Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 32
30
GLOÐAFEYKIR
son, Marínó Sigurðsson og Stefán Gestsson. Varamenn: Geirm. Jónsson,
Arni Bjarnason og Magnús H. Gíslason. Endurskoðendur: Guðjón Ingi-
mundarson og Sigtryggur Björnsson.
TILLÖGUR.
A aðalfundi eru ávallt kosnar nokkrar nefndir og til þeirra vísað öllum
málum, sem fram eru borin. Að þessu sinni kom fram fjöldi tillagna;
hlaut þorri þeirra jákvæða afgreiðslu í viðkomandi nefndum, nokkrar
neikvæða, sumum lítið eitt breytt, öðrum ekki. Fara hér á eftir tillögur
þær, flestar, er samþykktar voru á aðalfundinum.
a. Frá Stjórn félagsins:
Ráðstöfun tekjuafgangs:
Lagt í varasjóð kr. 3-400.000,00
Lagt í Menningarsjóð K. S. — 800.000,00
Endurgr. í stofnsj. félagsmanna í hlutfalli
við vöruúttekt — 9-500.000,00
Eftirst. yfirfærðar til næsta árs — 49-878,00
Samtals kr. 13-749.878,00
Till. um að skora á „stjórn Stéttarsamb. bænda og fulltrúa bænda í
sexmannanefnd að beita öllum tiltækum ráðum til þess að knýja fram
þær leiðréttingar á verðlagsgrundvelli búvöru, er tryggi bændum fullt jafn-
rétti um launakjör við hinar svokölluðu viðmiðnuarstéttir''.
Ennfr. skorað „á landbúnaðarráðherra að gera ráðstafanir til þess, að
rekstrarlán og afurðarlán landbúnaðarins verði færð til raungildis og jafn-
framt hækkuð svo, að unnt verði að greiða a.m.k. 90% af andvirði búvöru
við móttöku".
Skorað er „á ríkisstjórnina að fella þegar niður söluskatt af kjöti".
Lagt til „að fundurinn samþykki að einn fulltrúi kjörinn af Starfs-
mannafélagi K. S., fái rétt til setu á stjórnarfundum félagsins með mál-
frelsi og tillögurétt, enda sé hann félagsmaður í Kaupfélagi Skagfirðinga".
Samþ. till. um „að sameina félagið Samvinnufél. Fljótamanna í Haga-
nesvík. Um sameininguna fari eftir ákvæðum 27. gr. laga nr. 46 1937 um
samvinnufélög. Fyrir hið sameinaða félag skulu gilda samþykktir Kaupfél.
Skagf. Sameining fer fram þegar stjórnir beggja félaganna ákveða".