegar við vorum á eldra árinu í 6.
flokki endaði Íslandsmótið í Eyjum og við
náðum silfrinu. Þá var ferðin í fyrra á
Húsavík skemmtileg þó að við hefðum
ekki náð í verðlaun. Valur fékk sérstakt
einbýlishús fyrir sig til að gista í og þar
var ótrúlega gaman á milli leikja.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand-
boltanum? „Það eru tveir markmenn í
dag sem mér finnst standa upp úr. Björg-
in Páll landsliðsmarkmaður Íslands og
leikmaður Magdeburgar og besti mark-
maður heims Frakkinn Thierry Omeyer.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum al-
mennt? „Æfa, æfa og æfa og hafa brenn-
andi trú á sjálfum sér. Þannig nær maður
langt. Mig langar til að fá betri mark-
mannsþjálfun eða tilsögn frá góðum
markmönnum, það myndi hjálpa mér að
ná lengra.“
Hvers vegna handbolti? „Það var nú eig-
inlega mamma sem þrýsti á mig að byrja
prófa handboltann. Ég var eitthvað tregur
fyrst en sé alls ekki eftir því núna.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Það eru nú ekki margir
Valsarar í minni fjölskyldu. Mamma og
pabbi fluttu í Hlíðarnar en komu annars
staðar frá og flestir fjölskyldumeðlimir
búa annars staðar og halda með öðrum
liðum. Það eru helst frændur og frænkur
sem búa í hverfinu sem eru Valsarar en
ég held að enginn þeirra sé frægur/fræg
fyrir íþróttaafrek, ætli Örvar í FM Belfast
og MÚM sé ekki frægastur ættingja en
hann er gallharður Valsari.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum? „Pabbi og
mamma hafa alla tíð stutt mig mikið í
íþróttunum, allaf er verið skutla og sækja
og ég veit að þau hafa verið í foreldra-
ráðum og sinna ýmsum sjálfboðastörfum
hjá Val. Auðvitað er það rosalega mikil-
vægt. Litla systir mín, sem er sex ára veit
samt fátt leiðinlegra en að koma og horfa
á leiki.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val í hand-
bolta? „Það verður að fjölga krökkunum,
fá sem flesta á æfingar. Mjög fljótlega t.d.
strax í 4. flokki verður að koma með sér-
stakar tækniæfingar fyrir handboltamenn
í mismunandi stöðum.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Topplið í Þýskalandi, verða eftir 10 ár
annar tveggja aðalmarkmanna landsliðs-
ins eða kominn í enska boltann í fótbolt-
anum.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera til
að efla íþróttalífið hjá Val? „Það eru
óteljandi hlutir sem hægt er að gera, t.d.
mega þjálfaranir tala meira saman og
samræma æfingarnar hjá krökkum sem
æfa margar greinar. Af hverju ekki að
senda fótbolta- og körfuboltastráka á eina
og eina æfingu yfir veturinn í handbolta
og öfugt? Það væri hægt að halda mót á
milli deilda þar sem keppt er í öllum
greinunum og alls konar.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik 11. maí 1911.“
Ungir Valsarar
Langar að leika hand
bolta með toppliði
í Þýskalandi
Darri Sigþórsson er 14 ára og leikur
handbolta og fótbolta með 4. flokki
Darri með Björgvini Páli Gústafs-
syni landsliðsmarkverði í hand-
bolta, en Björgvin er ein helstu
fyrirmynda hans.
Valsblaðið 2011 159
Starfið er margt
Nám: Hef verið að sýsla í MH undanfar-
in ár.
Kærasta: Auður Harpa.
Hvað ætlar þú að verða: Fótboltakall.
Af hverju Valur: Ég er alinn upp í hverf-
inu.
Hjá hvaða liðum hefur þú verið í fót-
bolta: Hef alltaf verið í Val fyrir utan
stutt stopp í HK og hjá Tindastóli á láni.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
fótboltanum: Þau hafa stutt mig með því
að mæta á leiki og hafa hvatt mig áfram.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni: Ég.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða: Kr-ingur eða stelpa.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Hún er
örugglega frábær.
Af hverju fótbolti: Ég prófaði nokkrar
„bumbu-íþróttir“ og áttaði mig á að fót-
boltinn var yfirburðar dæmi.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Íslandsmeistari í hnefaleikum 2010.
Eftirminnilegast úr boltanum: Fyrsti
leikurinn með meistaraflokki.
Eftirminnilegast frá 100 ára afmælis-
ári Vals: Því miður 0-1 tapið á móti ÍBV
á afmælisdaginn.
Markmið fyrir næsta tímabil: Skora
mörk og vinna leiki.
Hvernig líst þér á hópinn í meistara-
flokki núna: Við erum frekar fáliðaðir
akkúrat núna en mér líst mjög vel á þá
sem nú eru til staðar.
Besti stuðningsmaðurinn: Húsvörður-
inn, vallarþulurinn og goðsögnin Einar
Gunnarsson
Skemmtilegustu mistök: Sjálfsmark á
Shell-mótinu í Eyjum þegar ég skaut
boltanum upp í vindinn og hann fauk í
okkar mark.
Erfiðustu samherjarnir: Haukur Páll er
erfiður innan vallar sem utan.
Erfiðustu mótherjarnir: Edvard Börkur
og félagar hans í Tindastóli undir stjórn
Donna.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Magni
Fannberg sem þjálfaði okkur í 3. flokki.
Mesta prakkarastrik: Í æfingabúðum í
Vogum á Vatnsleysuströnd með hand-
boltanum hlupum við allir naktir um
hverfið þar til einhver hringdi á lögguna.
Fyndnasta atvik: Mörg fyndin atvik, eft-
irminnilegast þegar Jóhannes Sæmundur
Guðbjörnsson knattspyrnuþjálfari og fag-
maður óð inn á miðjan völlinn í bræðis-
kasti á Norway cup og öskraði á dómar-
ann „DOMMER, DET ER STRAFFE-
SPARK“
Stærsta stundin: Þegar ég fæddist.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Katrín Gylfa-
dóttir er flottur spilari en er fyrst og
fremst athyglisverð vegna þess hversu
áhugaverður kærastinn hennar, hann Atli
Már Báruson, er.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Atli Már Báruson
handboltamaður er virkilega áhugaverður
kappi og það er klárlega þess virði að
kynna sér þennan ótrúlega leikmann.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót-
bolta hjá Val: Ágætlega, margir leik-
menn sem lofa góðu.
Fleygustu orð: „If you are first you are
first. If you are second you are nothing“,
Bill Shankly.
Mottó: Hakuna matata.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Slakur í pottinum eftir sigur á heimavelli.
Hvaða setningu notarðu oftast: Hvað
er í matinn?
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Að ég sé fáranlega myndar-
legur.
Fullkomið laugardagskvöld: Í sumar-
bústað með góðu fólki.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Robbie Fow-
ler og Rivaldo voru alltaf í uppáhaldi.
Draumur um atvinnumennsku í fót-
bolta: Það er draumurinn að gera ekkert
annað en að spila fótbolta.
Landsliðsdraumar þínir: Já, það væri
draumur að spila fyrir Ísland, vonandi
geri ég það einhvern tíma.
Besti söngvari: Sigurjón Kjartansson.
Besta hljómsveit: Skálmöld.
Besta bíómynd: Djöflaeyjan.
Besta bók: Englar alheimsins.
Besta lag: Dust in the wind.
Uppáhaldsvefsíðan: YouTube.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Liverpool.
Eftir hverju sérðu mest: Engu, en ég sé
eftir Jóni Vilhelmi.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Ef ég hefði einhverja seðla til
að nota myndi ég byggja gervigrashöll.
Af hverju heldur þú að fáir leikmenn
komi upp í meistaraflokk karla úr
yngri flokkum Vals undanfarin ár: Of
lítil áhersla á yngri flokkana undanfarin
ár.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Hún er frábær, líklega sú besta á
landinu.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Vil sjá sem flesta uppalda Valsara
í öllum íþróttagreinum félagsins og að
Lollastúku verði breytt í Kollastúku.
Of lítil áhersla á yngri
flokkana undanfarin ár
Kolbeinn Kárason er tvítugur og leikur
fótbolta með meistaraflokki
BLÁSUM LÍFI Í GAMLAR LAGNIR!
VANDAMÁLIÐ
Stíflur, leki og hrun eldri lagna
geta valdið losun mengandi
efna sem eru skaðleg fyrir
bæði menn og náttúru.
LAUSNIN
Lögnin er endurnýjuð
án þess að þurfi að grafa:
– endingargóð lausn
– minni fyrirhöfn
– lægri kostnaður!
Bjargaðu verðmætum!
Ko du í veg fyrir eyðileggingu af völdum skemmdra lagna með miklum
tilheyrandi endurbótum og viðgerðarkostnaði.
Metum ástand lagna
Við endurnýjum lagnirnar innanfrá með háþróaðri tækni sem tryggir endingu
og lágmarks rask. Fáðu okkur til þess að mynda lagnirnar og við metum kostnaðinn
ef viðgerða er þörf.
Einstaklingar og sveitarfélög
Bjóðum heildarlausnir fyrir einstaklinga jafnt sem sveitarfélög. Þú færð tilboð
og við fóðrum og skiptum um lagnir eftir því sem hagkvæmast þykir hverju sinni.
Ástandsskoðun og viðhald sem margborgar sig!
Viðgerðir
Viðhald
Nýlagnir
Breytingar
Snjóbræðslukerfi
Ofnkranaskipti
Heilfóðrun
Partfóðrun
Greinafóðrun
Lagnaskipti
Drenlagnir
... og öll almenn pípulagningaþjónusta
GG lagnir ehf. Dugguvogi 1b 104 Reykjavík Sími 517 8870 G m 660 8870 gglagnir@gglagnir.is
ÁRALÖNG REYNSLA
VÖNDUÐ ÞJÓNUSTA
GOTT VERÐ
www.gglagnir.is
10
B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur