19. júní - 19.06.2010, Qupperneq 17
Samstaða íslenskra kvenna var einstök á kvennafrídaginn 24.
október 1975. Nú hafa verið stofnuð regnhlífasamtök félaga og
samtaka innan kvennahreyfingarinnar á Íslandi sem kallast Skottur.
Þessi nýju samtök standa að kvennafrídegi á þessu ári. Ákveðið
hefur verið að halda upp á þessi tímamót 24. og 25. október en
seinni daginn, sem er mánudagur, er vonast til að konur leggi niður
störf þegar þær hafa unnið fyrir launum karla.
Kvennafrídagurinn í ár verður haldinn undir yfirskriftinni Konur gegn
kynbundnu ofbeldi. Sunnudaginn 24. október fer fram alþjóðleg
ráðstefna í Reykjavík en aðalræðumaður er Rashida Mansjoo,
umboðskona Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn konum. Auk
hennar hefur fjölmörgum virtum baráttu- og fræðikonum verið
boðið að taka til máls, erlendum jafnt sem innlendum. Einnig hafa
listakonur sýnt áhuga á alþjóðlegri listadagskrá kvenna ásamt
ýmsum listviðburðum.
Verkefnisstýra var ráðin til að stjórna þessu verkefni og hóf hún
störf 24. mars sl. Stígamót hafa útvegað húsnæði fyrir starfsemina.
Má geta þess að byrjað er að hanna minjagripi sem verða til sölu á
kvennafrídaginn.
Þau félög sem standa á bak við Skottur hafa yfir 10.000
konur innan sinna vébanda. Það eru Aflið, Bríet, félag ungra
femínista, Femínistafélagið, Kvenfélagasamband Íslands,
Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands,
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Samtök kvenna af erlendum
uppruna, Soroptimistasamband Íslands, Sólstafir, Stígamót,
UNIFEM og Zontasambandið.
„Við viljum jafnrétti, á öllum sviðum samfélagsins. Við krefjumst
jafnrar stöðu og jafnra réttinda kvenna og karla, óháð því hvort
menning og listir eiga í hlut, fræði og vísindi, atvinnulíf, stjórnkerfi eða
réttarkerfi,“ segir í fréttatilkynningu frá Skottunum. a
Kvennafrídagurinn 2010
Þann 29. júní eru þrjátíu ár liðin frá því að Vigdís
Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands. Vegna
þessara tímamóta hefur hópur fólks tekið sig
saman og ætlar að efna til hátíðar undir heitinu Til
fyrirmyndar.
Hátíð tileinkuð kosningaafmæli Vigdísar Finnbogadóttur
Til fyrirmyndar
29. júní
17
„Við viljum fagna þeim tímamótum sem verða 29. júní. Þá
verða 30 ár liðin frá því að íslenska þjóðin var til fyrirmyndar
með því að vera fyrsta landið í heiminum til að kjósa konu
sem forseta í lýðræðislegum kosningum,“ segir Ingibjörg
Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnisins, sem nefnist Til
fyrirmyndar.
Hópur fólks stendur á bak við hugmyndina en henni er
ætlað að beina athygli þjóðarinnar að því sem vel er gert og
að góðum og uppbyggilegum hlutum í kringum okkur. „Við
viljum hvetja unga sem aldna til að skoða hvað þeim finnst
vera til fyrirmyndar og leiða hugann að spurningunum: Hver er
fyrirmyndin mín? Hvernig get ég verið til fyrirmyndar? Og hvað
finnst mér vera til fyrirmyndar á Íslandi? Í tilefni af þessu ætlum
við að vera með hátíðardagskrá 29. júní sem verður nánar
auglýst þegar nær dregur,“ segir Ingibjörg og bætir því við að
undirbúningur standi nú sem hæst fyrir þennan jákvæða dag.
Einnig verður opnuð vefsíða í tengslum við verkefnið,
www.tilfyrirmyndar.is og verður hún opnuð þann 19. júní.
Vefsíðan verður að öllu leyti tileinkuð fyrirmyndarverkefninu og
kosningaafmæli Vigdísar. Ingibjörg segir að það sé stór hópur
af góðu fólki sem komi nálægt Til fyrirmyndar, áhuginn sé mikill
og sífellt séu fleiri að bætast í hópinn. ,,Og markmiðið er að öll
þjóðin, karlar og konur, ungir sem aldnir sameinist í að horfa til
þess jákvæða í kringum okkur.“ a
Mikill hugur
í konum
Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnisins.
14-17 BarattukonaÞodis3efni.5 5 6/1/10 10:52:46 PM