Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 34

Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 34
32 GLOÐAFEYKIR stjórnin „beiti áhrifum sínum á þann veg, að sá atvinnurekstur Samb- andsins, sem hugsanlega yrði stofnsettur á félagssvæðinu, yrði settur niður sem víðast í héraðinu, ef verða mætti til að hamla gegn háskalegri og stöðugri grisjun byggðar". Till. frá Þórarni Magnúss. og Svavari Hjörleifss..: „Aðalfundur K. S... lýsir yfir eindreginni andstöðu við þá stefnu, að byggja upp stóriðju í sam- vinnu við erlenda auðhringa. Fundurinn telur slíka stefnu hættulega fullveldi landsins og sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar jafnhliða gífur- legri skuldasöfnun erlendis". Till. frá Olafi H. Jóhannss. o. fl. um að skora „á stjórn S.I.S. og Vtnnumálasamb. samvinnufélaganna að gera allt, sem í þeirra valdi stendur til að samningar í yfirstandandi kjaradeilu megi takast sem fyrst". Till. frá Þórarni Magnúss. og Leifi Þórarinss.: „Aðalfundur K. S.... ítrekar áskorun frá síðasta aðalfundi til stjórnar K. S. um að kannað verði enn frekar hvort ekki sé hagkvæmt að taka upp bónuskerfi við sláturhús K. S. Till. frá Skarðsdeild um að skora „á stjórn félagsins að leggja fram rekstrarreikning sláturhússins. Verði hann í svipuðu formi og reikningur Mjólkursamlagsins." Till. frá Ingimar Bogasyni: „Aðalfundur K. S. beinir þeirri áskorun til stjórnar og framkvæmdastjóra K. S. að gerð verði athugun og raun- hæf könnun á því, hvort hagkvæmt myndi reynast að koma á fót vöru- markaði til hagræðingar á viðskiptum fyrir félagsmenn". Till. frá Jóni Guðmundss. um „að kjósa 5 manna nefnd til að leita eftir lausn á deilu um kjör fulltrúa á aðalfund félagsins og fjölda þeirra. Tillögur sínar skal nefndin leggja fyrir deidarfundi og aðalfund K. S. 1978". Till. frá Gunnari Oddssyni: „Aðalftmdur K. S. 1977 samþ. að fela stjórn félagsins að annast samninga um flutning sláturfjár að sláturhúsi félagsins á komandi hausti. Við framkvæmd málsins skal farið eftir samþykktum aðalfundar 1976".

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.