Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 22
20
GLÓÐAFEYKIR
Kristmundnr, skjalavörður með handrit Konungsskuggsjár og
Sverrissögu frá því uni 1660.
til eru í héraðinu, sækir um árlegan styrk til safnsins úr ríkissjóði og
sér um hvað annað, er safninu má verða til vaxtar og þrifnaðar."
Tillagan var samþykkt samhljóða með atkvæðum allra sýslunefndar-
manna.
Hér er ekki rúm til að rekja til hlítar lög nr. 7. 1947 um héraðs-
skjalasöfn. Að framan er lauslega vikið að skjalasöfnum. Hlutverk héraðs-
skjalasafns er að varðveita, flokka og skrá gögn stjórnsýslulegs eðlis, er
varða það umdæmi, sem safnið starfar fyrir. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
á því að innheimta og varðveita opinber gögn Skagafjarðarsýslu og
Sauðárkrókskaupstaðar; með nokkrum takmörkunum þó, eins og síðar
verður að vikið. Héraðsskjalasöfn taka þannig að vissu marki að sér það
hlutverk, sem Þjóðskjalasafn Islands annars gegnir, enda lúta þau yfir-
stjórn þjóðskjalavarðar. Auk þess sem slíkum söfnum ber að geyma og
hafa til almennra nota skjalagögn kaupstaðar, sýslu og hreppa, ber
einnig að afhenda þeim til vörzlu bækur og skjöl félaga og stofnana, sem
njóta eða hafa notið styrks af opinberu fé. Má þar til að mynda nefna
lestrarfélög, ungmennafélög, leikfélög, íþróttafélög og skógræktarfélög.