Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 35

Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 35
GLOÐAFEYKIR 33 Úr sveit að sjó Rcett við Kristin Gunnlaugsson. Sumir menn eru þannig af guði gerðir, að þeir setja svip á umhverfi sitt meir en aðrir. Manni finnst jafnvel að þeir séu hluti af því, sem ekki megi missast. Hverfi þeir af sviðinu verði það fátæklegra eftir. Einn þeirra manna, sem óneitanlega setm svip á Sauðárkrók þegar ég man fyrst eftir og raunar lengi síðan, er Kristinn Gunnlaugsson. Hægur og kyrrlátur í fasi, þétmr á velli og þétmr í lund, greindur og íhugull, með glettnis- blik í augum og ósjaldan gamanyrði á vör. Engan veginn allra en ókvikull vinur vina sinna. Kristinn Gunnlaugsson er nú fluttur til Reykjavíkur fyrir allmörgum áram. Hann er nú að mesm sesmr í helgan stein, enda liðlega áttræður orðinn. Vinnudagurinn langur og lífið ekki alltaf dans á rósum. Nú unir hann sér löngum við bókasafnið sitt, mikið að vöxmm en meira að gæðum, og les ekki hvað síst ættfræði. Þau Guðný eiga hlýlegt heimili að Spítalastíg 5, fast við iðuköst mannlífsins í miðborginni, en þó er eins og allur skarkali sneiði þar hjá garði. Það er varla að maður sjái eða heyri bíl aka um gömna. Nú þegar að því kom, að velja viðmælanda fyrir Glóðafeyki að þessu sinni, þá kom mér í hug Kristinn Gunnlaugsson. Eg vissi að vísu ekki hvernig hann mundi taka þeirri málaleitan minni. Hitt vissi ég af fyrri reynslu, að góð myndu þau hjón heim að sækja og það yrði þá að hafa það þótt hann mæltist undan viðtalinu. Og svo var það einn sunnudag í vor, að ég lagði leið mína á Spítala- stíg 5. Kristinn var hinn hressasti, tók mér með kostum og kynjum og ekki höfðum við spjallað saman nema svona 10 mínútur er Guðný kom með kaffið, sem síðan vék ekki af borðinu meðan ég stóð við. Ég færði erindið í tal við Kristin. „Ojá, ég veit nú ekki hvað segja skal”, .sagði hann. „Oddur Sigurjóns- son átti nú við mig smá viðtal fyrir Alþýðublaðið og ég var ekki nógu ánægður með það. Það kann nú eitthvað að hafa verið mér að kenna en Kristinn Gunnlaug-sson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.