Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 161

Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 161
146 Valsblaðið 2011 Darri hefur æft handbolta í tæp 4 ár og hefur alltaf átt heima í Hlíðunum og seg- ir að ekkert annað lið hafi því komið til greina þegar hann byrjaði að æfa íþróttir. Æfir þú aðrar íþróttagreinar? „Ég er á fullu í fótboltanum og hef verið síðan ég var 5 ára, að sjálfsögðu hjá Val. Einu sinni tók ég hálfan vetur í frjálsum, en það var of mikið að vera í þremur greinum. Ég legg meiri áherslu á handboltann á vet- urna og fótboltann á sumrin. Æfingaálag- ið er samt svipað þó að æfingarnar séu gerólíkar. Ég er líka markmaður í hand- bolta en útispilari í fótbolta. Það er stefnt á keppnisferð erlendis í báðum í greinun- um í sumar svo það verður mikið um að vera við fjáröflun og þess háttar bæði í handboltanum og fótboltanum.“ Hvers vegna heldur þú að unglingar hætti að æfa íþróttir? „Ég held að flest- ir hætti vegna þess að þeir missa áhugan og finnst þeir ekki hafa tíma fyrir allar þessar æfingar. Þeir sem eru mikið í íþróttum missa af ýmsu – alltaf spurning um að velja og hafna.“ Hvernig er hópurinn núna í vetur? „Í handboltanum eru Maksim og Gunnar Ernir að þjálfa okkur og þeir eru frábær- ir. Næstum allir í liðinu eru á yngra ári og því eigum við á brattann að sækja, lið- ið er þó að eflast, og búið að vinna nokkra leiki. Markmið okkar er að kom- ast í úrslitakeppnina í vor. Við erum tveir sem höfum æft með U-16 landsliðsæf- ingahópnum. Það er mikil áskorun að æfa með þeim líka.“ Skemmtileg atvik úr boltanum? „Skemmilegustu mótin í yngri flokkunum eru nú örugglega túrneringarnar sem eru úti á landi. Ég man vel eftir skemmtileg- um ferðum til Húsavíkur og Vestmanna- eyja. Þegar við vorum á eldra árinu í 6. flokki endaði Íslandsmótið í Eyjum og við náðum silfrinu. Þá var ferðin í fyrra á Húsavík skemmtileg þó að við hefðum ekki náð í verðlaun. Valur fékk sérstakt einbýlishús fyrir sig til að gista í og þar var ótrúlega gaman á milli leikja.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand- boltanum? „Það eru tveir markmenn í dag sem mér finnst standa upp úr. Björg- in Páll landsliðsmarkmaður Íslands og leikmaður Magdeburgar og besti mark- maður heims Frakkinn Thierry Omeyer.“ Hvað þarf til að ná langt í íþróttum al- mennt? „Æfa, æfa og æfa og hafa brenn- andi trú á sjálfum sér. Þannig nær maður langt. Mig langar til að fá betri mark- mannsþjálfun eða tilsögn frá góðum markmönnum, það myndi hjálpa mér að ná lengra.“ Hvers vegna handbolti? „Það var nú eig- inlega mamma sem þrýsti á mig að byrja prófa handboltann. Ég var eitthvað tregur fyrst en sé alls ekki eftir því núna.“ Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl- skyldunni? „Það eru nú ekki margir Valsarar í minni fjölskyldu. Mamma og pabbi fluttu í Hlíðarnar en komu annars staðar frá og flestir fjölskyldumeðlimir búa annars staðar og halda með öðrum liðum. Það eru helst frændur og frænkur sem búa í hverfinu sem eru Valsarar en ég held að enginn þeirra sé frægur/fræg fyrir íþróttaafrek, ætli Örvar í FM Belfast og MÚM sé ekki frægastur ættingja en hann er gallharður Valsari.“ Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú fengið frá foreldrum þínum? „Pabbi og mamma hafa alla tíð stutt mig mikið í íþróttunum, allaf er verið skutla og sækja og ég veit að þau hafa verið í foreldra- ráðum og sinna ýmsum sjálfboðastörfum hjá Val. Auðvitað er það rosalega mikil- vægt. Litla systir mín, sem er sex ára veit samt fátt leiðinlegra en að koma og horfa á leiki.“ Hvernig finnst þér að eigi að efla starf- ið í yngri flokkunum hjá Val í hand- bolta? „Það verður að fjölga krökkunum, fá sem flesta á æfingar. Mjög fljótlega t.d. strax í 4. flokki verður að koma með sér- stakar tækniæfingar fyrir handboltamenn í mismunandi stöðum.“ Hverjir eru þínir framtíðardraumar? „Topplið í Þýskalandi, verða eftir 10 ár annar tveggja aðalmarkmanna landsliðs- ins eða kominn í enska boltann í fótbolt- anum.“ Hvað finnst þér mikilvægast að gera til að efla íþróttalífið hjá Val? „Það eru óteljandi hlutir sem hægt er að gera, t.d. mega þjálfaranir tala meira saman og samræma æfingarnar hjá krökkum sem æfa margar greinar. Af hverju ekki að senda fótbolta- og körfuboltastráka á eina og eina æfingu yfir veturinn í handbolta og öfugt? Það væri hægt að halda mót á milli deilda þar sem keppt er í öllum greinunum og alls konar.“ Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra Friðrik 11. maí 1911.“ Ungir Valsarar Langar að leika hand­ bolta með toppliði í Þýskalandi Darri Sigþórsson er 14 ára og leikur handbolta og fótbolta með 4. flokki Valsblaðið 2011 159 Starfið er margt Nám: Hef verið að sýsla í MH undanfar- in ár. Kærasta: Auður Harpa. Hvað ætlar þú að verða: Fótboltakall. Af hverju Valur: Ég er alinn upp í hverf- inu. Hjá hvaða liðum hefur þú verið í fót- bolta: Hef alltaf verið í Val fyrir utan stutt stopp í HK og hjá Tindastóli á láni. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í fótboltanum: Þau hafa stutt mig með því að mæta á leiki og hafa hvatt mig áfram. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni: Ég. Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að verða: Kr-ingur eða stelpa. Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Hún er örugglega frábær. Af hverju fótbolti: Ég prófaði nokkrar „bumbu-íþróttir“ og áttaði mig á að fót- boltinn var yfirburðar dæmi. Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Íslandsmeistari í hnefaleikum 2010. Eftirminnilegast úr boltanum: Fyrsti leikurinn með meistaraflokki. Eftirminnilegast frá 100 ára afmælis- ári Vals: Því miður 0-1 tapið á móti ÍBV á afmælisdaginn. Markmið fyrir næsta tímabil: Skora mörk og vinna leiki. Hvernig líst þér á hópinn í meistara- flokki núna: Við erum frekar fáliðaðir akkúrat núna en mér líst mjög vel á þá sem nú eru til staðar. Besti stuðningsmaðurinn: Húsvörður- inn, vallarþulurinn og goðsögnin Einar Gunnarsson Skemmtilegustu mistök: Sjálfsmark á Shell-mótinu í Eyjum þegar ég skaut boltanum upp í vindinn og hann fauk í okkar mark. Erfiðustu samherjarnir: Haukur Páll er erfiður innan vallar sem utan. Erfiðustu mótherjarnir: Edvard Börkur og félagar hans í Tindastóli undir stjórn Donna. Eftirminnilegasti þjálfarinn: Magni Fannberg sem þjálfaði okkur í 3. flokki. Mesta prakkarastrik: Í æfingabúðum í Vogum á Vatnsleysuströnd með hand- boltanum hlupum við allir naktir um hverfið þar til einhver hringdi á lögguna. Fyndnasta atvik: Mörg fyndin atvik, eft- irminnilegast þegar Jóhannes Sæmundur Guðbjörnsson knattspyrnuþjálfari og fag- maður óð inn á miðjan völlinn í bræðis- kasti á Norway cup og öskraði á dómar- ann „DOMMER, DET ER STRAFFE- SPARK“ Stærsta stundin: Þegar ég fæddist. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki kvenna hjá Val: Katrín Gylfa- dóttir er flottur spilari en er fyrst og fremst athyglisverð vegna þess hversu áhugaverður kærastinn hennar, hann Atli Már Báruson, er. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki karla hjá Val: Atli Már Báruson handboltamaður er virkilega áhugaverður kappi og það er klárlega þess virði að kynna sér þennan ótrúlega leikmann. Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót- bolta hjá Val: Ágætlega, margir leik- menn sem lofa góðu. Fleygustu orð: „If you are first you are first. If you are second you are nothing“, Bill Shankly. Mottó: Hakuna matata. Við hvaða aðstæður líður þér best: Slakur í pottinum eftir sigur á heimavelli. Hvaða setningu notarðu oftast: Hvað er í matinn? Hvað er það fallegasta sem hefur verið sagt við þig: Að ég sé fáranlega myndar- legur. Fullkomið laugardagskvöld: Í sumar- bústað með góðu fólki. Fyrirmynd þín í fótbolta: Robbie Fow- ler og Rivaldo voru alltaf í uppáhaldi. Draumur um atvinnumennsku í fót- bolta: Það er draumurinn að gera ekkert annað en að spila fótbolta. Landsliðsdraumar þínir: Já, það væri draumur að spila fyrir Ísland, vonandi geri ég það einhvern tíma. Besti söngvari: Sigurjón Kjartansson. Besta hljómsveit: Skálmöld. Besta bíómynd: Djöflaeyjan. Besta bók: Englar alheimsins. Besta lag: Dust in the wind. Uppáhaldsvefsíðan: YouTube. Uppáhaldsfélag í enska boltanum: Liverpool. Eftir hverju sérðu mest: Engu, en ég sé eftir Jóni Vilhelmi. Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd- ir þú gera: Ef ég hefði einhverja seðla til að nota myndi ég byggja gervigrashöll. Af hverju heldur þú að fáir leikmenn komi upp í meistaraflokk karla úr yngri flokkum Vals undanfarin ár: Of lítil áhersla á yngri flokkana undanfarin ár. Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar- enda: Hún er frábær, líklega sú besta á landinu. Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu árum: Vil sjá sem flesta uppalda Valsara í öllum íþróttagreinum félagsins og að Lollastúku verði breytt í Kollastúku. Of lítil áhersla á yngri flokkana undanfarin ár Kolbeinn Kárason er tvítugur og leikur fótbolta með meistaraflokki BLÁSUM LÍFI Í GAMLAR LAGNIR! VANDAMÁLIÐ Stíflur, leki og hrun eldri lagna geta valdið losun mengandi efna sem eru skaðleg fyrir bæði menn og náttúru. LAUSNIN Lögnin er endurnýjuð án þess að þurfi að grafa: – endingargóð lausn – minni fyrirhöfn – lægri kostnaður! Bjargaðu verðmætum! Ko du í veg fyrir eyðileggingu af völdum skemmdra lagna með miklum tilheyrandi endurbótum og viðgerðarkostnaði. Metum ástand lagna Við endurnýjum lagnirnar innanfrá með háþróaðri tækni sem tryggir endingu og lágmarks rask. Fáðu okkur til þess að mynda lagnirnar og við metum kostnaðinn ef viðgerða er þörf. Einstaklingar og sveitarfélög Bjóðum heildarlausnir fyrir einstaklinga jafnt sem sveitarfélög. Þú færð tilboð og við fóðrum og skiptum um lagnir eftir því sem hagkvæmast þykir hverju sinni. Ástandsskoðun og viðhald sem margborgar sig! Viðgerðir Viðhald Nýlagnir Breytingar Snjóbræðslukerfi Ofnkranaskipti Heilfóðrun Partfóðrun Greinafóðrun Lagnaskipti Drenlagnir ... og öll almenn pípulagningaþjónusta GG lagnir ehf. Dugguvogi 1b 104 Reykjavík Sími 517 8870 G m 660 8870 gglagnir@gglagnir.is ÁRALÖNG REYNSLA VÖNDUÐ ÞJÓNUSTA GOTT VERÐ www.gglagnir.is 10 B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.