Peningamál - 01.08.2000, Síða 36
sinnar að NOREX. Einnig er í sumar unnið að sam-
starfsverkefni VÞÍ og fleiri aðila um framþróun
verðbréfamarkaðar, með það að markmiði að stuðla
að trúverðugleika og samkeppnishæfni markaðarins
og gera hann þannig sem best búinn til að þjóna
hlutverki sínu í hagkerfinu. Þar er m.a. til athugunar
nánari aðgreining almennra og lokaðra útboða, skil-
greining og afmörkun gráa markaðarins, reglur um
innherjaviðskipti og um aukna upplýsingagjöf, þ.á
m. ársfjórðungsuppgjör og fleira.3
Annað stórt skref fyrir tæknilega framþróun
markaðarins var stigið í sumar þegar fyrstu rafrænu
hlutabréfin voru gefin út hérlendis. Það voru hluta-
bréf Össurar hf. og var hægt að eiga viðskipti með
þau frá og með 14. júní sl. Með rafrænni skráningu
verða viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf
bæði öruggari og auðveldari, ekki síst fyrir erlenda
fjárfesta. Rafræn viðskipti munu því greiða götu er-
lends fjármagns inn á íslenska hlutafjármarkaðinn.
Verðbréfaskráning Íslands hf. áætlar að um 18 mán-
uðir muni líða uns allt hlutafé á VÞÍ verður rafrænt
skráð.
Samrunar og nýskráningar
76 félög voru skráð á VÞÍ 30. júní sl. sem er einu
fleira en í upphafi árs. Afskráningar hafa verið
óvenjumargar á árinu, en fjórar sameiningar skráðra
félaga hafa leitt til jafnmargra afskráninga nettó og
tvö félög hafa verið afskráð af öðrum ástæðum. Sjö
ný félög hafa verið skráð, þ.á m. það félag sem nú er
fjórða stærst á þinginu.
Vægi atvinnugreina á VÞÍ hefur breyst verulega
með mikilli fjölgun fyrirtækja síðustu ár. Í nokkur ár
var langstærstur hluti markaðsverðmætisins í sjávar-
útvegi, eða allt að 40%. Þetta hefur breyst á árunum
1998-2000 og er vægi sjávarútvegs nú um 19%.
Hann er nú næststærsta atvinnugreinin á þinginu, á
eftir fjármála- og tryggingagreininni. Myndir 2a og
2b sýna skiptinguna annars vegar í árslok 1995 og
hins vegar í júní 2000.
Mikil veltuaukning á eftirmarkaði
Framboð og eftirspurn eftir eignarhlutum í íslenskum
hlutafélögum hefur aukist mikið á undanförnum ár-
um. Viðskipti með skráð hlutabréf jukust hægt og
PENINGAMÁL 2000/3 35
(30. júní)
Þróun markaðsverðs og fjölda hlutafélaga
á VÞÍ 1990 - 2000
90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 2000
0
50
100
150
200
250
300
350
400
450
Ma.kr.
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
Fjöldi
Markaðsverðmæti (vinstri ás)
Fjöldi félaga (hægri ás)
Mynd 1
Heimild: VÞÍ.
3. Í viðtali við Morgunblaðið 18. maí sl. bendir dr. Daniel Levin á ókosti
þess að viðskipti með hlutabréf fari fram utan skipulegs markaðar og
nauðsyn þess að setja reglur um „gráa markaðinn“, en víða erlendis
hafa slíkar reglur það markmið að vernda og jafna stöðu fjárfesta.
Mynd 2a
Stærstu atvinnugreinar á VÞÍ í árslok 1995
11,5%
17,8%
31,2%
24,5%
6,7%
8,4%
Olíudreifing
Fjármál og
tryggingar
Annað
Hlutabréfasjóðir
Sjávarútvegur
Samgöngur
Heimild: VÞÍ.
Mynd 2b
Stærstu atvinnugreinar á VÞÍ 30. júní 2000
33,3%
8,8%
9,6%
8,8%
18,7% 6,1%
14,7%
Upplýsingatækni
Fjármál og tryggingar
Annað
Hlutabréfasjóðir
Sjávarútvegur
Samgöngur
Iðnaður og
framleiðsla
Heimild: VÞÍ.