Peningamál - 01.08.2000, Side 12
PENINGAMÁL 2000/3 11
dagana 14. til 15. þegar gengið lækkaði í 3% yfir
miðju. Seinni daginn kom til lítils háttar inngripa af
hálfu Seðlabankans, og voru það fyrstu viðskipti
hans á gjaldeyrismarkaðnum í rúmt ár. Talsverð við-
skipti urðu 15. og 16. júní eða um 7 ma.kr. hvorn dag.
Svo virðist sem inngripin og vaxtahækkun bankans,
sem tilkynnt var 16. júní, hafi róað markaðinn og
hélst gengi krónunnar stöðugt til næsta föstudags
þegar það lækkaði um rúmlega 0,8% á milli skrán-
inga í tiltölulega miklum viðskiptum. Í dagslok 16.
júní var krónan enn lægri eða um 2% yfir miðju.
Mánudaginn 26. júní dró aftur til tíðinda á gjald-
eyrismarkaði. Þegar að morgni dags var útlit fyrir
mikla eftirspurn eftir gjaldeyri samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem bankinn hafði aflað sér. Seðlabankinn
greip inn í markaðinn við opnun viðskipta með sölu
gjaldeyris. Gífurleg viðskipti urðu á millibanka-
markaðnum þennan dag eða alls um 19,3 ma.kr. og
höfðu aldrei verið meiri á einum degi. Inngrip
bankans, sem námu rúmum 2,6 ma.kr., leiddu til þess
að krónan styrktist nokkuð frá föstudeginum, og var
hún skráð 3,2% yfir miðju vikmarkanna. Næsta dag
kom enn til nokkurra inngripa bankans, og hélst
gengið síðan nokkuð stöðugt án afskipta hans fram til
12. júlí þegar enn á ný urðu mikil viðskipti á milli-
bankamarkaðnum sem leiddu til veikingar krónunn-
ar. Kom á ný til inngripa af hálfu bankans, og hélst
gengi krónunnar nánast óbreytt milli skráninga, en
seig miðað við dagslok um tæpt hálft prósent. Áfram
var verulegur þrýstingur á gengi krónunnar næstu tvo
daga, og kom þá til frekari inngripa af hálfu Seðla-
bankans. Tilgangurinn var sem fyrr að koma í veg
fyrir að ótti gripi um sig á gjaldeyrismarkaðnum.
Lokun gjaldeyrismarkaðar 13. júlí
Hinn 13. júlí varð skörp lækkun á gengi krónunnar
snemma morguns þegar markaðurinn var opnaður.
Gripu þá viðskiptavakarnir til þess að loka milli-
bankamarkaðnum kl. 10 árdegis. Samkvæmt reglum
markaðarins getur meirihluti viðskiptavaka tekið
ákvörðun um tímabundna lokun eða lengst til næsta
viðskiptadags. Seðlabankinn átti ekki aðild að þess-
ari ákvörðun, en kallaði viðskiptavakana strax til
fundar og var þar ákveðið að opna markaðinn að nýju
kl. 12. Að mati Seðlabankans var lokun markaðarins
óheppileg, og hefur bankinn látið það í ljós við aðra
markaðsaðila að nauðsynlegt kunni að vera að endur-
skoða reglur markaðarins hvað þetta atriði áhrærir.
Krónan náði lágmarki 14. júlí og styrktist á ný
Þrátt fyrir inngrip Seðlabankans þessa þrjá daga
lækkaði gengi krónunnar og náði lágmarki 14. júlí
þegar krónan var skráð tæplega 0,9% undir mið-
gengi, en sá dagur var jafnframt metdagur í viðskipt-
um á gjaldeyrismarkaðnum. Heildarviðskipti þann
dag námu 20,8 ma.kr. og þar af viðskipti Seðlabank-
ans um 3 ma.kr. en viðskipti dagana tvo á undan voru
einnig mjög mikil, eða 12,8 ma.kr. og 15,4 ma.kr. Í
heild námu inngrip Seðlabankans röskum 7 ma.kr.
þessa þrjá daga. Eftir 14. júlí dró mjög úr spennu á
gjaldeyrismarkaðnum, viðskipti minnkuðu og krónan
styrktist á ný. Þegar þetta er ritað er gengi krónunnar
um 1,4% yfir miðju vikmarkanna, liðlega 5% lægra
en það varð hæst í maí.
Áhlaup á krónuna
Enginn vafi er á því að um var að ræða áhlaup á krón-
una í þeim skilningi að markaðsaðilar, innlendir og í
einhverjum mæli erlendir, endurskoðuðu afstöðu sína
til gengis krónunnar og gerðu viðeigandi ráðstafanir,
þ.e. keyptu gjaldeyri, lokuðu framvirkum gjaldeyris-
sölusamningum eða skiptasamningum til að firra sig
tapi af lækkuðu gengi krónunnar. Þessar aðgerðir
þrýstu á gengi krónunnar til lækkunar og ýttu enn
fleiriaðilumafstað.Ekkertbendir tilþessaðviðskipta-
vakarnir á gjaldeyrismarkaðnum hafi sjálfir tekið
stöðu gegn krónunni. Þvert á móti var heildargjald-
eyrisjöfnuður þeirra nánast í jafnvægi á þessu tíma-
bili. Þeir treystu sér hins vegar ekki til að standa gegn
Vísitala gengisskráningar og frávik
frá miðgildi 115,01 árið 2000
Jan. Feb. Mars Apr. Maí Júní Júlí
107
108
109
110
111
112
113
114
115
116
31.12.1991=100
0,0
1,0
2,0
-1,0
-2,0
-3,0
-4,0
-5,0
-6,0
-7,0
%
Vísitala (vinstri ás)
Frávik (hægri ás)
Mynd 2