19. júní - 19.06.2010, Side 38
Finnur þú fyrir því að vera kona í því sem einu
sinni var kallað karlastarf?
Það kemur sjaldan fyrir að ég finni fyrir því að vera kona í
starfi sem einu sinni var karlastarf en gerist þó stöku sinnum.
Ég fann meira fyrir þessu þegar ég var yngri en ég varð
skattstjóri á Vestfjörðum 27 ára gömul.
Ertu meðvituð um það að eitt sinn datt engum í hug
að kona gæti gegnt þessu starfi?
Ég man nú ekki oft eftir því.
Telur þú að komið sé öðruvísi fram við þig í starfinu
af því að þú ert kona en ef þú værir karlmaður?
Í langflestum tilvikum tel ég að það skipti engu máli í starfinu
að ég er kona. Það hefur þó komið fyrir að fólk tiltaki að því
finnist betra að leita til mín vegna þess að ég er kona. Því er hins
vegar ekki að neita að ég hef orðið vör við framkomu einstakra
manna sem einkennist af mun meiri heift en ég ímynda mér
að sömu menn hefðu sýnt karlkyns samstarfsmanni. Slík
samskipti hafa að mínu mati ekki verið fagleg.
Hvað telur þú að helst hafi orðið til þess að breyta
ríkjandi hugsunarhætti um að sumar stöður væru
ekki kvennastörf?
Ég tel að verulega aukin menntun kvenna sé meginástæðan
sem og kvennabaráttan í gegnum tíðina. Opnari stjórnsýsla og
aðhald eftirlitsaðila við stöðuveitingar hafa eflaust einnig haft
áhrif.
Hverja telur þú vera ástæðuna fyrir því að konur
sækjast minna eftir stjórnunarstöðum en karlar?
Ég tel að margar konur telji það ekki þess virði að sækjast
eftir stjórnunarstöðum þar sem þeim fylgir oft aukin samkeppni
og neikvæð afstaða keppinauta og mun meira vinnuálag sem
speglast ekki endilega í launum. Einnig tel ég að konur vilji ekki
afsala sér ábyrgð á börnum og heimili og það getur verið erfitt
að samræma annasöm stjórnunarstörf við fjölskylduábyrgð.
Hvað telur þú geta aukið áhuga kvenna á setu í
stjórnum fyrirtækja?
Það þarf að halda á lofti þeim rannsóknum sem leitt hafa
í ljós að stjórnir með blandað kynjahlutfall skila hagkvæmari
rekstri sem bæði eigendur fyrirtækja, starfsemin sem slík og
neytendur munu njóta. Þegar þessi afstaða er orðin almenn,
tel ég að konur muni hafa meiri áhuga á setu í stjórnum.
Hvað getum við gert til að hvetja konur til að sækja
um valdastörf?
Við getum stutt hæfar konur til áhrifa og konur þurfa að starfa
markvisst að því að styðja aðrar konur – annars breytist ekkert.
Konur mega ekki gleyma að þær eru helmingur mannkyns en
ekki minnihlutahópur. Stjórnendur þurfa einnig að vera vakandi
fyrir því að konur hafi jöfn tækifæri til starfsþróunar og til setu
í nefndum og ráðum og auka þannig hæfni kvenna og gera þær
samkeppnishæfari.
Hvers vegna er enn til kynbundið launamisrétti á
Íslandi?
Sennilega er launaleyndin meginástæðan en einnig af því að
enn tíðkast að hluti af launagreiðslum sé í formi viðbótarlauna, þ.e.
yfirvinnu, aksturkostnaðar og eftir atvikum annað form umbunar
sem er ekki gagnsætt en er engu að síður hluti af launakjörum.
Ertu sammála því að rétt sé að setja upp
kynjakvóta?
Hér áður fyrr var ég algjörlega ósammála því og taldi það
niðurlægjandi fyrir konur. Sú skoðun hefur hins vegar breyst með
aukinni reynslu og nú tel ég að það sé afar mikilvægt úrræði fyrir
konur og jafnvel nauðsynlegt, þótt ekki væri nema tímabundið. Sem
dæmi má nefna að lögreglumenn á Íslandi eru um 741 talsins skv.
síðustu tölum. Þar af eru konur 89 talsins eða um 12% prósent af
stéttinni og það ætti að speglast í yfirmannastöðum en því fer fjarri.
Það er engin kona í stöðu yfirlögregluþjóns hér á landi og einungis
ein kona aðstoðaryfirlögregluþjónn. Kynjakvóti, sem jafnvel væri
tímabundinn, gæti breytt þessari mynd.
Hvernig hefur konum gengið að feta sig í stjórnum
í því fagfélagi sem þú ert í?
Í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana eru eingöngu stjórnendur
ríkisstofnanna. Af 131 félagsmanni eru 56 konur, sem er mun
hagstæðara hlutfall að ég held en það var þegar ég var fyrst skipuð
forstöðumaður.
Hver var fyrsta konan í þínu embætti og hvenær
hóf hún störf?
Ég er fyrsta konan sem er eingöngu lögreglustjóri og hóf störf
þann 1. janúar 2009. Nokkrar konur hafa hins vegar verið sýslumenn
og jafnframt lögreglustjórar og hin fyrsta var Hjördís Hákonardóttir
sem varð sýslumaður og þá jafnframt lögreglustjóri árið 1980 og er
nú dómari við Hæstarétt.
Nú gegna þrjár konur embætti sýslumanns og jafnframt
lögreglustjóra. Ein þeirra mun taka við nýju embætti fljótlega og
önnur er með tímabundna setningu. Lagt hefur verið fram frumvarp
á Alþingi um aðskilnað á milli sýslumanna og lögreglustjóra og að
lögreglustjórar verði sex talsins. Það má því búast við að konum við
lögreglustjórn fækki fremur en fjölgi á næstunni en vonandi förum
við að sjá konur sem yfirlögregluþjóna þegar kemur að nýliðun
í þeirra röðum.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Ég er kona … og er lögreglustjóri
38
32-41 Eg er kona5styrk.indd 8 6/1/10 2:13:32 PM