19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2010, Qupperneq 13

19. júní - 19.06.2010, Qupperneq 13
Lilja4ever og hef jafnframt lesið bókina Puhdistus eftir finnsku skáldkonuna Sofi Oksanen sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir stuttu þar sem fjallað er um þessi mál. Fyrir nokkrum árum hefði ég talið að þær aðstæður, sem þar er lýst, væru nær óhugsandi hér á landi en núna spyr ég mig að því hvort þetta geti ekki einmitt verið hér eins og annars staðar.“ Ragna segist finna fyrir mikilli ábyrgð gagnvart þessum málaflokki. „Mér finnst þetta mjög óhugnanlegt og tek þetta alvarlega,“ segir hún. Varð feimin á Alþingi En þá er ekki úr vegi að snúa sér að örlítið léttari málefnum og spyrja Rögnu hvort henni hafi fundist skrýtið að setjast allt í einu á Alþingi. „Já, það var skrýtið. Ég byrjaði starfsferil minn á skrifstofu Alþingis og vann þar í fjögur ár en fór þá að vinna á skrifstofu Norðurlandaráðs. Þegar ég settist í fyrsta skiptið inn í þingsal í ráðherrasæti þá fannst mér það óraunveruleg upplifun og varð hálffeimin. Ég ber mikla virðingu fyrir þinginu og fann til smæðar minnar. Þetta var því algjör kúvending á mínu lífi,“ segir hún. „Starfið er áhugavert, stundum skemmtilegt en stundum líka erfitt. Ég er þó í þessu starfi til að sinna ákveðinni skyldu og geri það með glöðu geði. Ef ég fer að vorkenna mér hugsa ég til ömmu minnar og afa og annarra forfeðra sem þurftu að berjast fyrir lífinu og hafa mikið fyrir því. Ég sæki styrk í það sem þau kenndu mér. Það er gríðarlega mikil ábyrgð sem fylgir þessu embætti og það eru erfiðir tímar. Þar sem ég er ekki í stjórnmálaflokki veit ég ekki alltaf hvaða boðleiðir ég á að fara og oftar en ekki verð ég að stóla á eigið hyggjuvit. Ég er mjög trúuð og það veitir mér líka styrk.“ -Þú hefur þá ekki viljað fara aðra leið í námi og velja guðfræðina? „Nei, það datt mér aldrei í hug. Ég ætlaði í íslenskunám og verða kennari en þá urðu verkföll í stéttinni og ég valdi frekar lögfræði. Hins vegar lofaði ég mér því að ef ég félli þá færi ég yfir í íslenskuna.“ Opinber persóna Ragna hefur starfað með tveimur ráðherrum í dómsmála- ráðuneytinu, þeim Sólveigu Pétursdóttur og Birni Bjarnasyni. Þegar hún er spurð hvort breytingar hafi orðið í hennar tíð af því að hún er ópólitísk segist hún varla getað svarað því. „Það eru mörg mál hér sem eru unnin eftir samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Starfsfólk ráðuneyta þarf að vera sveigjanlegt gagnvart nýjum stjórnendum. Ráðherra getur ekki sagt embættismönnum ríkisins að vera liðsmenn sínir í pólitík en þeir þurfa samt að vera tilbúnir til breytinga og fylgja stefnu hans.“ Um leið og Ragna varð ráðherra varð hún um leið opinber persóna. Hún þarf reyndar að hugsa sig um þegar blaðamaður spyr hvort einkalífið hafi breyst. „Ég nota þann tíma sem ég hef með fjölskyldunni betur en áður,“ svarar hún. „Ég hef alltaf unnið mikið og verið annars hugar út af vinnunni. Fjölskyldan er vön því en vissulega er það breyting þegar maður verður allt í einu opinber persóna. Ég er feimin að eðlisfari en hef frá unglingsaldri reynt að vinna bug á því,“ segir Ragna en hún er mikill lestrarhestur og las allt sem hún komst yfir sem barn og unglingur. „Mamma hafði eiginlega áhyggjur af mér út af þessu,“ segir hún en fáir vita að hún er líka mikil veiðikona og fer helst í silungsveiði þótt hún renni einnig fyrir lax. Veiðikonan „Ég hlakka mikið til að fara í Laxárdalinn í veiði og einnig í Mývatnssveitina. Í fyrra þurfti ég að hætta við nokkra túra vegna anna,“ útskýrir Ragna. Eiginmaðurinn, Magnús Jón Björnsson tannlæknir, er einnig veiðiáhugamaður. Þau hjónin stunda þetta áhugamál saman og dætur þeirra tvær, Brynhildur 16 ára og Agnes Guðrún 10 ára, fara gjarnan með eftir að þær eltust. „Faðir minn, Árni Björn Jónasson, er mikill stangveiðimaður og var alltaf að reyna að draga mig í veiði hér áður fyrr. Eftir að ég gifti mig áttaði ég mig á því að þeir tengdafeðgar fóru ansi oft saman í veiðiferðir og ég sat eftir heima. Ég fór því á námskeið og lærði að kasta flugu. Síðan keypti ég flottar vöðlur og var til í slaginn. Upp frá því hefur þetta verið mitt aðaláhugamál og ég á uppstoppaðan sex punda urriða á stofuveggnum sem ég veiddi,“ segir Ragna stolt. Hún kann vel að meta náttúruna. Fjölskyldan á sér athvarf á gömlum bóndabæ í Landbroti við Kirkjubæjarklaustur en þar voru tengdaforeldrar Rögnu með skógrækt. Þangað fer hún oft til að slappa af í rólegheitum með fjölskyldunni. Formleg og öguð stjórnsýsla Ragna segist hafa marga og góða ráðgjafa í kringum sig. Hún segir algjört lykilatriði í starfinu að hafa hæft fólk. „Ekki spillir ef það er gáfaðra en maður sjálfur,“ segir hún og hlær. „Ég þekkti starfsfólkið vel þar sem ég hafði starfað lengi með því en sumum þurfti ég að kynnast upp á nýtt vegna þessarar breyttu stöðu minnar. Ráðherra- starfið er samvinnuverkefni. Ég tel að við eigum að vera ögn formlegri og agaðri í stjórnsýslunni og láta ekki persónulegar skoðanir ráða því hvernig við vinnum vinnuna okkar.“ Ragna segist þó ekki hafa áhuga á því að færa sig inn á hið pólitíska svið. Hún veit heldur ekki hvort hún muni gegna þessu starfi út kjörtímabilið. „Ég svara þeirri spurningu venjulega á þá leið að ég hafi verið fengin í þetta starf í þrjá mánuði og síðan var óskað eftir að ég yrði áfram. Ég er vel meðvituð um að kannski verði ég beðin að víkja. Hvað þá tekur við veit ég ekki núna. Ef til vill opnar það möguleika til að fara að gera eitthvað allt annað. Lífið byrjar ekki og endar hér í ráðuneytinu,“ segir Ragna sem var alin upp við kvenréttindi, en móðir hennar, Guðrún Ragnarsdóttir, hefur alltaf verið mjög jafnréttissinnuð. „Í mínum huga hefur jafnrétti alltaf verið sjálfsögð mannréttindi,“ segir Ragna Árnadóttir að lokum.a Ragna í faðmi fjölskyldunnar. Eiginmaðurinn, Magnús Jón Björnsson, og dæturnar, Agnes og Brynhildur. Ragna rígmontin með fallegan urriða sem hún veiddi sl. sumar í Mývatnssveit en hún hefur mjög gaman af veiði. 13 10-13 MannsalRagna Arnad.indd 5 6/1/10 2:00:25 PM

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.