Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 8

Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 8
6 GLOÐAFEYKIR leizt Sigurjóni bezt á svæðið vestan Skagfirðingabrautar, gegnt kjör- búð KS. Næsta vor liggur fyrir, að ekki muni verða af samvinnu við Spari- sjóðinn og voru nefndarmenn á einu máli um að hefja undirbuning bygg- ingar fyrir söfnin ein sér. Sótt var um lóð á horni Bárustigs og Skagfirð- ingabrautar og hlaut það samþykki bæjarstjórnar, en siðar hurfu margir að því ráði, að ákjósanlegri staður væri sunnan Sýsluhesthússins. A fundi safnastjórnar 20. marz 1964 upplýsti formaður, Kristján C. Magnús- son, að sá staður væri nú endanlega ákveðinn. Þá var Björn Daníelsson skólastjóri ráðinn til yfirumsjónar með byggingarframkvæmdum og mun síðan hafa mætt mest á honum að þoka málinu áfram eftir að verkið var hafið. I apríl sendi Sigurjón frumteikningar af húsinu, en nokkuð dróst að þær yrðu fullbúnar og var ekki hægt að byrja á þvi sumri. Fyrri hluta árs 1965 eru haldnir fundir til að ræða byggingaráform og er nú fullur hugur í mönnum að hefjast hinda. Var mikil umræða. hvort steypa skyldi upp allt húsið í einu eða taka fyrst fyrir syðri hlut- ann, einnig hvort hafa skyldi kjallara eða ekki. Fram hafði komið hug- mynd um, að Rafveita Sauðárkróks fengi leigðan eða keyptan hluta í væntanlegri byggingu, og með tilliti til þess var loks ákveðið að ráðast í smíði alls hússins. I maílok lágu fyrir öll gögn og leyfi og i júní voru framkvæmdir hafnar og tekinn grunnur. Samið hafði verið við Byggingarfélagið Hlyn h.f. að sjá um byggingu hússins og stjórnaði Björn Guðnason bygginga- meistari verkinu. Stjórn safnanna leitaði heúnildar bæjarstjórnar og sýslunefndar til lántöku, allt að 800 þús. krónur, jafnframt því, sem þess- ir aðilar voru beðnir um rífleg fjárframlög. Var þeirri málaleitan vel tekið og lögðu þeir hvor um sig um 310 þúsund krónur til byggingar- innar árið 1965 auk þess sem 75 þúsund fengust frá ríkissjóði. Nokkur vatnsagi bagaði í fyrstu vinnu í grunninum vegna uppspretm og varð að dæla burtu vatninu. Við uppslátt vo:u notuð tengimót, svo- kölluð Breiðfjörðsmót, sem þá voru nýlunda hér á Sauðárkróki. Gekk verkið vel, og um haustið var búið að steypa upp kjallarann og neðri hæð með plötu og kostnaður orðinn um 1.3 milljónir. Næsta vetur skeggræddu menn, hvort setja ætti bráðabirgðaþak og leggja áherzlu á að fullgera neðri hæðina og kjallarann eða steypa upp allt húsið. En með tilliti til þess, að slíkt þak kostaði allmikið fé, þótti hyggilegra að reyna að koma húsinu öllu upp og var það ákveðið. Talað var um að kanna möguleika á, að Sauðárkróksbær yrði á einhvern hátt aðili í byggingu efri hæðarinnar, en úr því varð ekki þegar til kom og

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.