Glóðafeykir - 01.11.1977, Qupperneq 6
4
GLOÐAFEYKIR
Drög að byggingarsögu Safnahúss
Skagfirðinga
í þessu greinarkorni verður leitazt við að draga fram helzm atxiði
varðandi aðdraganda og byggingu Safnahiissins, þess er nú stendur undir
Nöfunum við Faxtatorg.
Þar sem höfundur var með öllu ókunnugur þróun þessa máls, hefur
hann að mestu orðið að bjargast við gloppóttar skráðar heimildir, fyrst
og fremst fundargerðabók stjórnar Héraðsbókasafnsins, ásamt fáeinum
bréfum og stuttum greinargerðum, sem lúta að þessu efni.
Sýslubókasafnið á Sauðárkróki var stofnað 1904 og var fyrsm ára-
mgina í leiguhúsnæði, oftast við þröng og óhentug skilyrði. Arið 1936
lét Skagafjarðarsýsla byggja nýtt hús að Suðurgöm 7. Var því ætlað að
hýsa bókasafnið á neðri hæðinni, en einnig var þar búin vist tilfallandi
„delinquenmm” héraðsins. A efri hæð var íbúð, sem bókavörðurinn,
Steingrímur Arason, bjó í og átti lengi. Var húsið tekið í notkun árið 1937
og þótti myndarlegt á sínum tíma. En þegar líða tók á sjötta áramginn
var Ijóst orðið, að þetta húsnæði yrði brátt alls ófullnægjandi til að
gegna sínu hlutverki. Gerðar höfðu verið ýmsar breytingar til rýmkunar,
en bókasafnið óx stöðugt og sprengdi af sér húsakynnin. Skjalasafnið hafði
í fyrsm enga aðstöðu, en fékk síðar, um 1960, inni í kompu einni, sem enga
möguleika gaf til eðlilegs viðgangs og þrifnaðar þeirri stofnun.
Oljóst er, hvenær menn byrjuðu að ræða sín á milli um framtíðarúr-
lausn, en hið elzta af skrifuðu orði, er upplýsingar gefur, er afrit af
bréfi, dagsetm 10. október 1960, svohljóðandi:
„Þar eð húsnæði það, er Héraðsbóka- og Skjalasafn Skagafirðinga
hefir til afnota, er nú þegar að verða of lítið, ákvað stjórn safnsins á
fundi sínum s.l. vemr að hefja þegar undirbúning að byggingu nýs húss
fyrir bæði söfnin. Leyfum vér oss undirritaðir, fyrir hönd stjórnar safns-
ins, að sækja um byggingarstyrk til yðar hr. bókafulltrúi. Einnig viljum
við biðja yður um teikningar og kostnaðaráætlun að byggingu, sem rúmi
minnst 20 þúsund bindi bóka, fræðaherbergi, lesstofu, skjalasafn, útlána-
herbergi, skrifstofu fyrir bókavörð og annað, er nauðsynlegt þykir í
slíkri byggingu."
A fundi safnastjórnarinnar 19- febrúar 1961 var enn rætt um nauðsyn
þess að reisa nýtt bókasafnshús, og komu þá einnig fram hugmyndir