Valsblaðið - 01.05.2011, Side 152
150 Valsblaðið 2011
Marta hefur æft handbolta með Val frá
því að hún byrjaði að æfa handbolta
haustið 2003. Hún segir að Valur hafi
komið með kynningu í skólann sinn og
eftir það langaði hana að prófa að æfa
með vinkonum mínum og þá varð ekki
aftur snúið. Nú er hún fyrirliði í 4. flokki
og spilar einnig með 3. flokki og finnst
æðislegt að fá að spila svona mikið.
Hefur þú æft aðrar íþróttagreinar? „Ég
hef, frá því ég man eftir mér verið í íþrótt-
um, var í frjálsum íþróttum, listdansi á
skautum, fimleikum og ballett. En komst
að því að mér finnst miklu skemmtilegra
að stunda hópíþróttir. Handbolti varð fyrir
valinu þegar ég og fjórar bekkjarsystur
mínar ákváðum, haustið 2003 að fara á
handboltaæfingu hjá Val. Þetta eru enn þá
bestu vinkonur mínar og erum við allar
enn að æfa handbolta hjá Val.“
Af hverju heldur þú að krakkar hætti
í íþróttum? „Ég held að unglingar missi
metnað og séu almennt latir, Hætti að
nenna á æfingar því það er auðvaldara að
hanga í tölvunni heima.“
Hvernig gengur í vetur? „Það er mikið
af nýliðum í 3. flokki í vetur, við erum
fyrst núna að nálgast það að spila eins og
lið og er þetta allt á réttri leið. 4. flokkur
samanstendur af skvísum sem spila eins
og lið og eru allar þar mjög efnilegar.“
Skemmtilegt atviku úr boltanum? „Ég
get ekki gert upp á milli ferða eða atvika
með bestu vinkonum mínum en þó er eitt
af skemmtilegri nýliðnum atvikum sem
gerðist úti á Ítalíu síðastliðið sumar. Þeg-
ar við gáfum Kalla þjálfaranum okkar
hárkollu fyrir síðasta leikinn í íslensku
fánalitunum til að verjast sólinni.“
Fyrirmyndir í íþróttum? „Það yrði
KLIKKAÐ að verða jafngóð og Anja
Andersen. En .. Hrabba og Fúsi eru ofar-
lega á blaði hjá mér því þau hafa bæði
þjálfað mig. Fyrir utan þau eru það Anna
Úrsúla og að sjálfsögðu Óli Stef og
Snorri Steinn.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Það er hugarfarið sem skiptir langmestu
máli þegar þú vilt ná árangri. Með rétta
hugarfarinu getur maður allt sem maður
ætlar sér og meira til. Það er alltaf hægt
að bæta sig í öllu – en helst þarf ég að
vinna í því þessar vikurnar að bæta fóta-
vinnuna.“
Hvað einkennir góðan þjálfara? „Góð-
ur þjálfari er að mínu mati einhver sem
þjálfar liðið sem heild – en bendir jafn-
framt hverjum einstaklingi liðsins á það
hvernig viðkomandi geti bætt sig. Kalli
og Hrabba mynda frábært teymi í 3.
flokki og Gussi og Kalli eru ekkert síðri
þjálfarar í 4. flokki.“
Stuðningur fjölskyldu? „Stuðningur
mömmu og pabba er ómetanlegur, þau
hafa verið virk í foreldrastarfinu og nær
oftast komið með í ferðir flokksins.
Mamma hefur líka horft á eiginlega alla
leikina mína – bara alveg frá upphafi.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val? „Mér
finnst að það eigi að halda áfram, og
jafnvel efla kynningar í grunnskólum sér-
staklega á yngri árum. Því ef það næst að
mynda góðan og sterkan hóp í yngri
flokkum eru meiri líkur á því að hópur-
inn haldi áfram, eins og í mínu tilviki.“
Markmið þín í íþróttum? „Að sjálf-
sögðu stefni ég hátt í handboltanum, en
þar sem ég geri mér jafnframt grein fyrir
því að ég mun líklegast ekki geta lifað á
því í framtíðinni að spila handbolta þá sé
ég mig eftir 10 ár í háskólanámi að sér-
hæfa mig í kjarn- eða stjarneðlisfræði og
vonandi munum við allar vinkonurnar
ennþá spila handbolta með Val og vera á
leiðinni með íslenska landsliðinu á Ól-
ympíuleikana.“
Hvað þarf til að efla Val? „Það mikil-
vægasta er klárlega að halda í yngstu iðk-
endurna, því framtíð Vals byggir á
ástundun þeirra. Ef Valur heldur ekki í
iðkendur yngri flokka þá þarf félagið að
eyða peningum í það að kaupa leikmenn
frá öðrum liðum og jafnvel erlendis frá.
Til að bæta tengsl milli deilda er hægt að
halda sameiginlegar skemmtanir, eins og
Valsballið síðasta vor sem heppnaðist
mjög vel.“
Hver stofnaði Val? „Heyrðu það var
hann Friðrik Friðrikson sem stofnaði Val
11. maí 1911.“
Ungir Valsarar
Með rétta hugar
farinu getur maður
allt sem maður ætlar
sér og meira til
Marta Kristín Friðriksdóttir er 15 ára og
leikur handbolta með 3. og 4. flokki
Valsblaðið 2011 155
Starfið er margt
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú,
Ljúfi drottinn lýstu mér
svo lífsins veg ég finni,
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli frá Uppsölum)
Elsku vinum okkar, Dóra, Ásdísi, Úlla,
Birgi föður Ingu og öðrum ástvinum Ingu
biðjum við blessunar Guðs og að trúin á
ljósið og allt hið góða verði ykkur styrkur
til að halda áfram.
Valsmenn, jafnan léttir í lundu, drjúpa
nú höfði og kveðja góðan félaga.
Nú kveðjum við elskuna okkar, gleði-
gjafann okkar, hinstu kveðju með sömu
orðum og hún kvaddi okkur ætíð; við elsk-
um þig.
Jóna, Hilla, Odda, Hrefna, Sibba og
Jóna Dóra (VALS-Saumaklúbburinn)
hafa átt jafn góða og skemmtilega æsku sem
fyrst og fremst mótaðist af íþróttaáhuga-
num og félagslífinu í kringum handboltann.
Og ekki skemmdi fyrir að hún ásamt okk-
ur skipuðum helsta gullaldarlið kvennabolt-
ans á þeim árum. Fjölmargir titlar unnust
bæði á Íslandsmótum og öðrum minni mót-
um. Inga átti gríðarmikinn þátt í velgengn-
inni, því hún var einfaldlega einn albesti
markvörður þess tíma þó kornung væri. Á
handboltaárunum eignaðist hún fjölda vina
og við jarðarför hennar mátti greina fjöl-
mörg gamulkunn andlit úr Valsheimilinu frá
árunum góðu og gjöfulu. Og Valsfáninn á
altarinu bar merki þess að félagið átti henni
mikið að þakka og hún því.
Inga átti því láni að fagna að vera í
hjónabandi með Halldóri Úlfarssyni og
eignuðust þau tvö heilbrigð og yndisleg
börn sem komin eru á fulloðinsár. Við vin-
konurnar vorum rólegar og höfðum ekki
áhyggjur af Ingu okkar vitandi af
henni í yndislegu skjóli Dóra sem bar
hana á höndum sér og vel mátti sjá í veik-
indum hennar síðustu tvo mánuði lífs
hennar hversu kær hann var henni jafnt og
börnin hennar.
gildrur, gerði gys að sjálfri sér og okkur
og hló svo manna mest.
Saman höfum við farið í gegnum sorg-
ir og gleði þessa lífs. Alltaf hefur hún ver-
ið okkur hinum stuðningur, alltaf boðin
og búin að að hjálpa, oft með litlar gjaf-
ir í farteskinu sem glöddu, sífellt með ann-
arra hag að leiðarljósi. Inga kunni svo vel
að finna til með öðrum og átti einhvern
veginn alltaf réttu orðin. Hún var ómiss-
andi bæði á gleði- og sorgarstundum. Hún
hafði svo ríkan skilning á líðan annarra
að engu líkara var en hún hefði sjálf reynt
allar heimsins raunir. Hún var heimsins
besta mamma og amma. Þess hafa Ásdís
og Úlli börnin hennar notið svo ríkulega
eins og litlu ömmustrákarnir, Viktor Matti
og Bjössi. Inga lagði mikið uppúr því að
vera vel til höfð. Hún var einstaklega fal-
leg kona sem elskaði að klæða sig fallega.
Smekkurinn gat verið í dýrari kantinum
og þá sjaldan hún festi kaup á merkja-
vöru, skyldi ekki fara fram hjá neinum
hvað stæði á innkaupapokanum, sem helst
þurfti að vera úr þykkum glanspappa. Svo
hló hún að hégómanum í sjálfri sér.
Þrátt fyrir MS-sjúkdóminn sem hrjáði
Ingu árum saman lifði hún lífinu lifandi.
Lét fátt aftra sér frá að taka þátt í lífs-
ins glaumi. Hún gerði lítið úr líðan sinni,
hafði meiri áhyggjur af okkur hinum.
Inga var aðeins 17 ára þegar hún fór
fyrst að finna fyrir einkennum sjúkdóms-
ins. Lengi vel kenndi hún boltanum um….
„ æi ég er búin að fá boltann svo oft í mig,
ég hlýt að vera svona dofin í fætinum
vegna þess“… Þessu hélt hún fram með
okkar stuðningi þar til að einkennin fóru
að gera frekar vart við sig og eftir mikl-
ar rannsóknir greindist hún með MS-sjúk-
dóminn þá aðeins um tvítugt. Þá var sjálf-
hætt í handboltanum þó svo að hún eins
og margar okkar hinna hafði hætt eigin-
legri keppni. Á þessum árum þótti eðlilegt
að hætta í handbolta og öðrum íþróttum
á unga aldri. Inga, ásamt mörgum okk-
ar hélt þó áfram að æfa og keppti með „
old girls“. Þetta breytti hins vegar engu
um íþróttaáhugann og alla tíð fylgdist Inga
með gengi sinna manna og kvenna. Val-
ur var hennar félag í öllum íþróttagreinum
þó svo að hún og nokkrar okkar sem vor-
um á svipuðum aldri kæmum úr „Víkings-
hverfinu“. Eins og margir Valsarar vita
átti félagið okkar hauka í horni þar sem
Kristín og Árni Njáls voru. Þau kenndu
við Réttarholtsskóla og „sigtuðu“ út efni-
legustu handboltakrakkana og plötuðu
þau yfir í Val. Þetta er opinbert leyndar-
mál sem við Valsmenn erum fúsir að við-
urkenna og Víkingar hafa löngu fyrirgefið
okkur og þeim ágætu hjónum.
Það er huggun harmi gegn að Inga skuli
Átta strákar í æfingahópum
U18 og U20 í handbolta
Heimir Ríkharðsson hefur valið æfingahóp fyrir U18 ára landslið karla sem mun
æfa um næstu helgi en í hópnum eru fjórir Valsmenn. Þeir eru Aron Hauksson,
Daði Gautason, Gunnar Malmquist og Valdimar Sigurðsson. Þá hefur Geir
Sveinsson þjálfari U20 ára landsliðs karla valið 22 manna æfingahóp en úr hon-
um verður valinn 16 manna hópur sem fer á Opna Norðurlandamótið í Noregi
um næstu helgi. Í hópnum eru þeir Agnar Smári Jónsson, Arnar Daði Arnarsson,
Bjartur Guðmundsson og Sigurður Ingiberg Ólafsson.
Grace í æfingahópi
U16 í handbolta
Díana Guðjónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir landsliðsþjálfarar U16 í handbolta
hafa valið hóp til æfinga á milli jóla og nýárs. Einn leikmaður Vals er í æfinga-
hópnum, Grace Þorkelsdóttur.
Ingólfur Sig í U19
Kristinn Rúnar Jónsson landsliðsþjálfari U19 landsliðs karla hefur valið landslið
til þátttöku í undankeppni Evrópumótsins á Kýpur. Í hópnum er Ingólfur Sig-
urðsson leikmaður Vals.
Af www.valur.is
10B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur