Valsblaðið - 01.05.2011, Side 162

Valsblaðið - 01.05.2011, Side 162
Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár Jafet Ólafsson Jóhann Halldór Albertsson Jón Örn Bogason Jón Halldórsson Jón Grétar Jónsson Jónas Már Fjeldsted Jónas Guðmundsson Karl Harry Sigurðsson Kjartan Jóhann Magnússon Lögfræðiskrifstofa Guðmundar Ágústssonar Optik Óðinn Þórisson Ólafur Már Sigurðsson Ómar Ómarsson Pétur Magnús Sigurðsson Sigfús Gauti Þórðarson Sigurður Andri Atlason Sigurður Ásbjörnsson Stefán Karlsson Svala Guðrún Þormóðsdóttir Sveinn Sveinsson, sjúkraþjálfari Theodór Friðjónsson, tannlæknir Valdimar Grímsson Þjóðólfur Gunnarsson Þorgerður Þráinsdóttir Þorgrímur Þráinsson Þórður Örn Guðbjörnsson 160 Valsblaðið 2011 Skeifan, Garðabær & Eiðistorg Ungir Valsarar Nám: Er á þriðja ári í Menntaskólanum í Reykjavík. Kærasta: Nei. En mamma bíður og von- ar. Hvað ætlar þú að verða: Ætla að fara í háskóla eftir að ég er búinn með mennta- skólann en er ekkert búinn að hugsa þetta neitt lengra en það. Af hverju Valur? Pabbi er Valsari og ég byrjaði að fara á völlinn með honum þeg- ar ég var í leikskóla. Svo bý ég líka í hverfinu. Hjá hvaða liðum hefur þú verið í körfubolta: Byrjaði að æfa 10 ára og hef æft með Val síðan. Frægur Valsari í fjölskyldunni: Ekkert minna nánustu ættmenna er frægur Vals- ari. Pabbi hefur reyndar verið í stjórn og formaður körfunnar í áraraðir. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í körfunni: Þau hafa veitt mér ómetanleg- an stuðning. Ég held að pabbi hafi mætt á nánast alla leiki sem ég hef spilað. Ég hef líka tvisvar farið til útlanda með körf- unni og í bæði skiptin hefur pabbi farið með sem fararstjóri. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni: Kallinn. Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að verða: Slæm fyrirmynd. Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Ég trúi ekki á stjörnuspár. Af hverju körfubolti: Ég hef prófað að æfa bæði fótbolta og handbolta en mér fannst körfuboltinn einfaldlega skemmti- legastur. Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Keppti á móti Porto í fótbolta í flokki 10 ára og yngri með liðinu Itziger Bloweiss í Luxembourg, töpuðum reyndar 4-1. Keppti líka á Ólympíuleikum í stærð- fræði síðasta sumar. Eftirminnilegast úr boltanum: Fjórfram- lengdur leikur í drengjaflokki á móti KFÍ fyrir tveimur árum. Ég var reyndar enn í 11. flokki, við vorum bara 8 sem spiluð- um í leiknum. Unnum að sjálfsögðu. Eftirminnilegast frá 100 ára afmælis- ári Vals: Fyrir mig var það að vera hluti af liðinu í meistaraflokki sem vann úr- slitakeppnina í 1. deild og tryggði Val sæti í úrvalsdeildinni. Ein setning eftir síðasta tímabil: Eitt orð nægir, úrvalsdeild. Hvernig gengur í vetur: Gæti gengið betur en tímabilið er ekki búið. Besti stuðningsmaðurinn: Pabbi og líka Edwin. Skemmtilegustu mistök: Þegar Sæbi lét mig, 13 ára, þjálfa einu ári eldri strákana í Val í leik. Mér mistókst algerlega að fá þá til að hlusta á mig. Á þeim tíma var ég líklega um 25 sentímetrum minni en þeir allir. Erfiðustu samherjarnir: Það er alla veganna auðveldast að eiga við Berg Ást- ráðsson. Mesta prakkarastrik: Maður þorir ekki að gera nein prakkarastrik hjá Gústa. Fyndnasta atvik: Þegar ég „braust” inn í Valsheimilið þegar ég var í 10. flokki. Ég var mættur niðrí Val kl. 6:45 á fimmtudagsmorgni til að fara á morgun- æfingu. Rob Newson sem var að þjálfa mig, opnaði vanalega dyrnar á gamla salnum til að ég kæmist inn. Hún var læst og í staðinn fyrir að hringja í hann próf- aði ég allar dyrnar þangað til að ég fann opnar dyr. Þjófavörninn fór hinsvegar í gang því Rob hafði auðvitað bara sofið yfir sig og var ekki búinn að opna. Stærsta stundin: Þegar ég skoraði fyrstu körfuna með meistaraflokki Vals í fyrra. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki kvenna hjá Val: Signý Her- mannsdóttir Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki karla hjá Val: Birgir Björn Pét- ursson. Hvernig líst þér á yngri flokkana í körfubolta hjá Val: Mér líst vel á yngri flokkana í Val. Þarna er þó nokkuð af efnilegum leikmönnum og það eru fleiri lið sem hafa verið að leika í A-riðlum í ár en í fyrra. Það sem helst vantar upp á er að fá fleiri iðkendur. Eftirminnilegasti þjálfari þinn: Sæbi, hann kenndi mér undirstöðuatriðin í körfubolta. Hann fór líka tvisvar með okkur strákana til útlanda. Einu sinni að keppa á móti í Svíþjóð og einu sinni í æf- ingabúðir í Bandaríkjunum. Hvað lýsir þínum húmor best: Kald- hæðni. Mottó: Per aspera ad astra. Hvaða setningu notarðu oftast: Halló, þetta er Bensi. Hvað er það fallegasta sem hefur verið sagt við þig: Þú ert í flottum skóm – Mormónatrúboði. Fyrirmynd þín í körfubolta: Ég reyni að spila á mínum eigin forsendum. Draumur um atvinnumennsku í körfu- bolta: Hver lætur sig ekki dreyma um slíkt. Landsliðsdraumar þínir: Mér finnst skemmtilegast að spila fyrir Val. Besti söngvari: Raggi Gylfa syngur mjög vel í sturtunni eftir æfingar. Besta bíómynd: Rebound: The legend of Earl „The Goat” Manigault. Besta bók: Stærðfræði handa 5. bekk eðl- isfræðideildar er á náttborðinu í augna- blikinu. Besta lag: Valur vængjum þöndum. Uppáhaldsvefsíðan: karfan.is Uppáhaldsfélag í enska boltanum: Liverpool. Uppáhalds erlenda körfuboltafélagið: Miami Heat, fyrsta NBA treyjan sem ég fékk var Dwyane Wade treyja og ég hef haldið með Heat síðan ég fékk hana. Nokkur orð um núverandi þjálfara: Veit hvað hann vill. Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd- ir þú gera: Láta þrífa öll körfuspjöldin í salnum. Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar- enda: Sú besta á landinu. Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu árum: Aðstaðan er til fyrirmyndar en það væri gaman að sjá fjölgun í iðkend- um á næstu árum. Á eigin forsendum Benedikt Blöndal er 18 ára og leikur körfubolta með drengjaflokki og meistaraflokki 10 A B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 10 11 12 27 6 V al ur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.