19. júní


19. júní - 19.06.2010, Side 50

19. júní - 19.06.2010, Side 50
ára afmæli kvennafrídagsins 24. október, en öll kvennahreyfingin á Íslandi hefur sameinast um að minnast þessara tímamóta með því að vekja sérstaka athygli á kynbundnu ofbeldi. Kvenfélagasamband Íslands kynnti húfuverkefni sitt, sem m.a. var tilnefnt til Íslensku samfélagsverðlaunanna sem Fréttablaðið veitir ár hvert, og Helga Þórey Björnsdóttir mannfræðingur kynnti rannsókn sína á högum útigangsfólks í Reykjavík sem hún framkvæmdi fyrir nokkrum árum. Á starfsárinu hefur stjórn KRFÍ sent frá sér fjölmargar ályktanir og yfirlýsingar. Stjórnin fagnaði því t.d. þegar ný lög voru samþykkt á Alþingi um bann við vændiskaupum og stuttu síðar að konum fjölgaði á Alþingi upp í 43%. Einnig voru samþykktar ályktanir sem lutu að framboðsreglum stjórnmálaflokkanna og undirtektir með öðrum félögum sem vinna að jafnréttismálum. Ályktanirnar má lesa í heild sinni á heimasíðu félagsins. Samstarf KRFÍ er í samstarfi við ýmis kvennasamtök, verkalýðsfélög og önnur félög jafnt innanlands sem utan. Mjög gott samstarf hefur verið við Kvennasögusafn Íslands og samvinna við Samtök kvenna af erlendum uppruna hefur einnig færst í aukana. Í febrúar tóku félögin tvö, KRFÍ og Samtök kvenna af erlendum uppruna, höndum saman og ýttu úr vör nýju samstarfsverkefni sem nefnist „Þjóðlegt eldhús“. Síðasta fimmtudag hvers mánaðar hafa verið haldin matarkvöld í samkomusal Hallveigarstaða þar sem konur úr Samtökum kvenna af erlendum uppruna hafa kynnt matargerð og menningu ýmissa félaga sinna og hefur gestum gefist kostur á því að taka þátt í matargerðinni. Síðan borða allir saman. Á fyrsta matarkvöldi í febrúar var matur frá Kólumbíu kynntur og var nánast húsfyllir af konum úr öllum áttum sem tóku þátt í matargerðinni og áttu notalega kvöldstund saman. Þar á eftir hefur matarmenning frá Austur-Afríku verið kynnt, frá Spáni og nú síðast frá Póllandi í lok maí. Kvöldin hafa notið mikilla vinsælda og verður þeim haldið áfram veturinn 2010-2011. Fyrsta matarkvöld komandi hausts verður fimmtudaginn 30. september. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, tekur KRFÍ jafnan þátt í samstarfi við ýmis samtök og stéttarfélög um að fagna deginum og í ár var 100 ára afmæli þessa baráttudags. Vegleg dagskrá var í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þar sem húsfyllir var. Fulltrúi KRFÍ í dagskránni var Andrés Ingi Jónsson, fulltrúi VG í aðalstjórn KRFÍ. Erlent samstarf KRFÍ á starfsárinu hefur einnig verið virkt. Margrét Steinarsdóttir, gjaldkeri KRFÍ, situr í stjórn aþjóðasamtakanna International Alliance of Women og sótti hún fund norrænu IAW félaganna í Ósló á vormánuðum 2009, ásamt Þorbjörgu I. Jónsdóttur, sem einnig gegnir ábyrgðarstöðu innan IAW. Formaður og varaformaður KRFÍ sóttu jafnréttisráðstefnu í Lettlandi sem haldin var með styrk Norrænu ráðherranefndarinnar. Var Margrét K. Sverrisdóttir þar að auki einn fyrirlesara á ráðstefnunni. Þá sóttu framkvæmdastjóri og gjaldkeri KRFÍ Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York í byrjun mars 2010 ásamt tveggja daga hliðarráðstefnu frjálsra félagasamtaka frá öllum heimshornum. Fyrirspurnir að utan um samstarf og heimsóknir hverskonar eru sífellt að aukast. Á starfsárinu fékk skrifstofa KRFÍ þrjár heimsóknir þar sem farið var með erlendu gestunum yfir sögu, verkefni og markmið félagsins ásamt því að veita upplýsingar um stöðu jafnréttismála almennt á Íslandi. Fyrir liggja nokkrar fyrirspurnir um fjölþjóðleg samstarfsverkefni sem enn eru á viðræðustigi. Félagar KRFÍ eru nú rétt um fjögur hundruð og eru það bæði konur og karlar. Einnig eru rúmlega hundrað einstaklingar og stofnanir áskrifendur að ársriti KRFÍ, 19. júní. Framkvæmdastjóri gaf út fjögur tölublöð af Fréttabréfi KRFÍ á starfsárinu og tímaritið 19. júní kom út að vanda. Styrkir Á árinu 2009 fékk félagið styrk af fjárlögum, kr. 3,9 milljónir. Reykjavíkurborg styrkti félagið einnig um eina milljón króna á árinu 2009. Þessir styrkir gerðu félaginu mögulegt að reka skrifstofu sína á Hallveigarstöðum og greiða starfsmanni laun fyrir 75% stöðu, auk þess að fjármagna þau fjölmörgu verkefni sem félagið tekur sér fyrir hendur hverju sinni. Félaginu hlotnuðust einnig nokkrir minni styrkir frá forsætisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti til afmarkaðra verkefna. KRFÍ fær iðulega sendar þingsályktunartillögur frá Alþingi til umsagnar um mál er varða konur og má lesa umsagnir þessar á heimasíðu félagsins undir liðnum „Ályktanir – Umsagnir“. Þar fyrir utan er heilmikinn fróðleik að finna um félagið á heimasíðunni auk frétta af jafnréttismálum og því sem helst er á döfinni hjá öðrum félögum sem hafa baráttu fyrir jafnrétti eða öðrum mannréttindum á verkefnaskrá sinni. Hægt er að skrá sig á póstlista félagsins á heimsíðunni - þannig missir enginn af því sem ber hæst í starfi félagsins eða í jafnréttismálum í samfélaginu. Hér að framan hefur verið greint frá því helsta í starfsemi KRFÍ en umfjöllunin er þó hvergi nærri tæmandi. a María del Pilar Acosta Gómez frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna kynnir samtarfskonur sínar úr samtökunum frá Austur-Afríku en þær sáu um matargerð kvöldsins í þjóðlegu eldhúsi. Gestir kvöldsins fá sér mat af hlaðborðinu úr þjóðlegu eldhúsi. 50 Á konudeginum á Hallveigarstöðum var átakið Öðlingurinn kynnt. Karlar höfðu staðið í eldlínu átaksins frá bóndadegi til konudags þegar konur tóku við. Á myndinni taka konur við „kyndlinum“ úr höndum Karls Sigurðssonar (t.h.) og Snorra Ásmundssonar, frá hægri Ingveldur Ingólfsdóttir, Halldóra Traustadóttir, Margrét K. Sverrisdóttir, Ása Atladóttir og Sigurlaug Viborg. Elín Björg Jónsdóttir var heiðruð af nokkrum stjórnarkonum KRFÍ sem fyrsta konan sem kosin hefur verið formaður BSRB. Á myndinni eru frá hægri: Margrét K. Sverrisdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Elín Björg Jónsdóttir og Hildur Helga Gísladóttir. 46-49 Skyrsla stjornar.indd 4 6/2/10 1:16:01 PM

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.