Gripla - 01.01.2001, Blaðsíða 115
LEIÐBEININGAR ÁRNA MAGNÚSSONAR
113
298). Már Jónsson hefur haldið því fram að Ámi hafi veturinn 1686-1687
látið Ásgeir skrifa upp sögur eftir handrituin Ketils Jömndssonar en ekki Vatns-
hymu sjálfri (1997:122-126, 1998:61). Um er að ræða þrjár sögur: Hænsna-
Þóris sögu í AM 501 4to eftir AM 554 a ð 4to, Kjalnesinga sögu í AM 503 4to
eftir AM 504 4to og Flóamanna sögu í AM 517 4to eftir AM 516 4to. Ólafur
Halldórsson (1999:247-248) og Stefán Karlsson (2000:358) hafa báðir mót-
mælt þessari skoðun Más. Ljóst er að þrjár sögur aðrar hefur Ásgeir skrifað
eftir Vatnshymu, þ.e. Laxdæla sögu í ÍB 225 4to, Vatnsdæla sögu í AM 559
4to og Eyrbyggja sögu í AM 448 4to, sem Ámi skrifaði reyndar að hluta (Már
Jónsson 1997:119, 1998:61). Már tekur fram að Ásgeir og Ámi hafi skrifað
Eyrbyggju eftir Vatnshymu, þar sem Ami hafi ekki fengið handrit Ketils, AM
442 4to, fyrr en 1704(1997:126, amgr. 14).
Svo sem fram hefur komið lét Ámi skrifara sína stundum fá eldri upp-
skriftir sama handrits til hliðsjónar til að auðvelda þeim verkið (sbr. seðlana í
JS 480 4to og AM 399 4to). Ekki er vitað hvenær Ami tók upp á því en hann
gæti hafa gert það þegar um 1686. Það er því ekkert sem mælir gegn þeim
möguleika sem Ólafur (1999:248) og Stefán (2000:358) nefna báðir að Ámi
hafi lánað Ásgeiri handrit Ketils til hliðsjónar þegar hann skrifaði upp Vatns-
hymu.
7. Dómharka
í upphafi var vitnað til frægra orða Áma um annálshandrit Jóns Erlendssonar,
en hann gat verið dómharður við fleiri, t.d. segir hann um annað annálshandrit
með hendi Sigurðar Bjömssonar sem Sigurður Jónsson lögmaður hafði átt
(1930:166, 167, 168-169 (eftirAM 436 4to)):
Er þesse bok su allra versta Copie, sem eg sied hefi af nockurre gam-
alle bók. Og em þad stór undur, ad Sigurde Jons syne lögmanne, skyn-
sömum manne, hafi su utskrift lika kunnad.
... og er likara ad kalla þetta óviturs mans verk enn eruditi.
Má þetta synast hyggiulauss manns verk, og synest, sem skrifarenn
ecki hafi skiled, hvad sunnudags bokstafemer hefdi ad þyda. ad visu
ecke reflecterad uppá þá ...