19. júní - 19.06.2010, Page 14
14
Þórdís Elva segir að viðtökurnar við bókinni hafi komið sér
nokkuð á óvart. Upphaflega ætlaði hún að skrifa grein í dagblað
til að mótmæla dómi í nýlegu nauðgunarmáli. Hún varð svo
gagntekin af málinu að greinin endaði sem bók og hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar. Í bókinni fjallar hún um afbrotin,
umræðuna, dómskerfið og ýmsar staðreyndir. „Viðbrögðin
hafa reyndar verið mismunandi
ef ég flokka þau niður í viðtökur
almennings, gagnrýnenda og
síðan yfirvalda. Almenningur tók
bókinni afskaplega vel og margir
hafa sett sig í samband við mig
og þakkað mér fyrir hana. Ég
er búin að heyra af margvíslegri
persónulegri reynslu frá fólki sem
hefur orðið fyrir ofbeldi en ekki tjáð
sig um það áður. Gagnrýnendur
hafa allir sem einn kallað bókina
„skyldulesningu“, það hefði ekki
verið hægt að biðja um betri
viðbrögð þaðan. Ég hef hins vegar verið hissa á viðbrögðum
yfirvalda því þau hafa verið mun minni en ég vonaði. Ragna
Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur þó látið hafa eftir sér að
það komi vel til greina að endurskoða lögin, sérstaklega hvað
varðar kynferðisbrot gegn börnum. En það er allt og sumt,“ segir
Þórdís Elva og bætir því við að hinir ýmsu faghópar hafi verið
jákvæðir. „Ég hef haldið fyrirlestra fyrir lögfræðinema, nema í
fjölmiðlun o.fl. Það hefur enginn dæmt mig fyrir að vera ekki úr
fræðimannasamfélaginu,“ segir hún ennfremur.
Vildi skapa umræðu
Þórdís segist sjálf hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi
þegar hún var sextán ára og segir frá því í bókinni. Hún vildi
þó ekki gera sjálfa sig að aðalatriði heldur miklu frekar beina
kastljósinu að umræðunni
um þessi mál í þjóðfélaginu
sem hún telur að hafi tekist.
„Eftirfylgnin hefur verið mikil.
Ég ákvað að einbeita mér að
unga fólkinu og fékk styrk
frá þremur ráðuneytum til
að fara í framhaldsskóla
landsins. Ég er um það bil
hálfnuð í þeirri ferð. Það
hefur verið mjög gefandi
að ræða við unga fólkið. Ég
hef komist að því að það er
bæði fáfróðara og vitrara um
þessi mál en ég hélt. Það er jafnframt móttækilegt fyrir þessum
boðskap. Hingað til hefur umræðan verið svart/hvít og snúist að
mestu um konur. Karlmenn verða líka fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Það er löngu kominn tími til að útvíkka umræðuna,“ segir Þórdís
Elva.
Kvennafrídagurinn mikli
Þórdís hefur einnig sett á fót góðgerðarátak á vefsíðunni
odlingurinn.is. „Mér fannst ég geta gert enn meira,“ segir hún.
Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir,
höfundur bókarinnar
Á mannamáli
með sterka réttlætiskennd
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, leikari, leikskáld og rithöfundur, hefur haft í nógu að snúast
frá því að bók hennar Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli kom út síðastliðið haust. Hún hefur
haldið fyrirlestra víða, meðal annars í framhaldsskólum landsins.
BARÁTTUKONA
Viðurkenningar fyrir bókina
Á mannamáli
Fjöruverðlaunin 2010 í flokki fræðirita
Jafnréttisviðurkenning Stígamóta
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins – tilnefning
Íslensku bókmenntaverðlaunin – tilnefning
Félagshyggjuverðlaun 2009
14-17 BarattukonaÞodis3efni.2 2 6/2/10 5:53:28 PM