Glóðafeykir - 01.11.1977, Qupperneq 14
12
GLÓÐAFEYKIR
útlánasal, lestrarsal, bókageymslu og svo litla geymslu, sem Sögufélag
Skagfirðinga hefur afnot af; að auki er skrifstofa bókavarðar. Með
áframhaldandi hraða aukningu á bókeign og útlánum safnsins mun þetta
húsnæðið þó ekki duga ýkja lengi, svo stórstíg hefur þróunin verið hin
síðustu ár.
Þegar er flutt var í hið nýja húsnæði, stórjukust útlán safnsins, enda
gjörbreyttist þá til hins betra öll aðstaða, bæði fyrir safngesti og starfs-
fólk. Varð fljótlega Ijóst, að vart yrði undan því komizt að ráða fastan
starfsmann í fullu starfi að safninu, þar eð erfitt yrði fyrir mann, sem
hefði bókavörzluna að aukastarfi, að anna öllum þeim verkefnum, er til
féllu. Þetta tókst þó Birni Daníelssyni að mestu, og vann hann mikið
og gott starf, unz hann féll skyndilega frá vorið 1974. A þeim árum, sem
hann var bókavörður, jókst bókaeign safnsins um rúm 6000 bindi eða
100%.
Haustið 1975 var loks hægt að ráða bókavörð í fullt starf, og var
þá undirritaður ráðinn til eins árs, eftir að mikið hafði verið reynt að fá
bókasafnsfræðing til safnsins. Var þá hafin endurflokkun og skráning
bóka. Slíkt var nauðsynlegt, því að reglur þar um hafa nýlega breytzt,
og er nú verið að reyna að koma á samræmi í flokkun og skráningu í
Útlánssalur Bókasafnsins.