Peningamál - 01.08.2000, Side 24

Peningamál - 01.08.2000, Side 24
4,4% skv. spá OECD, er skýr vísbending um að góð- æri síðustu ára sé að hluta til fengið að láni. Hefur viðskiptahalli Bandaríkjanna ekki orðið jafnmikill frá stríðslokum. Jafnframt er viðskiptahallinn mikil- vægur öryggisventill sem komið hefur í veg fyrir að eftirspurnarofþensla leiddi til aukinnar verðbólgu. Halli á utanríkisviðskiptum olli því að hagvöxtur mældist rúmlega 1% minni á árunum 1998-1999 en ella og má telja næsta víst að ekki hefði verið hægt að fullnægja svo mikilli eftirspurn á innlendum markaði án umtalsverðra verðbólguáhrifa. Sparnaður hins opinbera hefur aukist en einkasparnaður dregist saman að sama skapi og þjóðhagslegur sparnaður haldist nálægt sögulegu lágmarki. Fjársparnaður heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum hefur verið lítill sem enginn og með því allra lægsta sem gerist á meðal OECD-ríkja.13 Skuldir fyrirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu hafa aukist verulega og eru nú hærri en þær hafa mælst áður.14 Öflug fjárfesting hefur átt ríkan þátt í að tryggja langlífi núverandi hagvaxtarskeiðs í Bandaríkjunum og valdið því að vöxtur framleiðni og framboðs hefur verið með eindæmum ör. Vöxtur einkaneyslu hefur þó einnig átt verulegan og vaxandi hlut að máli og nú er svo komið að vöxtur eftirspurnar slær vexti fram- boðs við. Einkaneysla óx um 5,3% á síðasta ári og vex vart miklu hægar á þessu ári, ef marka má fyrsta fjórðung ársins.. Einkaneysla jókst um 5,3% á síðasta ári og OECD spáir 4,8% vexti einkaneyslu á árinu 2000. Samsvörun er á milli aukinnar einkaneyslu og minni einkasparnaðar. Eins og á Íslandi er vöxtur einkaneyslu í Bandaríkjunum byggður á lántökum og endurspeglar ríkjandi bjartsýni um framtíðar tekju- horfur. Atvinnuleysi hefur farið minnkandi, atvinna aukist og vinnustundum fjölgað. Að auki hækkaði eignaverð, einkum verð hlutabréfa, hröðum skrefum fram á yfirstandandi ár. Því má ætla að töluverðra áhrifa auðsmyndunar á einkaneyslu hafi gætt á síð- asta ári og allt fram á þetta ár, en í apríl tók að gæta vaxandi óróa á verðbréfamörkuðum og verð hluta- bréfa hefur lækkað umtalsvert frá því að það reis hæst fyrr á árinu. Sveiflur verðbréfa í tæknigeiranum, sem endurspeglast í Nasdaq-vísitölunni, hafa verið sérlega miklar. Að hluta til má rekja þessa þróun til væntinga um áframhaldandi hækkun vaxta, sem þegar er farin að hafa áhrif í þeim geirum sem næm- astir eru fyrir vaxtabreytingum. Einnig er ljóst að verð hlutabréfa var orðið mjög hátt í sögulegum samanburði. Hvers vegna hinn óvenjuöri hagvöxtur í Banda- ríkjunum hefur ekki haft meiri áhrif á verðlagsþróun en raun ber vitni hefur valdið nokkrum heilabrotum. Vilja sumir skrifa það að mestu á reikning nýbúskap- arins og örrar framleiðniaukningar. Ýmsar aðrar að- PENINGAMÁL 2000/3 23 Heimild: OECD. Viðskiptahalli og þjóðhagslegur sparnaður í Bandaríkjunum 1980-2000 1980 1985 1990 1995 2000 0,0 0,8 -0,8 -1,6 -2,4 -3,2 -4,0 -4,8 -5,6 % 13 14 15 16 17 18 19 20 21 % Mynd 9 Viðskiptahalli (v. ás) Þjóðhagslegur sparnaður (h. ás) Bæjar- og sveitarfélög Heimili Atvinnuvegir Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum 1997-2000 Ríkissjóður og ríkisstofnanir 50 100 150 200 250 300 350 400 31.12.1996=100 Dow Jones Industrial Wilshire 5000 Nasdaq Mynd 10 1997 1998 1999 2000 Heimild: Datastream. 13. Áætlað er að hlutfallið hafi numið 2,4% á síðasta ári og verði 1,4% á yfirstandandi ári skv. spá OECD. Sparnaður er álíka mikill í Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Svíþjóð, en þess ber að geta að nokkru getur munað á skilgreiningum milli landa. 14. Skuldir annarra fyrirtækja en fjármálafyrirtækja námu á síðasta ári rúm- lega 45% af landsframleiðslu og hlutfallið var mun hærra hjá smærri fyrirtækjum. Í hlutfalli við markaðsverðmæti fyrirtækja er skuldahlut- fallið þó lágt í sögulegu samhengi. Sjá Carol Osler og Gijoon Hong: „Rapidly rising Corporate Debt: Are Firms Now Vulnerable to an Eco- nomic Slowdown?“ Current Issues in Economics and Finance, vol. 6 # 7, Federal Reserve Bank of New York, júní 2000.

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.